Ferðir á leiðum 19 og 31 falla niður vegna smita og sóttkvíar Allar ferðir hafa verið felldar niður á leið 31 í dag. Sumar ferðir falla einnig niður fyrir hádegi á leið 19. 13.8.2021 07:27
Léttir víðast til og hiti að tuttugu stigum Landsmenn mega reikna með rólegri norðlægri átt í dag og dátítilli rigningu á Austfjörðum. Léttir víða til í öðrum landshlutum, fyrst sunnan- og vestanlands. 13.8.2021 07:06
Legsteinasafn Páls í Húsafelli fer ekki fet Legsteinasafn Páls Guðmundssonar verður áfram á Húsafelli. Komist var að þeirri niðurstöðu rétt fyrir klukkan fjögur að hús fyrir legsteinasafn hans yrði hvorki rifið né fært. 12.8.2021 13:57
Umdeilt fjölmiðlafrumvarp samþykkt og stjórnin missir meirihlutann Neðri deild pólska þingsins samþykkti í gær umdeilt fjölmiðlafrumvarp sem stjórnarandstæðingar segja miða að því að múlbinda sjónvarpsstöð sem hefur verið gagnrýnin á störf stjórnar landsins. 12.8.2021 08:03
Signý Sif tekur við af Sigfúsi hjá Eyri Invest Signý Sif Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármögnunar hjá Eyri Invest hf. Sigfús Oddsson, sem sinnt hefur starfinu frá 2011 hefur ákveðið að láta af störfum. 12.8.2021 07:16
Hiti að 21 stigi og hlýjast norðaustantil Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt í dag, golu eða kalda. Léttskýjað verður norðaustantil á landinu í dag, en skýjað með köflum annars staðar og jafnvel síðdegisskúrir á stöku stað. 12.8.2021 07:10
Egill tekur við af Sveini Inga hjá Verkís Egill Viðarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Verkís hf. Hann tók við starfinu í upphafi mánaðar. 11.8.2021 07:41
Skýjað að mestu en áfram hlýtt Landsmenn mega eiga von á fremur hægri austlægri eða breytilegri átt í dag en dálítið hvassara allra syðst, undir Eyjafjöllum, líkt og í gær. 11.8.2021 07:10
Bein útsending: Íslenskukennsla í fjölmenningarsamfélagi Málþing um íslenskukennslu í fjölmenningarsamfélagi er yfirskrift málþings sem fram fer í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í dag. Málþingið stendur frá 9:30 til klukkan 16, en á meðal gesta eru Elíza Reid forsetafrú og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. 9.8.2021 09:16
Bein útsending: Ný skýrsla Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna kynnt Ný skýrsla Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, sem sögð er fela í sér alvarlega aðvörun til stjórnvalda í ríkjum heims um að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda, verður kynnt á blaðamannafundi sem hefst núna klukkan átta. 9.8.2021 07:43