Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 11:06 Bad Bunny átti sviðið í hálfleik. Getty/Neilson Barnard Það ríkti mikil eftirvænting fyrir hálfleikssýningu Ofurskálarinnar þar sem stórstjarnan Bad Bunny frá Púertó Ríkó var aðalnúmerið. Venju samkvæmt var öllu tjaldað til en Lady Gaga og Ricky Martin komu meðal annars einnig við sögu.
Seattle Seahawks urðu NFL-meistar eftir stórsigur á New England Patriots í Ofurskálinni sem fór fram í Santa Clara í Kaliforníu í nótt. Þetta er í annað skiptið sem Lombardi-bikarinn fer til Seattle og í fyrsta sinn í tólf ár. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport í nótt, en í spilaranum hér að neðan má sjá hálfleiksatriðið úr útsendingunni. Klippa: Bad Bunny á Ofur skálinni Benito Antonio Martínez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, átti sviðið þar sem dansað var dátt og stemningin gríðarleg. Hann tók mörg af sínum þekktustu lögum og nýtti tækifærið meðal annars til að senda skilaboð sem stuðla að sameiningu, eins og því er lýst í umfjöllun CNN. „Guð blessi Ameríku,“ sagði Bad Bunny meðal annars undir lok atriðisins, áður en hann síðan taldi upp svo gott sem öll ríki Suður- og Norður Ameríku, allt frá Kanada til Síle. Um leið báru hann og dansarar þjóðfána ríkjanna og á stóru ljósaskilti í bakgrunni stóð „það eina sem er sterkara en hatur er ást.“ Lady Gaga glæsileg á sviði ásamt Bad Bunny í hálfleik Ofurskálarinnar. Getty/Kathryn Riley Atriðið í hálfleik vekur jafnan ekki minni athygli en leikurinn sjálfur, en ákvörðun NFL um að fá Bad Bunny til að troða upp í hálfleik vakti athygli og þótti jafnvel umdeild. Það sendi ákveðin skilaboð að fá spænskumælandi flytjanda frá Púertó Ríkó til að troða upp á sama tíma og stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hafi farið mikinn og gengið hart fram gegn innflytjendum í Bandaríkjunum. Ricky Martin mætti einnig til leiks í hálfleiksatriðinu.Getty/Chris Graythen Sjálfur virtist forsetinn ekki hafa verið hrifinn af flutningi Bad Bunny, sem eðli málsins samkvæmt var nær alfarið á spænsku. Trump mætti ekki á Ofurskálina, en lýsti skoðun sinni á Bad Bunny á samfélagsmiðlum. „Hálfleikssýningin er algjörlega ömurleg, ein sú versta allra tíma!“ skrifaði Trump meðal annars á Truth Social. „Það skilur enginn stakt orð,“ bætti hann við.
Púertó Ríkó Ofurskálin Tónlist Bandaríkin Bandaríski fótboltinn NFL Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira