Sjávarútvegur

Sjávarútvegur

Fréttamynd

Grá­sleppan hleypir upp störfum þingsins

Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis hefur frestað þingfundi um tuttugu mínútur. Hún sagðist nú hafa hlýtt á rúmlega tuttugu ræður minnihlutans og sagði affarasælast að funda með þingflokksformönnum áður en lengra yrði haldið.

Innlent
Fréttamynd

Ólst upp á sjónum og fann köllunina í stýris­húsinu

„Fólk er oft forvitið um hvað við gerum raunverulega. Ég held að margir geri sér ekki alveg grein fyrir því hvað starfið er fjölbreytt,“ segir Jóna Krista Jónsdóttir en hún vinnur sem stýrimannsnemi á norska skemmtiferðaskipinu Hurtigruten sem siglir frá Hamborg til Honningsvåg. Hún ólst upp á sjó og starfaði ung á fiskibátum en núna sinnir hún leiðarskipulagi og eftirliti um borð.

Lífið
Fréttamynd

Er verið að eyði­leggja lax­veiði­ár landsins?

Fyrir nokkrum dögum síðan kom í ljós skýrsla sem gerð var í kjölfar erfðarannsóknar Matís á löxum í Laxá í Aðaldal. Niðurstöður skýrslunnar ættu að opna augun hjá þeim sem er annt um náttúru Íslands og þá laxastofna sem hér eru en mögulega er smátt og smátt búið að vera að eyðileggja laxveiðiár á Íslandi síðustu áratugi með seiðasleppingum.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg

Enginn friður er í sjónmáli um nýtt lagareldisfrumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Reyndar virðist hitna í kolum fremur en hitt. Ummæli Tryggva Felixsonar, fyrrverandi formanns Landverndar, um Jóhann Pál Jóhannsson umhverfisráðherra hafa vakið verulega athygli.

Innlent
Fréttamynd

Aftur­kalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stór­fellds gá­leysis“

Fiskistofa hefur ákveðið að afturkalla endurvigtunarleyfi Brim hf. í Reykjavík frá og með 9. mars næstkomandi, vegna alvarlegs brots sem átti sér stað þegar hugbúnaðarinnsigli vogar var rofið án þess að gripið væri til viðeigandi ráðstafana, til að mynda að fá vogina löggilda upp á nýtt.

Innlent
Fréttamynd

Þing­maður vænir Guð­mund í Brim um að arð­ræna Græn­lendinga

Þingmaður eina stjórnarandstöðuflokks Grænlands hefur þungar áhyggjur af umsvifum Guðmundar Kristjánssonar, iðulega kennds við Brim, í grænlenskum sjávarútvegi. Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi Grænlendinga í dag spurði hann hvort grænlenska þjóðin yrði af fé vegna innherjaviðskipta til Íslands og hvort Arctic Prime-samsteypan sem Guðmundur er stór eigandi í sé í raun leppur sem gætir hagsmuna Íslendinga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Yfir átta­tíu starfs­mönnum við fisk­eldi sagt upp sem þó fá á­fram boð um vinnu

Alls var 84 starfsmönnum sagt upp í tveimur hópuppsögnum sem tilkynnt var um til Vinnumálastofnunar í janúar. Hópuppsagnirnar voru báðar tengdar starfsemi á sviði fiskeldis og gert ráð fyrir að öllum verði boðið starf að nýju. Í síðustu viku bárust fréttir af því að fiskeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic fish á Vestfjörðum ætli að ráðast í breytingar á kjörum starfsfólks í sjódeildum fyrirtækjanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Efling þekkingar í sjávar­út­vegi skilar árangri

Fátt hefur mótað íslenskt samfélag jafn djúpt og nálægð okkar við hafið. Við erum fiskveiðiþjóð og vitum að sjálfbær nýting auðlinda er forsenda velsældar og fæðuöryggis til framtíðar. Við Íslendingar búum yfir dýrmætri þekkingu á öllum lykilþáttum virðiskeðju sjávarútvegs – frá veiðum til vinnslu og meðferðar sjávarfangs.

Skoðun
Fréttamynd

Harma launalækkanir í fisk­eldi á Vest­fjörðum

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga segist harma að stjórnendur Arnarlax og Arctic fish hafi tekið þá ákvörðun að lækka laun starfsfólks í fiskeldi. Sú ákvörðun mun hafa verið tilkynnt starfsfólki fyrr í mánuðinum og á að taka gildi þann 1. maí.

Innlent
Fréttamynd

Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði

Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýja kvóta­kerfið hennar Hönnu Katrínar

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra heldur því fram að frumvarp hennar til laga um lagareldi sé ekki kvótakerfi. Annað hvort skilur hún ekki eigið frumvarp eða að hún er einfaldlega að segja ósatt.

Skoðun
Fréttamynd

Spenna vegna nýs mats á stærð loðnu­stofnsins

Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Er­lendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Ís­lendingum

Stór hluti þeirra umsagna sem bárust um frumvarp um lagareldi barst erlendis frá og virðist hægt að rekja þær til alþjóðlega fyrirtækisins Patagonia. Atvinnuvegaráðherra og þingmenn hafa lýst yfir áhyggjum vegna þessa og segja erlent fyrirtæki reyna að hafa áhrif á íslenska löggjöf.

Innlent
Fréttamynd

Sjókvíaeldi og fram­tíð villta laxins

Ég hef eytt lífi mínu í íslenskri náttúru. Ég starfa sem veiðileiðsögumaður og stór hluti af árstekjum mínum kemur frá erlendum og íslenskum gestum sem ferðast hingað til að upplifa það sem Ísland hefur einstakt fram að færa: ósnortin víðerni, tærar ár og villtan Atlantshafslax.

Skoðun