267 greindust innanlands 267 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 111 af þeim 267 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 156 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent. 22.12.2021 10:57
Hafa þurft að loka deildum á leikskólum í Hafnarfirði vegna smita Loka hefur þurft deildum á leikskólunum Hraunvallaskóla og Stekkjarási í Hafnarfirði vegna kórónuveirusmita sem þar komu upp. Fjöldi barna og starfsmanna leikskólanna eru nú í sóttkví vegna þessa. 22.12.2021 10:09
Einar Sigursteinn tekur við sem forstöðumaður orkusviðs N1 Einar Sigursteinn Bergþórsson hefur verið ráðinn í stöðu forstöðumanns orkusviðs N1. 22.12.2021 09:05
Ekki ósennilegt að Allir vinna verði framlengt „að einhverju leyti“ Ekki er ósennilegt að átakið Allir vinna verði framlengt að einhverju leyti. Málið verður tekið til umræðu í fjárlaganefnd milli annarar á þriðju umræðu á þingi. 22.12.2021 08:14
Gert ráð fyrir forgangsbraut milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins Alþjóðlega hönnunar- og skipulagsstofan KCAP, með höfuðstöðvar í Sviss, varð hlutskörpust í samkeppni sem Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hélt um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll til ársins 2050. 22.12.2021 07:30
Hildur og Elín Valgerður í stjórnendastöður hjá Hörpu Hildur Ottesen hefur tekið við starfi markaðs- og kynningarstjóra Hörpu og Elín Valgerður Margrétardóttir hefur verið ráðin í nýtt starf mannauðs- og gæðastjóra Hörpu. 22.12.2021 07:15
Yfirgnæfandi líkur á rauðum jólum suðvestantil Veðurstofan spáir norðaustlægri eða breytilegri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, og dálitlum éljum við norður- og austurströndina í dag. Annars staðar verður víða léttskýjað og frost núll til tíu stig þar sem kaldast verður í innsveitum á Norðausturlandi, en frostlaust syðst. 22.12.2021 07:10
Munu fljúga tvisvar í viku til Vestmannaeyja Samkomulag hefur náðst milli flugfélagsins Ernis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um að Ernir muni sinna áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja tvisvar í viku. Flogið verður á mánudögum og föstudögum. 21.12.2021 14:58
Tuttugu milljónir til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey Ríkisstjórnin hyggst veita tuttugu milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey. 21.12.2021 14:48
Leikskólakennarar lýsa yfir vonbrigðum með að leikskólum verði ekki lokað Stjórnir Félags leikskólakennara (FL) og Félags stjórnenda leikskóla (FSL) hafa lýst yfir vonbrigðum með þá ákvörðun að leikskólum verði ekki lokað milli jóla og nýárs vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar. 21.12.2021 13:48