

NFL
Fréttir og úrslit úr bandarísku NFL ruðningsdeildinni.

Nýi maðurinn allt í öllu þegar Ernirnir sóttu sigur í Brasilíu
Eins og þekkt er orðið spilar NFL-deildin alltaf þónokkra leiki utan Bandaríkjanna ár hvert. Að þessu sinni fór leikur Philadelphia Eagles og Green Bay Packers í São Paulo í Brasilíu. Þar stal Saquon Rasul Quevis Barkley senunni með þremur snertimörkum fyrir Ernina frá Fíladelfíu.

Ofurstuðningsmaður Chiefs rændi ellefu banka
Einn þekktasti stuðningsmaður NFL-meistara Kansas City Chiefs er á leið í steininn og verður þar lengi.

Voru einni stórri tá frá því að vinna meistarana
Tímabilið í NFL-deildinni hófst í nótt er meistarar Kansas City Chiefs tóku á móti Baltimore Ravens. Meistararnir höfðu betur, 27-20, í hörkuleik.

Táningurinn sem skaut Pearsall miður sín
Táningurinn sem var næstum búinn að myrða Ricky Pearsall, leikmann San Francisco 49ers, var leiddur fyrir dómara í gær.

Lögreglukona bjargaði lífi NFL leikmannsins
NFL útherjinn Ricky Pearsall er ekki bara á lífi heldur líka útskrifaður af sjúkrahúsi þrátt fyrir að hafa verið skotinn í brjóstkassann um helgina.

Neita því að styðja Kamölu Harris
NFL-félagið Philadelphia Eagles neyddist til þess að gefa frá sér yfirlýsingu í gær vegna auglýsinga í borginni.

NFL-leikmaður skotinn í brjóstkassann
Ameríski fótboltamaðurinn Ricky Pearsall var skotinn þegar táningur reyndi að ræna hann San Francisco í Bandaríkjunum í gær.

Draumur þúsund leikmanna dáinn
Gærdagurinn var sá blóðugasti í NFL-deildinni þetta tímabilið er draumur tæplega þúsund leikmanna um að spila í deildinni dó.

Kelce bræðurnir seldu hlaðvarpið sitt á tæplega þrettán milljarða
Bræðurnir Jason og Travis Kelce halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi Bandaríkjanna. Þó bræðurnir eigi fyrir salti í grautinn eftir glæsta ferla í NFL-deildinni, öðrum þeirra er ekki einu sinni lokið, þá má með sanni segja að þeir hafi haslað sér völl í heimi hlaðvarpanna.

Fékk fimm milljarða fyrir að skrifa undir
Kúrekarnir frá Dallas eru loksins búnir að ganga frá sínum málum við stjörnuútherjann CeeDee Lamb. Besti maður liðsins getur farið að einbeita sér að NFL tímabilinu sem hefst í næstu viku.

Aldrei spilað leik en á leið í NFL-deildina
Síðasta vetur var Bretinn Travis Clayton í skrifstofuvinnu en nú styttist í að hann spili sinn fyrsta leik í NFL-deildinni.

Leikmenn festust í lyftu í tvo klukkutíma
Leikmenn og starfsmenn Los Angeles Chargers voru meðal þeirra fimmtán sem festust í lyftu í tvo klukkutíma um helgina.

Daninn í NFL fær að lágmarki einn milljarð í nýjum samningi
Danski leikmaðurinn Hjalte Froholdt er að gera góða hluti í ameríska fótboltanum en hann hefur nú fengið nýjan samning hjá liði Arizona Cardinals.

Til í keppni ef hlaupið er löglegt og milljónir dollara fást fyrir
Noah Lyles er til í að keppa við Tyreek Hill í hundrað metra spretthlaupi, en bara ef hlaupið fer löglega fram á hlaupabraut og hann fær margar milljónir dollara fyrir.

Fyrrum NFL-leikmaður handtekinn fyrir að pissa á sessunaut í flugi til Dyflinnar
Gosder Cherilus, fyrrum leikmaður NFL-deildarinnar, var handtekinn á dögunum fyrir að pissa á sessunaut sinn í flugi frá Boston til Dyflinnar á Írlandi.

Býðst að snúa aftur í NFL eftir útlegð
Colin Kaepernick hefur boðist starf í þjálfarateymi Los Angeles Chargers, undir stjórn fyrrum þjálfara hans Jim Harbaugh. Kaepernick vill sjálfur komast aftur á völlinn sem leikmaður.

Kynnti nýjan majónes rakspíra
Will Levis er leikstjórnandi í NFL-deildinni með liði Tennessee Titans. Hann er með lífstíðarsamning við Hellman´s majónes og ekki að ástæðulausu.

Stanslaus slagsmál stjörnunýliðans
Það gengur á ýmsu á sameiginlegum æfingum NFL-liðanna Detroit Lions og New York Giants sem undirbúa sig fyrir komandi leiktíð. Nýliðinn Malik Nabers grípur fyrirsagnirnar.

Eyðir 33 milljónum í skrokkinn á sér á hverju ári
NFL stórstjarnan Derrick Henry hefur hlaupið yfir mann og annan í deildinni undanfarin ár og verið einn besti hlaupari hennar. Hann er í rosalegu formi og passar líka einstaklega vel upp á líkama sinn.

Mahomes með skýr skilaboð: „Tími til að spila betur“
Patrick Mahomes, leikstjórnandi NFL-meistara Kansas City Chiefs hefur sent liðsfélögum sínum í sóknarlínu Chiefs skýr skilaboð fyrir komandi tímabil.

Fyrrum NFL meistarinn Jacoby Jones látinn
Jacoby Jones, fyrrum Super Bowl sigurvegari með Baltimore Ravens í NFL deildinni, lést í gær aðeins fertugur.

Williams-systur skutu föstum skotum að karlrembunni Butker
Systurnar Serena og Venus Williams sendu NFL-leikmanninum Harrison Butker væna pillu á ESPY-verðlaunahátíðinni vestanhafs í gærkvöld. Butker lét umdeild ummæli falla um hlutverk kvenna fyrir skemmstu.

Nýliði Minnesota Vikings lést í bílslysi
Khyree Jackson, nýliði Minnesota Vikings í NFL deildinni, og tveir fyrrum skólabræður hans létust í bílslysi aðeins 24 ára að aldri.

Rodgers sektaður fyrir að missa af æfingabúðum
Aaron Rodgers nældi sér í sekt upp á rétt rúmlega 100 þúsund Bandaríkjadali þegar hann skellti sér til Egyptalands og missti í kjölfarið af æfingabúðum New York Jets í síðasta mánuði.

Eitt sinn fyrstur í nýliðavali NFL, nú rekinn úr sjálfboðastarfi fyrir fjárdrátt
JaMarcus Russell, fyrrum fyrsta val í nýliðavali NFL deildarinnar, hefur verið rekinn úr sjálfboðastarfi hjá Williamson menntaskólanum í Alabama og kærður fyrir að hirða 74.000 dollara sem skólanum var gefið.

Leikstjórnandi Cowboys ekki sóttur til saka
Dómari í Texas hefur vísað frá máli gegn Dak Prescott, leikstjórnanda Dallas Cowboys.

Ætla að fá Kansas City Chiefs til að flytja til Kansas
Kansas City Chiefs er ríkjandi NFL meistari eftir sigur í Super Bowl leiknum í febrúar. Það vita margir en eflaust gera færri sér grein fyrir því að félagið spilar ekki í Kansas fylki heldur í Missouri fylki.

Lawrence fær risasamning
Leikstjórnandinn Trevor Lawrence hefur ekki staðið undir væntingum í NFL-deildinni en er samt orðinn sá launahæsti.

Byggja styttu af Brady og leggja tólfuna hans á hilluna
NFL-liðið New England Patriots mun leggja treyju númer 12 á hilluna til heiðurs hinum goðsagnakennda leikstjórnanda Tom Brady. Þá mun félagið reisa styttu af þessum fyrrverandi leikmanni sem virtist lengi vel ósigrandi.

Kominn heim nokkrum dögum eftir hjartastopp
Brandon Lamar Thompson Jr., varnarmaður NFL-meistara Kansas City Chiefs, gat vart byrjað tímabilið verr en hann var á liðsfundi þegar hann fékk flog sem leiddi til þess að hjarta hans stöðvaðist um tíma.