Vafði byssunni inn í peysu til að smygla henni inn á Dubliner Karlmaður rétt undir þrítugu hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, með því að hleypa af haglabyssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í mars síðastliðnum. 26.6.2023 13:44
Reglur um hljóðupptökur viðvarandi vandamál hjá Íslandsbanka Í sátt um greiðslu sektar Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum kemur fram að bankinn hafi brotið ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga, með því að skrá ekki og varðveita símtalsupptökur vegna 162 símtala sem starfsmenn hans áttu í tengslum við útboðið. 26.6.2023 11:39
Sáttin birt: Flokkuðu fjárfesta ranglega, tóku ekki upp símtöl og villtu um fyrir Bankasýslunni Seðlabankinn hefur birt samkomulag við Íslandsbanka um að ljúka máli bankans vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum. Meðal þess sem kemur fram í samkomulaginu er að stjórn bankans og bankastjóri hafi ekki innleitt stjórnarhætti og innra eftirlit með fullnægjandi hætti. Þá voru átta almennir fjárfestar flokkaðir sem sem fagfjárfestar með röngum hætti. 26.6.2023 09:23
Smyglaði amfetamíni í vínflöskum og hlaut þungan dóm Pólsk kona var í dag sakfelld í Landsrétti fyrir að hafa staðið að innflutningi á tæpum fjórum lítrum af amfetamínbasa frá heimalandinu. Landsréttur mildaði dóm hennar verulega, úr fimm og hálfu ári í fjögur ár. 23.6.2023 16:34
Dómar í saltdreifaramálinu mildaðir um tvö ár Dómar þeirra Halldórs Margeirs Ólafssonar og Ólafs Ágústs Hraundal fyrir hlut þeirra í saltdreifaramálinu svokallaða voru mildaðir um tvö ár í Landsrétti í dag. Í héraði voru þeir dæmdir til þyngstu mögulegu refsingar, tólf ára fangelsisvistar. Aðrir dómar í málinu voru einnig mildaðir um tvö ár og einn var skilorðsbundinn. 23.6.2023 15:13
Hæstiréttur lækkaði laun verjenda um margar milljónir Formaður Lögmannafélags Íslands segir aukna tilhneigingu dómstóla til þess að virða framlagðar tímaskýrslur verjenda að vettugi hættulega þróun. Svo gæti farið að aðeins þeir efnameiri fái góða málsvörn í sakamálum. 23.6.2023 14:02
Bjóða körfurnar velkomnar heim Körfuknattleiksdeild ÍR hefur boðað til körfuboltamóts í dag við Seljaskóla til þess að fagna því að körfunum var skilað á körfuboltavöllinn við skólann. 22.6.2023 14:33
Leitar til umba vegna fjársveltis Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, HSS, hefur ákveðið að óska eftir áliti Umboðsmanns Alþingis á ágreiningsmálum milli hans og heilbrigðisráðherra, enda hafi verulega skort á efnislegum svörum af hálfu ráðuneytisins við erindum hans og niðurstöðum skýrslna, sem unnar hafa verið fyrir stofnunina. 22.6.2023 12:01
Systkinin leggjast gegn yfirtökunni Brimgarðar, langsamlega stærsti eigandi fasteignafélagsins Eikar, leggjast gegn yfirtökutilboði Regins í félagið. Brimgarðar eru dótturfélag Langasjós, eignarhaldsfélags Mata-systkinanna svokölluðu. 22.6.2023 11:33
„Betra en að vera dæmdur í fjórtán ára fangelsi“ Hæstiréttur staðfesti í dag sekt allra fjögurra sakborninga í einu umtalaðasta morðmáli íslandssögunnar, morðinu í Rauðagerði. Sakborningar hlutu töluvert mildari dóma en í Landsrétti. 21.6.2023 19:53