Klæddu þig eins og Taylor Swift Athygli vakti að Taylor Swift var ekki jafn kvenleg til fara og oft áður þegar sást til hennar í London í vikunni. Söngkonan sem er þekkt fyrir sinn dömulega stíl var klæddi í húðlitaðar þröngar buxur, sléttbotna skó og köflótta skyrtu. Við dressið bar hún klassíska fallega tösku úr brúnu leðri en nýji stíllinn fór henni óneitanlega vel. Tíska og hönnun 9. október 2012 11:57
Kjóllinn entist ekki kvöldið Söngkonan og X Factor dómarinn Nicole Scherzinger stal senunni svo um munaði á rauða dreglinum fyrir eitt af mörgum úrslitakvöldum X Factor í London um helgina í mjög svo stuttum, gylltum kjól. Stundum borgar sig þó líklega að velja þægindi fram yfir útlitið því kjóll þokkagyðjunnar entist ekki út kvöldið en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá þurfti Scherzinger að halda kjólnum uppi þar sem rennilásinn hafði gefið sig. Tíska og hönnun 8. október 2012 10:22
Ber að ofan fyrir Esquire Tímaritið Esquire hefur kosið leikkonuna Milu Kunis kynþokkafyllstu konu heims. Hún prýðir forsíðu nóvemberheftis tímaritsins í sexí stellingu. Tíska og hönnun 8. október 2012 00:01
Svona á að mæta á svæðið! Glamúrgyðjan Kim Kardashian kann svo sannarlega að vekja athygli. Hún mætti á hótelið sitt í Miami í rauðum síðkjól og engum brjóstahaldara svo tekið var eftir. Tíska og hönnun 7. október 2012 13:00
Kjólastríð! Sjóðheitir spéfuglar Hnyttnu leikkonurnar Aubrey Plaza og Leslie Mann eru báðar stórglæsilegar í þessum litríka kjól frá Rodarte. Tíska og hönnun 7. október 2012 12:00
Best klæddu stjörnur vikunnar Það er ekki að sjá að haustið sé komið miðað við myndirnar af best klæddu stjörnum vikunnar en það voru þær Olivia Palermo, Kim Kardashian, Anna Kendrick, Taylor Swift og Karlie Kloss sem þóttu bera af. Tíska og hönnun 6. október 2012 08:00
Steldu götustílnum Það er komin helgi og eflaust margir sem ætla að kíkja aðeins í búðir og skoða hausttískuna. Í meðfylgjandi myndasafni má fá smá innblástur af flottum fatnaði fyrir helgina eða bara haustið eins og það leggur sig en myndirnar eru meðal annars teknar á götum New York. Tíska og hönnun 5. október 2012 13:44
Eru Twiggy augnhár það nýjasta? Glee leikkonan Dianna Agron vakti verðskuldaða athygli á Miu Miu vor og sumar tískusýningunni á dögunum enda var hún eins og klippt út úr sjöunda áratugnum. Leikkonan klæddist fagurbláum kjól og var förðuð í anda Twiggy en stór og mikil augnhár hafa verið mjög áberandi undanfarið og verða það áfram í vetur. Spurning hvort Twiggy stíllinn málið! Tíska og hönnun 5. október 2012 12:35
Tískan að hausti … Haustið er komið í allri sinni dásamlegu dýrð og dulúð. Að því tilefni fékk Lífið fagfólk með meiru til að setja saman það heitasta í tísku, hári og förðun. Tíska og hönnun 5. október 2012 11:30
Alveg með'etta í París Leikkonurnar Emma Stone, Dianna Agron, Amanda Seyfried og Chloe Sevigny stálu senunni þegar Miu Miu kynnti vor- og sumarlínuna á tískuvikunni í París í gær. Tíska og hönnun 4. október 2012 19:00
Með regnhlíf í stíl við varalitinn Leikkonan Emma Stone var stórglæsileg þegar hún mætti á vor og sumar tískusýningu Miu Miu í París í vikunni. Stone var mjög klassísk til fara en kryddaði hressilega upp á útlitið með kynþokkafullum krullum og rauðum varalit. Athygli vakt að regnhlíf leikkonunnar var í stíl við varalitinn Tíska og hönnun 4. október 2012 16:15
Greiddu þér eins og súpermódel New York, London, Mílanó, París - hér má sjá fimmtán frábærar hugmyndir af einföldum en flottum greiðslum beint af tískupöllunum víðs vegar um heim. Þrátt fyrir að tískuvikurnar undanfarið hafi snúist um vor og sumartísku næsta árs er alltaf gaman að tileinka sér eitthvað nýtt af pöllunum. Mikill þokki hefur verið í hárgreiðslunum og margar þeirra eru auðveldar í framkvæmd. Láttu reyna á það... Tíska og hönnun 4. október 2012 14:00
Svona klæða módelin sig Meðfylgjandi myndir sýna fyrirsætur á förnum vegi á götum stórborganna New York, London, Míllanó og Parísar undanfarnar vikur á milli þess sem þær sýndu hátískuna á tískuvikum. Það vekur athygli að flestar velja þær sér flatbotna og þægilega skó og fatnað úr þæginlegum efnum til að klæðast á milli verkefna. Tíska og hönnun 4. október 2012 11:36
Mat og tísku tvinnað saman Ágústa Margrét Arnardóttir hönnuður stendur fyrir viðburðinum Fashion with Flavor sem fram fer á Grand hóteli um helgina. Hugmyndin að baki viðburðinum er að sýna fullnýtingu íslenskra hráefna á einstakan hátt. Tíska og hönnun 4. október 2012 00:01
Með mömmu á fremsta bekk á tískusýningu Það þarf líklega enga sérfræðinga til að átta sig á því að Emme Maribel, dóttir Jennifer Lopez stefnir í að verða svolítil díva eins og mamma. Kannski ekki nema von þar sem hún er nú þegar búin að stíga sín fyrstu skref í tískubransanum með því að landa verkefni hjá Gucci. Tíska og hönnun 3. október 2012 14:00
Steldu stílnum Leikkonan Rachel Bilson er með frekar afslappaðan og klassískan fatastíl miðað við margar Hollywoodstjörnur en einmitt það gerir hana svo ekta og yndislega. Auðvelt er að tileinka sér stíl leikkonunnar en í meðfylgjandi myndasafni má fá hugmyndir að svipuðum flíkum og hún klæddist í Soho í gær þegar hún fór að versla með vinkonu sinni. Tíska og hönnun 3. október 2012 13:41
Bomba í bleiku Bjútíbomban Jennifer Lopez vakti verðskuldaða athygli á tískuvikunni í París í gær þegar hún kíkti á vor- og sumarlínu Valentino. Tíska og hönnun 3. október 2012 00:01
Dóttir Michaels Jacksons stælar Miley Poppsöngkonan Miley Cyrus kom öllum að óvörum þegar hún klippti á sér hárið fyrir stuttu og litaði það ljóst. Miley skapaði nýtt trend og er Paris Jackson ein af þeim sem hefur apað eftir henni. Tíska og hönnun 3. október 2012 00:01
Fyrirsætuslagur! Hvor er flottari? Fyrirsæturnar Rebecca Romijn og Kimora Lee Simmons vekja báðar óskipta athygli í þessum klæðilega kjól frá Issa London. Tíska og hönnun 3. október 2012 00:01
Stórglæsileg í síðkjól Kim Kardashian var stórglæsileg í bláum síðkjól þegar hún yfirgaf hótel sitt í Miami í gær. Síðkjólnum klæddist hún sérstaklega fyrir fjölskyldumyndatöku. Kardashian fjölskyldan hefur það fyrir sið að taka mjög reglulega mynd af allri stórfjölskyldunni, kannski ekki þessa klassísku eins og við flest þekkjum heldur stíliseraða og útpælda þar sem fagfólk sér um allt frá a - ö. Eins og sjá má var raunveruleikastjarnan flott að vanda. Tíska og hönnun 3. október 2012 00:01
Nautnalegir á nærbuxunum Þeir eru margir Hollywood-hönkarnir sem hafa auglýst nærfatnað. Eins og gefur að skilja eru þeir langt frá því að vera kappklæddir þegar þeir skella sér í módelhlutverkið. Tíska og hönnun 2. október 2012 20:00
Leynitrix förðunarmeistarans Ég er mjög hrifin af dökkum vörum og „smokey" augum í haust og vetur og finnst gaman að prófa mig áfram... Tíska og hönnun 2. október 2012 16:15
Heitustu trendin í haust Haustið er án efa uppáhalds árstíð margra fyrir ýmsar sakir. Bæði er náttúran í sínu fegursta pússi, kertaljósin eru tendruð á ný eftir sumarbjartar nætur og síðast en ekki síst fyllast búðirnar af fallegum fatnaði fyrir veturinn. Tíska og hönnun 2. október 2012 15:00
Hjördís Gissurar heimsótt á Kjalarnesið Meðfylgjandi má horfa á þriðja þátt Sindra Sindrasonar sem ber heitið Heimsókn þar sem hann tekur hús á Hjördísi Gissurardóttur, fagurkera með meiru... Tíska og hönnun 2. október 2012 12:30
Blái augnskugginn er kominn aftur Eflaust héldu margir að blái augnskugginn myndi seint snúa aftur en sú er nú ekki raunin því hann er það heitasta á tískupöllunum um þessar mundir. Glansáferðin er reyndar ekki sú sama og áður var og stíllinn aðeins klassískari. Eins og sjá má hér er hann notaður sem breiður eyliner og er ekki hægt að segja annað en að hann komi vel út, eða hvað finnst þér? Tíska og hönnun 2. október 2012 12:16
Á fimmtíu pör af skóm „Ég viðurkenni að ég er forfallinn skófíkill en það er bara fallegt. Fólk hefur verri fíknir en þetta,“ segir rithöfundurinn og fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason. Tíska og hönnun 2. október 2012 05:00
Með hermannalúkkið á hreinu Poppprinsessan Rihanna tók sig vel út á LAX-flugvelli í Los Angeles á sunnudaginn í vígalegum klæðnaði sem minnti á hermannaklæði. Tíska og hönnun 2. október 2012 00:01
Stílstríð! Megapæjur í míníkjólum Lífið hjó eftir því að píurnar Sophia Bush og Kristin Cavallari hafa báðar klæðst þessum skemmtilega míníkjól frá Olcay Gulsen. Tíska og hönnun 30. september 2012 09:00
Hefur framleitt 700 stykki af Jóni forseta "Þetta litla verkefni hefur aldeilis undið upp á sig,“ segir vöruhönnuðurinn Almar Alfreðsson en lágmyndir hans af Jóni Sigurðssyni hafa slegið í gegn undanfarið. Almar fékk hugmyndina fyrir tveimur árum er hann vantaði jólagjöf fyrir ættingja og vini. Hann var þá nemi í Listaháskóla Íslands í vöruhönnun. Tíska og hönnun 29. september 2012 11:00
Dæmdi danskar fyrirsætur „Við fengum símtal frá framleiðendum þáttanna og vorum beðnir um að vera með. Við slógum auðvitað til enda er þetta frábær auglýsing fyrir stofuna og skemmtileg reynsla,“ segir Kristinn Óli Hrólfsson. Hann rekur hárgreiðslustofuna Mugshot í Kaupmannahöfn ásamt Mike Nielsen. Þeir komu fram sem gestadómarar í þætti af sjónvarpsþáttaröðinni Danmarks Næste Topmodel á fimmtudag og sáu einnig um að breyta útliti keppenda þáttanna. Tíska og hönnun 29. september 2012 11:00