Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Bændur æfir vegna pitsaostsins

Samtök bænda leggjast eindregið gegn áformum fjármála- og efnahagsráðherra um breytta tollflokkun pitsaosts með viðbættri jurtaolíu. Tollflokkun ostsins hefur verið umdeild frá árinu 2020 og hefur ítrekað komið til kasta dómstóla.

Breytt fyrir­komu­lag og samskiptastjórinn kveður

Breki Logason, samskiptastjóri Orkuveitunnar, og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, hafa samið um starfslok þess fyrrnefnda vegna fyrirhugaðra breytinga á samskiptamálum fyrirtækisins.

Örvar og María Elísa­bet nýtt listapar

Tónlistarmaðurinn Örvar Smárason og rithöfundurinn María Elísabet Bragadóttir eru nýtt par. Þau geisluðu á útgáfuhófi Margrétar Bjarnadóttur í Tjarnarbíói í vikunni.

Ungir fatasalar möluðu gull

Metta sport seldi íþróttafatnað fyrir 733 milljónir króna og hagnaðist um 252 milljónir í fyrra. Félagið er í 80 prósenta eigu Péturs Kiernan og 20 prósenta eigu Samúels Ásberg O'Neill, sem báðir eru á þrítugsaldri. Einn helsti keppinautur Metta, Kenzen, seldi fyrir 245 milljónir og hagnaðist um sextíu milljónir. Árið áður hafði Kenzen aðeins hagnast um 250 þúsund krónur. Þá sækir nýja fatamerkið Takk Takk í sig veðrið.

Játar inn­brot í búin

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ ásamt fleiri innbrotum í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi.

Ríkið lagði eldri borgarana

Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá máli þriggja Íslendinga gegn íslenska ríkinu. Málið hefur í fjölmiðlum hér á landi yfirleitt verið kennt við Gráa herinn og varðaði breytingar á íslenska lífeyriskerfinu sem gerðar voru 2016 og 2017.

Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói

Smárabíó og Ölgerðin hófu samstarf frá og með 15. september og því hefur Coca-Cola vikið fyrir Pepsi og Pepsi Max. Þyrstir bíógestir höfðu getað fengið sér tvennuna sígildu, popp og kók, frá árinu 2017.

Sjá meira