Notuðu Sturlu í leyfisleysi til að auglýsa pararáðgjöf Norsku íþróttamennirnir Sturla Holm Lægreid og Johannes Hösflot Klæbo eru tveir af þekktustu íþróttamönnum Vetrarólympíuleikanna í Mílano og Cortina, Klæbo fyrir fern gullverðlaun sín og Sturla fyrir ótrúlegt sjónvarpsviðtal sitt þar sem hann viðurkenndi framhjáhald í beinni sjónvarpsútsendingu. Sport 17.2.2026 07:31
Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. Skoðun 16.2.2026 08:00
Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki. Erlent 14.2.2026 22:36
Sturla bað allt liðið afsökunar í kvöldverði Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu. Sport 12. febrúar 2026 09:30
Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til Tromsø í Norður-Noregi en flogið verður tvisvar í viku til borgarinnar frá 23. október 2026. Viðskipti innlent 11. febrúar 2026 12:15
Sturla biðst afsökunar: „Ekki alveg ég sjálfur þessa dagana og hugsa ekki skýrt“ Norðmaðurinn Sturla Holm Lægreid er líklega umtalaðasti bronsverðlaunahafi sögunnar á Vetrarólympíuleikunum en hann hefur nú beðist afsökunar á ummælum sínum eftir keppnina í gær þegar hann rændi sviðsljósinu af gull- og silfurverðlaunahafanum og gerði framhjáhald og sambandsslit sín að heimsfrétt. Sport 11. febrúar 2026 11:31
Jagland sviptur friðhelgi Evrópuráðið svipti Þorbjörn Jagland, fyrrverandi framkvæmdastjóra sinn, friðhelgi gegn saksókn í kjölfar ásakana um tengsl hans við Jeffrey Epstein. Jagland sætir nú sakamálarannsókn í Noregi fyrir spillingu. Erlent 11. febrúar 2026 09:41
Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum. Sport 11. febrúar 2026 07:59
Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segist ekki geta útilokað þann möguleika að Rússar muni freista þess að ná undir sig landi í eigu Noregs og Finnlands til að tryggja hernaðarinnviði sína á Kólaskaga. Erlent 11. febrúar 2026 07:54
Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni. Sport 11. febrúar 2026 07:02
Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Viðtal við Sturla Holm Lægreid, bronsverðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum, tók óvænta stefnu. Hann viðurkenndi framhjáhald og segir undanfarna viku hafa verið hans verstu á ævinni. Sport 10. febrúar 2026 15:48
Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Tæplega 52 þúsund íslenskir ríkisborgarar, tæp fjórtán prósent þjóðarinnar, voru með skráð lögheimili erlendis í fyrra. Langsamlega flestir þeirra eru búsettir á Norðurlöndunum, 61,7 prósent. Innlent 10. febrúar 2026 10:25
Vill verða Bond illmenni Norski fyrrum fótboltamaðurinn John Carew á sér stóra drauma innan leiklistarinnar. Hann lærði iðjuna í leyni meðan hann var leikmaður Aston Villa á Englandi og hefur getið sér gott orð að undanförnu. Fótbolti 9. febrúar 2026 16:15
Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Norsk yfirvöld hafa opnað rannsókn gagnvart áhrifamiklum fyrrverandi sendiherra og eiginmanni hennar vegna meintrar grófrar spillingar. Rannsókn efnahagsbrotadeildar norsku lögreglunnar (Økokrim) á rætur að rekja til sambands þeirra við Jeffrey Epstein en Mona Juul er grunuð um spillingu í starfi í utanríkisráðuneytinu og Terje Rød-Larsen, eiginmaður hennar, er grunaður um aðkomu að þeirri spillingu. Erlent 9. febrúar 2026 14:28
Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar „Ég vil sjá börnin mín vaxa úr grasi. Mig langar að verða amma. Ég er ekki reiðubúin til að deyja,“ segir Ingibjörg Gísladóttir Lauvland með kökk í hálsinum í samtali við norska ljósmyndarann Olav Svaland. Ingibjörg er Íslendingur búsett í Noregi en fyrir tveimur árum greindist hún með ALS, líkt og faðir hennar á undan og fleiri skyldmenni. Pabbi hennar býr á Íslandi og hefur náð nokkrum bata með lyfjagjöf. Ingibjörg fær ekki lyfið; norska ríkið segir nei. Innlent 8. febrúar 2026 19:02
Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum „Við skiljum þau sterku viðbrögð sem fólk hefur sýnt vegna þess sem fram hefur komið síðustu daga.“ Svona hefst ný yfirlýsing frá norsku konungsfjölskyldunni en styr hefur staðið um krónprinsessuna Mette-Marit eftir að skjöl vörpuðu ljósi á samskipti hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann varð dæmdur fyrir kynferðisafbrot. Erlent 6. febrúar 2026 21:32
Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein. Erlent 6. febrúar 2026 11:34
Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 5. febrúar 2026 22:43
Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, sagðist fyrir rétti í Osló í gær ekki muna eftir að hafa tekið myndir og myndbönd sem eru meðal gagna málsins gegn honum. Myndefnið fannst í síma Høiby sjálfs, og tengist meintu broti hans gegn konu morguninn eftir partý í Skaugum árið 2018. Høiby brast í grát í dómsal í gær og kvartaði sáran yfir veru fjölmiðla í salnum og umfjöllunar þeirra um hans mál. Það hafi reynst honum erfitt að vera þekktur fyrir að vera sonur móður sinnar. Erlent 5. febrúar 2026 08:22
Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, játaði fyrir dómi í gær að hafa rofið skilorð, að hafa brotið gegn fíkniefnalöggjöfinni og ýmis umferðarbrot. Hann neitaði hins vegar sök í fjórum ákæruliðum er vörðuðu nauðgun, brot í nánu sambandi og að hafa myndað kynfæri kvenna án vitundar þeirra. Erlent 4. febrúar 2026 06:47
Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Sonur norsku krónprinsessunnar neitaði fyrir dómi í dag að hafa framið alvarlegustu ofbeldisbrotin sem hann er ákærður fyrir, eins og nauðgun og líkamsárás. Sérfræðingur um konungleg málefni segir málið allt það alvarlegt að krúnan sjálf gæti verið í hættu. Innlent 3. febrúar 2026 21:57
Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð myndaðist fyrir utan héraðsdóminn í Osló í morgun þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga. Erlent 3. febrúar 2026 08:14
Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Vonbrigði norsku þjóðarinnar með krónprinsessu landsins eftir opinberanir í Epstein-skjölunum og málaferli gegn syni hennar rista djúpt, að sögn Íslendings í Noregi. Norðmenn taki því illa þegar orðstír þjóðarinnar sé í húfi. Erlent 2. febrúar 2026 22:31
Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Héraðsdómur í Osló úrskurðaði í dag norska stjúpprinsinn Marius Borg Høiby, son norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, í gæsluvarðhald til 2. mars. Farið var fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir Høiby, sem var handtekinn aftur í gærkvöldi, grunaður um líkamsárás, hótun með hnífi og brot gegn nálgunarbanni. Þar að auki hefjast réttarhöld yfir Høiby á morgun vegna fjölda annarra mála, en hann sætir ákæru vegna 38 meintra brota á lögum, meðal annars fyrir ofbeldi í nánu sambandi, nauðgun og fleiri ofbeldisbrot. Erlent 2. febrúar 2026 13:43