Akureyri og Fram mætast í 8-liða úrslitunum Í dag var dregið í 8-liða úrslit SS-bikarsins í handbolta í karla- og kvennaflokki. Í karlaflokki er aðeins einn úrvalsdeildarslagur þar sem Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Fram. Stórleikurinn í kvennaflokki er án efa viðureign Hauka og Stjörnunnar. Handbolti 22. nóvember 2006 14:15
Stjarnan lagði Hauka á Ásvöllum Stjarnan lagði Hauka 28-26 í leik liðanna í DHL deild kvenna í handbolta á Ásvöllum í kvöld. Rakel Bragadóttir var markahæst hjá Stjörnunni með 8 mörk, þar af 4 úr vítum og þær Anna Blöndal og Jóna Ragnarsdóttir skoruðu 5 hvor. Ramune Pekerskyte skoraði 8 mörk fyrir Hauka og Sandra Stojkovic skoraði 7 mörk. Stjarnan er sem fyrr í 3. sæti deildarinnar en Haukar í 4. sætinu, en Stjarnan á 2 leiki til góða. Handbolti 15. nóvember 2006 19:54
Stjarnan yfir gegn Haukum Stjörnustúlkur hafa yfir 15-12 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðsins gegn Haukum á Ásvöllum í DHL deild kvenna. Rakel Bragadóttir, Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Anna Blöndal hafa skorað 3 mörk hver fyrir Stjörnuna en Sandra Stojkovic hefur skorað 4 mörk fyrir Hauka og Ramune Pekarskyte 3 mörk. Handbolti 15. nóvember 2006 18:53
Valsstúlkur á toppnum Kvennalið Vals hefur náð þriggja stiga forystu á toppi DHL deildarinnar eftir öruggan 28-20 sigur á Fram í Laugardalshöllinni í dag. Haukar lögðu Akureyri á útivelli 27-21. Valur hefur þriggja stiga forskot á Gróttu á toppi deildarinnar. Handbolti 11. nóvember 2006 16:31
FH sá aldrei til sólar gegn Val Valur vann öruggan sigur á FH í DHL-deildkvenna í gær þegar liðin mættust í Kaplakrika í gær. Lokatölur urðu 21-30 þar Valsstúlkur gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik. Handbolti 10. nóvember 2006 06:45
Valur lagði FH Þrír leikir fóru fram í DHL deild kvenna í handbolta í kvöld, en leik ÍBV og Stjörnunnar var frestað vegna veðurs. Valur lagði FH örugglega í Kaplakrika 30-21, Fram vann HK 31-30 í hörkuleik og Grótta vann Akureyri 22-16 fyrir norðan. Valur er í efsta sæti deildarinnar með 13 stig eftir 8 leiki og Grótta í öðru með 12 stig. Handbolti 9. nóvember 2006 21:29
Leik ÍBV og Stjörnunnar frestað Þrír leikir fara fram í DHL deild kvenna í handbolta í kvöld en leik ÍBV og Stjörnunnar sem fara átti fram í Eyjum hefur verið frestað vegna ófærðar. Akureyri og Grótta eigast við á Akureyri og er sá leikur þegar hafinn, en klukkan 19 mætast FH og Valur í Kaplakrika og þá tekur Fram á móti HK. Handbolti 9. nóvember 2006 18:10
Valsstúlkur á toppinn Kvennalið Vals skellti sér á toppinn í DHL deild kvenna í dag með sigri á Akureyri 27-20 í Laugardalshöll. Markahæst í liði Vals var Hildigunnur Einarsdóttir með 10 mörk en Ester Óskarsdóttir skoraði 11 mörk fyrir Akureyri. Valur er í toppsætinu með 11 stig en Stjarnan hefur 10 stig í öðru sætinu en á leik til góða. Handbolti 29. október 2006 17:44
Grótta lagði Hauka Þrír leikir fóru fram í efstu deild kvenna í handbolta í dag. Grótta lagði Hauka örugglega 27-22, Natasja Damljamovic og Eva Kristinsdóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir Gróttu en Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Sandra Stokovic skoruðu 7 hvor fyrir Hauka. Handbolti 28. október 2006 18:01
Haukar lögðu ÍBV Það var sannkallaður stórleikur á dagskrá í DHL deild kvenna í handbolta í kvöld þegar Haukar sóttu ÍBV heim í Vestmannaeyjum. Haukastúlkur gerðu sér lítið fyrir og skelltu Íslandsmeisturunum 29-26. Þá voru tveir leikir í ss bikarnum. Stjarnan burstaði HK 38-25 og FH lagði Akureyri 25-16. Handbolti 25. október 2006 21:43
Grótta burstaði Fram Einn leikur var á dagskrá í ss bikar kvenna í handbolta í kvöld. Grótta burstaði Fram 28-15 á Seltjarnarnesi eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-5. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir var markahæst í liði Gróttu með fimm mörk. Handbolti 24. október 2006 21:19
Haukastúlkur lögðu HK Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í kvöld. Haukar unnu þar sannfærandi útisigur á HK í Digranesi 26-39. Haukar hafa hlotið 6 stig í 4 leikjum í deildinni en HK hefur aðeins unnið einn leik. Handbolti 18. október 2006 21:11
Grótta á toppnum Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í handknattleik í kvöld. Gróttustúlkur styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með auðveldum sigri á HK 32-24 og hefur liðið unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. Handbolti 13. október 2006 20:50
Leik kvöldsins frestað Leik Hauka og Stjörnunnar í DHL-deild kvenna sem fara átti fram í kvöld klukkan 20 hefur verið frestað og fer hann fram á sama tíma annað kvöld. Handbolti 10. október 2006 17:59
Stjarnan stöðvaði Gróttu Eftir að hafa sigrað í þremur fyrstu þremur deildarleikjum sínum brotlenti kvennalið Gróttu í Ásgarði í gær. Leikurinn var jafn og spennandi lengi vel en í síðari hálfleik keyrðu Stjörnustúlkur yfir gesti sína, skoruðu níu mörk í röð og sigruðu á endanum 35-28. Handbolti 9. október 2006 10:00
Valur og Fram unnu Valsstúlkur lögðu HK að velli í Digranesi 23-33 og Framstúlkur unnu Akureyri í Safamýrinni 29-21. Handbolti 7. október 2006 17:42
Grótta lagði Íslandsmeistarana Gróttustúlkur byrja leiktíðina vel í DHL deild kvenna í handbolta en þær lögðu sjálfa Íslandsmeistarana 26-21 á heimavelli sínum á Seltjarnarnesi í kvöld. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir var markahæst í liði Gróttu með 7 mörk, Sandra Paegle skoraði 5 og Kristín Þórðardóttir skoraði 4 mörk. Handbolti 4. október 2006 21:09
Þrír leikir í kvöld Þrír leikir fara fram í DHL-deildinni í handbolta í kvöld, tveir í karlaflokki og þá verður leikur Gróttu og ÍBV í kvennaflokki spilaður klukkan 19 á Seltjarnarnesi eftir að leiknum var frestað í gær. Í karlaflokki mætast Stjarnan og HK í Ásgarði klukkan 19 og Fram tekur á móti Haukum í Framhúsinu klukkan 20. Handbolti 4. október 2006 15:36
Fram skellti Haukum Þrír leikir fóru fram í DHL deild kvenna í handknattleik. Fram vann óvæntan útisigur á Haukum 21-20, Valur lagði Stjörnuna 22-20 í Laugardalshöll og FH lagði lið Akureyrar 21-18 fyrir norðan. Handbolti 3. október 2006 21:42
Leik Gróttu og ÍBV frestað Leik Gróttu og ÍBV sem fara átti fram á Seltjarnarnesi nú klukkan 19 hefur verið frestað vegna ófærðar til og frá Vestmannaeyjum. Leikurinn verður þess í stað á dagskrá annað kvöld klukkan 19 ef veðurguðirnir lofa. Handbolti 3. október 2006 18:38
Þriðja umferðin hefst í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferð DHL-deildar kvenna í handknattleik með fjórum leikjum. Í Laugardalshöll mætast Valur og Stjarnan klukkan 20 og á sama tíma eigast við Haukar og Fram að Ásvöllum. Klukkan 19 eigast við Akureyri og FH í KA heimilinu fyrir norðan og Grótta mætir ÍBV á Seltjarnarnesi. Handbolti 3. október 2006 14:49
Haukar unnu grannaslaginn Fjórir leikir fóru fram í DHL deild kvenna í handbolta í dag. Haukastúlkur lögðu granna sína í FH nokkuð örugglega í Kaplakrika 29-22, Stjarnan valtaði yfir HK 39-21, Grótta lagði Fram á útivelli 26-23 og loks vann ÍBV góðan sigur á Val í Eyjum 30-26. Handbolti 30. september 2006 20:32
HK lagði ÍBV Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð DHL deildar kvenna í handknattleik í kvöld. HK lagði ÍBV nokkuð óvænt í Digranesi 27-24, Grótta lagði FH 26-20 og þá gerðu Reykjavíkurliðin Valur og fram jafntefli 25-25. Handbolti 26. september 2006 22:24
Handboltinn byrjar í kvöld Íslandsmótið í handbolta DHL - deild kvenna hefst í kvöld með þremur leikjum. Stjarnan verður Íslandsmeistari samkvæmt spá forráðamanna liðanna sem birt var í gær og Haukar verða í öðru sæti. Valur, sem spáð er þriðja sæti, tekur á móti Fram klukkan átta í Laugardalshöll. ÍBV, sem lendir í fjórða sæti samkvæmt spánni, mætir HK á útivelli og þá mætast Grótta og FH , en þessir leikir hefjast klukkan sjö. Keppni í karlaflokki hefst annað kvöld , en þar er Valsmönnum spáð titlinum. Handbolti 26. september 2006 13:54
Spá þjálfara og forráðamanna Valsmönnum er spáð Íslandsmeistaratitlinum í DHL-deild karla, samkvæmt spá þjálfara og forráðamanna. Fram er spáð öðru sætinu, síðan koma Haukar, Stjarnan, HK og Akureyri. Fylkismönnum og ÍR-ingum er spáð falli í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í dag. Handbolti 25. september 2006 13:50
Haukar lögðu ÍBV Haukastúlkur fögnuðu í kvöld sigri í meistarakeppni HSÍ þegar þær lögðu Eyjastúlkur örugglega í Eyjum 33-24 eftir að hafa verið yfir 14-11 í hálfleik. Þetta var árlegur leikur Íslands- og bikarmeistaranna í kvennaflokki og annað kvöld fer fram meistarakeppnin í karlaflokki þar sem Íslandsmeistarar Fram tekur á móti Stjörnunni í Safamýrinni. Handbolti 19. september 2006 21:42
Handboltavertíðin hefst á morgun Á morgun hefst handboltavertíð vetrarins með formlegum hætti þegar kvennalið ÍBV og Hauka leiða saman hesta sína í Vestmannaeyjum í meistarakeppni HSÍ. Á miðvikudaginn er svo komið að körlunum þar sem Fram og Stjarnan eigast við í Framhúsinu. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19. Handbolti 18. september 2006 19:15
Valsmenn ætla sér stóra hluti Handknattleiksdeild Vals ætlar sér stóra hluti í karla- og kvennaflokki á næstu leiktíð og nú hefur félagið tilkynnt leikmannahópa sína í báðum flokkum fyrir veturinn. Landsliðsmaðurinn Markús Máni Michaelsson hefur sem kunnugt er ákveðið að snúa aftur á Hlíðarenda og þá hefur félagið gert samning við hinn efnilega Ernir Hrafn Arnarson. Handbolti 23. ágúst 2006 14:17
Einar tekur við ÍBV Einar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari Íslandsmeistara ÍBV í DHL-deild kvenna í handknattleik fyrir næstu leiktíð og tekur hann við af Alfreð Finnssyni sem stýrt hefur liðinu undanfarin tvö ár. Einar kemur úr röðum Fram, þar sem hann hefur starfað sem leikmaður og þjálfari síðustu ár. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV. Sport 10. maí 2006 15:51
Sigur hjá Stjörnunni og Val Fyrri leikirnir í undanúrslitum deildarbikars kvenna fóru fram í kvöld. Stjarnan lagði ÍBV í Eyjum 24-20 og Valsstúlkur lögðu Hauka 23-22 í æsispennandi leik í Laugardalshöllinni. Sport 25. apríl 2006 21:11