Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Þrír stjórnmálaflokkar hafa náð samkomulagi um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi en stjórnarflokkarnir munu þurfa að reiða sig á stuðning annarra flokka til að ná málum í gegn. Rob Jetten, leiðtogi miðjuflokksins D66 sem er hliðhollur Evrópusambandinu, segir samstarfsflokkana vera ólma í að hefjast handa við stjórnvölinn eftir langar og flóknar viðræður um stjórnarmyndun. 28.1.2026 08:41
Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Íslensk stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um að 27. janúar verði framvegis opinber minningardagur helfararinnar hér á landi, líkt og í nágrannalöndum. Starfshópur sem Katrín Jakobsdóttir skipaði í sinni tíð sem forsætisráðherra skilaði í gær skýrslu með tillögum um það hvernig megi minnast helfararinnar hér á landi. Hópurinn leggur meðal annars áherslu á aukna fræðslu um sögu helfararinnar og aðdragandann að henni, en gerir einnig tillögu að mögulegum breytingum á hegningarlögum og um formlega afsökunarbeiðni. 28.1.2026 08:03
Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Miðflokkurinn byrjaði í fyrradag að kynna fólk á lista flokksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og hyggst halda áfram að kynna einn frambjóðenda á dag á næstu dögum. Ekki liggur endanlega fyrir hvenær fullur listi verður kynntur eða hulunni svipt af því hver verður oddviti flokksins í Reykjavík. 27.1.2026 14:41
Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ætlar að taka 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík sem hún tryggði sér í prófkjöri flokksins á laugardaginn, þegar hún tapaði slagnum um oddvitasætið. Hún óskar Pétri Marteinssyni aftur til hamingju með sigurinn og öllum þeim sem tryggðu sér sæti á lista og segist áfram ætla að vinna í þágu borgarinnar á grundvelli hugsjóna sinna og jafnaðarstefnunnar. 27.1.2026 12:55
Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Dönsk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um beinan peningastyrk til barnafjölskyldna, lífeyrisþega, bótaþega og námsmanna sem ætlað er að mæta hækkandi matvöruverði í landinu. Um er að ræða skattfrjálsa einskiptisgreiðslu, svokallaðan „matartékka“, sem nemur tæpum 50 þúsund íslenskum krónum til einstaklinga sem uppfylla skilyrði til greiðslunnar, en tæpar 20 þúsund krónur til námsmanna. Þá standa yfir viðræður milli stjórnmálaflokka um lækkun virðisaukaskatts á matvöru. 27.1.2026 11:40
Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin í Reykjavík óskar nú eftir tilnefningum á lista flokksins fyrir kosningarnar í vor. Um helgina var valið í efstu sex sætin á lista flokksins, en nú leitar uppstillingarnefndin að fólki sem vill sitja í sætum 7. til 46. á lista. Enn liggur ekki fyrir hvort Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ætli að taka 2. sætið á listanum sem hún tryggði sér í prófkjörinu um helgina þar sem hún tapaði oddvitasætinu. Gert er ráð fyrir að endanlegur listi verði kynntur í síðasta lagi í lok febrúar. 27.1.2026 10:51
Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Dómsmálaráðuneytið og undirstofnanir þess hafa frá árinu 2018 til 2025 gert 27 starfslokasamninga sem kostað hafa ríkiskassann alls um 400 milljónir. Á sama tímabili hafa fjórar undirstofnanir umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins gert sjö starfslokasamninga og nam heildarkostnaður vegna þeirra 32,7 milljónum. 27.1.2026 08:48
„Margt óráðið í minni framtíð“ Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og áður Pírata, segir margt óráðið um sína framtíð eftir að niðurstöður prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík lágu fyrir um helgina. Dóra sóttist eftir 3.-4. sæti á lista en hafði ekki erindi sem erfiði. Hvort sem hún fái tækifæri til að taka sæti á lista eða ekki segist Dóra ætla að leggja hönd á plóg í kosningabaráttu Samfylkingarinnar í vor og segist styðja nýjan oddvita flokksins. 26.1.2026 15:40
Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Ísraelski herinn segist hafa endurheimt líkamsleifar síðasta gíslsins sem enn var saknað á Gasa eftir hryðjuverkaárás og gíslatökur Hamas í október 2023. Nokkuð umfangsmikil leit hafði staðið yfir að Ran Gvili, sem var sá síðasti sem enn var saknað eftir að samkomulag um vopnahlé milli Ísraela og Hamas tók gildi í október síðastliðnum. 26.1.2026 14:22
Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, verður sjálfkjörinn á lista flokksins í Reykjavík til framboðs í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi verður einnig sjálfkjörin í annað sætið. Aðrir fulltrúar verða kynntir á kjördæmisþingi Framsóknar þann 7. febrúar. 26.1.2026 12:26