Skagafjörður

Skagafjörður

Mannfjöldi: 4.316 (2025). Flatarmál: 5.543 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Sauðárkrókur, Hofsós, Varmahlíð, Hólar í Hjaltadal.


Fréttamynd

Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta

Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra leggjast gegn hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta. Að mati starfsmanna hefur ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Biðlar til fólks að fara var­lega í vetrarfærðinni

Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra biðlar til vegfarenda að fara varlega en vetrarfærð er fyrir norðan með snjó og krapi á vegum. Hann segir landshlutann hafa sloppið betur en á horfðist í óveðri gærdagsins en lögregla hafi haft áhyggjur um tíma af mikilli sjávarhæð við höfnina á Skagaströnd.

Innlent
Fréttamynd

Sköpuðust að­stæður fyrir „snældu­vit­laust veður“ á Siglu­firði

Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir vel hafa gengið hjá björgunarsveitarfólki um land allt í gær þrátt fyrir annríki. Óveður gekk yfir landið og voru björgunarsveitir kallaðar út víða um land, til dæmis vegna gróðurhúss sem fauk á Hellu. Mesta tjónið varð þó líklega á Siglufirði þar sem hviður náðu allt að 55 metrum á sekúndu. Þök fuku af þremur húsum en engin slys urðu á fólki.

Innlent
Fréttamynd

Selur eftir þrjá­tíu og fimm ára rekstur

Ásgeir Björgvin Einarsson opnaði verslunina Hlíðarkaup á Sauðárkróki fyrir 35 árum. Nú hefur hann ákveðið að selja verslunina en segir ákvörðunina ekki hafa verið auðvelda. Nýir eigendur taki við á föstudaginn og hann voni að Hlíðarkaup verði áfram sá staður þar sem fólk komi ekki aðeins til að versla heldur einnig til að hittast, spjalla og eiga góða stund.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Maður á átt­ræðis­aldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun

Júlíus Rúnar Þórðarson hefur verið dæmdur sekur um að nýta sér yfirburðastöðu sína gagnvart skjólstæðingi sem hann þjónustaði og nauðga henni að minnsta kosti einu sinni. Fyrir brotið hlaut hann þriggja ára fangelsisdóm en konan sem hann braut á er andlega fötluð og á við áfengisvanda að stríða sem og minnistap.

Innlent
Fréttamynd

Rann­saka kyn­ferðis­brot og líkams­á­rás á Lands­móti

Tilkynnt var um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal í nótt. Að öðru leyti var nóttin ágæt, að sögn lögreglu á svæðinu. Hvassviðri er á Norðurlandi vestra og gul viðvörun tekur gildi í fyrramálið. Varað er við því að fólk sé á ferðinni á ökutækjum eða með eftirvagna. Telma Tómasson fréttamaður er á Hólum og hefur fylgst með gangi mála.

Innlent
Fréttamynd

„Allir eru hér að skemmta sér í sátt og sam­lyndi“

Landsmót hestamanna, sem að þessu sinni er haldið á Hólum í Hjaltadal, stendur nú sem hæst. Fjöldi gesta er nálægt sex þúsund og von á fleiri áhorfendum í kvöld, sem vilja sjálfsagt ekki missa af hápunktum helgarinnar. „Mótið stendur fyllilega undir væntingum,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LM 2026. „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi, allt er eins og það á að vera. Bara gaman.“

Sport
Fréttamynd

Komu slösuðum til bjargar í Drang­ey

Björgunarsveitin Skagafirðingasveit á Sauðárkróki var kölluð út vegna einstaklings sem hafði slasast á fæti í Drangey í Skagfirði. Viðkomandi var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Innlent
Fréttamynd

Orðinn Há­skóli Ís­lands á Hólum

Samningur um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands var undirritaður á Hólum í Hjaltadal í dag. Með þessu verður Háskólinn á Hólum aðildarháskóli að HÍ og ber nú nafnið Háskóli Íslands á Hólum.

Innlent
Fréttamynd

Lokar fyrir að­gengi að Reykja­fossi og Fossalaug

Landeigandi að Fossalaug og Reykjafossi hefur lokað fyrir aðgengi að svæðinu. Engin ein sérstök ástæða sé fyrir lokuninni en tekur eigandinn fram að ekki sé í boði að rukka fyrir þjónustu og firri sig ábyrgð á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Öll hí­býli full­bókuð og hest­húsin verða stapp­full

Undirbúningur Landsmóts hestamanna er á lokametrunum, en búist er við allt að átta þúsund gestum, þar á meðal fjölda útlendra áhugamanna um íslenska hestinn. Mótssvæðið er sagt tilbúið fyrir þá hundruð hesta sem koma fram í keppni og sýningu, en samningaviðræður við veðurguðina standa enn yfir, að sögn framkvæmdastjóra mótsins.

Innlent
Fréttamynd

Fær annan skóla undir sinn væng

Alþingi hefur samþykkt frumvarp um háskólasamstæður sem felur í sér að Háskóli Íslands og Hólaskóli - Háskólinn á Hólum mega sameinast undir merkjum Háskóla Íslands. Hólaskóli fær heitið Háskóli Íslands á Hólum.

Innlent
Fréttamynd

„Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“

Tíu ára sonur Elísu Óskar Ómasdóttur og átta ára frændi hans römbuðu á torkennilegan hlut í vikunni við Miklavatn hjá Gili í Skagafirði. Elísa vissi fyrst ekki hvað var um að ræða en eftir að hún leitaði á netinu brá henni heldur í brún þegar niðurstöðurnar gáfu til kynna að um pólska eða þýska sprengju væri að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land

Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu.

Innlent
Fréttamynd

„Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaup­fé­laginu

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í gær karlmann í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fjársvik sem beindust að bróður hans. Á árunum 2016 til 2021 sveik maðurinn út vörur úr verslunum Kaupfélags Skagfirðinga, það eru Skagfirðingabúð, Verslun Eyri og Bifreiðaverkstæði kaupfélagsins. Það gerði hann með því að skuldfæra vörur á viðskiptareikning sem hann hafði vitneskju um.

Innlent
Fréttamynd

Gjöld fyrir frí­stund rokið upp

Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Að fljóta sofandi að feigðar­ósi?

Kosningar eru krossgötur. Þetta eru tímamót þar sem við þurfum að spyrja okkur stórra spurninga og ég ætla að byrja á þeirri spurningu sem brennur á mér. Er Skagafjörður að fljóta sofandi að feigðarósi?

Skoðun