Eldflaugum skotið frá Norður-Kóreu Það er í þrettánda sinn á árinu sem ríkisstjórn Norður-Kóreu gerir tilraun með eldflaugar í trássi við samþykktir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Erlent 28. nóvember 2019 09:07
Skutu viðvörunarskotum að fraktskipi frá Norður-Kóreu Sjóher Suður-Kóreu skaut í nótt viðvörunarskotum að fraktskipi frá Norður-Kóreu sem hafði ratað inn í landhelgi ríkisins í Gulahafinu. Erlent 27. nóvember 2019 08:52
Trump segist vera sá eini sem geti hjálpað Kim Bandaríkin og Suður-Kórea munu fresta heræfingum sem til stóð að halda í von um að það muni bæta líkurnar á samkomulagi við Norður-Kóreu vegna kjarnorkuvopna og eldflauga einræðisríkisins. Erlent 17. nóvember 2019 22:00
Suðurkóresk á rennur rauð vegna blóðmengunar Imjin áin nærri landamærum Norður- og Suður-Kóreu rennur rauð eftir að hún mengaðist af blóði úr svínahræjum. Erlent 12. nóvember 2019 17:42
Kim sagður vilja funda aftur með Trump Svo virðist sem einræðisherra Norður-Kóreu vilji funda með Donald Trump Bandaríkjaforseta í desember. Þetta sagði starfsfólk leyniþjónustu Suður-Kóreu við þarlenda þingnefnd í dag. Erlent 4. nóvember 2019 19:00
Borubrattur Kim Jong-un Staða einræðisríkisins Norður-Kóreu hefur batnað að undanförnu og sérfræðingar segja líkur á samkomulagi við Bandaríkin fara minnkandi. Erlent 1. nóvember 2019 11:00
Skutu eldflaugum í tólfta sinn á árinu Tveimur skammdrægum eldflaugum virðist hafa verið skotið á loft frá Norður-Kóreu í morgun. Erlent 31. október 2019 12:06
Horfði tignarlegur á sjóndeildarhringinn og inn í framtíðina Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, er sagður hafa klifið fjallið Paektu á hvítum hesti, og það án húfu. Fjallið er það hæsta í Norður-Kóreu, 2.750 metrar, og þykir helgur staður. Erlent 16. október 2019 10:45
Bandaríkin og Norður-Kórea hefja viðræður að nýju Bandarískir og norður-kóreskir ráðamenn hafa lagt leið sína til Svíþjóðar þar sem fundað verður um samband ríkjanna. Erlent 5. október 2019 12:36
Norður-Kóreumenn staðfesta eldflaugaskotið Norður-Kóreumenn hafa staðfest að þeir hafi í gær skotið langdrægri eldflaug af skotpalli á hafi úti eins og Suður-Kóreumenn fullyrtu í gær. Erlent 3. október 2019 07:51
Óvissa með framhaldið eftir eldflaugaskot Talið er að Norður-Kórea hafi skotið eldflaug úr einum kafbáta sinna í nótt. Erlent 2. október 2019 18:30
Skutu eldflaug úr kafbáti Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem einræðisríkið gerir tilraunir með slíkar eldflaugar og að þessu sinni var það gert nokkrum dögum áður en viðræður við Bandaríkin um kjarnorkuvopna- og eldflaugaáætlun ríkisins hefjast að nýju. Erlent 2. október 2019 10:22
Kóreumenn kvarta vegna „ögrana“ Bandaríkjanna Yfirvöld Norður-Kóreu segja Bandaríkjunum um að kenna vegna deilunnar um kjarnorkuvopna- og eldflaugaáætlun einræðisríkisins Erlent 30. september 2019 17:59
Fundar með foreldrum mannsins sem lést eftir fangavist í Norður-Kóreu Donald Trump Bandaríkjaforseti mun í kvöld setjast að kvöldverðarborðinu með Fred og Cindy Warmbier. Þau eru foreldrar Ottos Warmbier sem lést í júní 2017, skömmu eftir komu til Bandaríkjanna, eftir að hafa verið í haldi í Norður Kóreu frá ársbyrjun 2016. Erlent 14. september 2019 20:30
Skutu eldflaugum á loft eftir að hafa kallað eftir viðræðum Tveimur eldflaugum var skotið á loft frá Norður-Kóreu og eru þær sagðar hafa flogið um 330 kílómetra. Erlent 10. september 2019 23:29
Kim hellti sér yfir ríkisráðið vegna fellibyls Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, er sagður hafa helt sér yfir háttsetta embættismenn ríkisins á neyðarfundi í dag vegna fellibylsins Lingling sem herjar nú á Kóreuskagann. Erlent 7. september 2019 19:06
Hafna friðarviðræðum vegna heræfinga Norður-Kórea hefur hafnað frekari friðarviðræðum við granna sína í suðri. Erlent 16. ágúst 2019 06:46
Rannsaka 35 tölvuárásir Norður-Kóreu Sameinuðu Þjóðirnar SÞ hafa greint frá því að rannsókn sé hafin að minnsta kosti 35 tölvuárásum sem raktar eru til Norður-Kóreu. Skotmörk árásanna voru að minnsta kosti 17 ríki. Kallað er eftir frekar viðskiptaþvingunum á ríkið. Erlent 13. ágúst 2019 07:39
Eldflaugatilraunir Norður-Kóreu halda áfram í kjölfar hernaðaræfinga Suður-Kóreu og Bandaríkjanna Suðurkóreski herinn segir Norður-Kóreu hafa skotið tveimur óþekktum flugskeytum út á haf frá austurströnd landsins í kvöld, nærri borginni Hamhung. Erlent 9. ágúst 2019 23:32
Ekkert lát á eldflaugatilraunum Norður-Kóreu Norður-Kórea hefur skotið tveimur skotflaugum sem yfirvöld í Suður Kóreu segja nýja tegund stuttdrægra skotflauga. Erlent 2. ágúst 2019 12:45
Norður-Kóreumenn sagðir hafa skotið upp óþekktum skeytum Ekki er liðin vika síðan Norður-Kóreumenn skutu tveimur flugskeytum í Austurhaf til þess að vara nágranna sína í suðri við áframhaldandi hernaðarbrölti. Erlent 30. júlí 2019 22:32
Fagna ósættinu Einræðisstjórn Norður-Kóreu sem á afleitt samband við bæði Suður-Kóreu og Japan virðist ánægð með deilur ríkjanna tveggja. Erlent 30. júlí 2019 06:00
Eldflaugatilraunir Norður-Kóreu ætlaðar til að vara Suður-Kóreu við frekara hernaðarbrölti Eldflaugatilraunir Norður-Kóreu í gær voru ætlaðar til þess að vara nágrannaríkið Suður-Kóreu við afleiðingum þess ef ríkið lætur ekki af áætluðum heræfingum og vopnaþróun. Erlent 25. júlí 2019 23:41
Suður-Kórea segir Norður-Kóreu hafa skotið flaugum út á haf Suður-kóresk yfirvöld hafa greint frá því að nágrannar þeirra í norðri hafi skotið tveimur flaugum út á haf frá austurströnd Norður-Kóreu. Erlent 24. júlí 2019 22:29
Norður-Kóreumenn hóta frekari kjarnorku- og eldflaugatilraunum Sameiginleg heræfing Bandaríkjanna og Suður-Kóreu fer fyrir brjóstið á einræðisstjórn Kim Jong-un. Erlent 16. júlí 2019 11:32
Þvertekur fyrir njósnir í Norður-Kóreu Alek Sigley, ástralski háskólaneminn sem var í haldi í Norður-Kóreu, neitar því að hann sé sekur um njósnir í landinu. Erlent 9. júlí 2019 15:04
Ástralskur stúdent sakaður um njósnir sleppt úr haldi í Norður-Kóreu Alex Sigley stundaði nám við háskóla í Pyongyang og starfaði sem leiðsögumaður þegar fjölskylda hans og vinir hættu að geta náð í hann á samfélagsmiðlum. Sigley deildi oft frásögnum af lífi sínu í Norður-Kóreu á samfélagsmiðlum og á heimasíðu ferðaskrifstofu sinnar. Erlent 6. júlí 2019 15:59
Trump fyrsti forseti Bandaríkjanna sem fer yfir landamærin til Norður-Kóreu Donald Trump Bandaríkjaforseti og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hittust í dag á hlutlausu landamærasvæði Kóreuríkjanna Erlent 30. júní 2019 07:32
„Mér er alveg sama þótt ég móðgi aðra“ Donald Trump, Bandaríkjaforseta, var stillt upp við vegg á blaðamannafundi G20-ríkjanna sem lauk í Osaka í Japan í dag. Á fundinum var hann spurður hvers vegna hann hefði ekki getað svarað spurningum um blaðamanninn Jamal Khashoggi að krónprinsinum í Sádi-Arabíu viðstöddum. Erlent 29. júní 2019 14:01
Trump segist vilja taka í spaðann á Kim Donald Trump Bandaríkjaforseti segir á Twitter síðu sinni í kvöld að eftir að mikilvægum fundi hans með Xi Jingping, forseta Kína, lýkur muni hann halda frá Japan til Suður-Kóreu ásamt forseta Suður-Kóreu, Moon Jae-in. Erlent 28. júní 2019 23:27