Fordæmir offors SA gagnvart starfsmönnum Icelandair Samninganefnd verslunarmanna fordæmir það „offors“ sem hún segir Samtök atvinnulífsins hafa sýnt af sér gagnvart fámennum hópi starfsmanna við farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair í Keflavík í vikunni. Þrátt fyrir þetta hafi ásættanleg niðurstaða náðs í kjaraviðræðum í nótt. 14.3.2024 17:56
SA og verslunarmenn hafa undirritað kjarasamning Samtök atvinnulífsins og verslunarmenn undirrituðu kjarasamning nú á fyrsta tímanum. Samningurinn byggir að miklu leyti á þeim kjarasamningum sem undirritaðir voru í síðustu viku og gildir til fjögurra ára. Ekkert verður af boðuðum verkföllum VR hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli og verkbanni Samtaka atvinnulífsins á skrifstofufólk í VR. 14.3.2024 00:39
Enn fundað í Karphúsinu Enn funda samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og verslunarmanna í Karphúsinu. Nefndirnar ræða nú innanhústillögu sem ríkissáttsemjari lagði fyrir þær fyrr í dag eftir margra daga málamiðlun. 13.3.2024 23:13
Hyggst breyta lögum svo hægt verði að afturkalla dvalarleyfi síbrotafólks Dómsmálaráðherra hyggst breyta lögum þannig hægt verði að afturkalla dvalarleyfi fólks með alþjóðlega vernd brjóti það af sér hér á landi. Samkvæmt núgildandi lögum er ekki hægt að senda mann úr landi sem hefur framið stunguárás og hótað vararíkissaksóknara ítrekað. 13.3.2024 18:30
Kim vandræðaleg á tónleikum með nýrri eiginkonu Kanye Kim Kardashian mætti á tónleika hjá fyrrverandi eiginmanni sínum Kanye West í gærkvöldi í tilefni af útgáfu nýrrar plötu hans. Kim sat tónleikana með Bianca Censori, núverandi eiginkonu Kanye og fullyrða slúðurmiðlar vestanhafs að andrúmsloftið milli kvennanna hafi verið þrúgandi. 13.3.2024 18:28
Ekki barnarán í tilfelli móður Sakfellingu konu, sem flutti með tvö börn sín til útlanda í trássi við vilja föður barnanna, hefur verið snúið við í Hæstarétti. Foreldrar barnanna fara báðir með forsjá þeirra og því taldi Hæstiréttur að ákvæði hegningarlaga um barnarán ætti ekki við um háttsemi konunnar. 13.3.2024 17:45
Hefðu viljað sjá fleiri tilboð í Ölfusárbrú en fagna því sem barst Forstjóri Vegagerðarinnar segir vonbrigði að aðeins eitt tilboð hafi borist í hönnun og byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá. Hún fagnar því þó að tilboð hafi borist. 12.3.2024 23:31
Fundi frestað til morguns Fundi samninganefnda Samtaka atvinnulífsins og verslunarmanna hjá ríkissáttasemjara hefur verið frestað til morguns. Hann hefst aftur klukkan níu en samningsaðilar hafa setið í Karphúsinu í þrettán klukkustundir í dag. 12.3.2024 23:27
„Þetta er ekki beint það sem fólk kaus“ Breiðhyltingur, sem átti tillögu að skilti sem býður fólk velkomið í hverfið í hugmyndakeppninni Hverfið mitt í fyrra og var samþykkt, segir miður að endanleg hönnun skiltisins sé ekki í anda Breiðholtsins. Allan karakter vanti í útlit þess. 12.3.2024 21:51
Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur samstarfi Eik fasteignafélagi var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns Ólafs Sigríðarsonar, sem var ráðinn rekstrarstjóri nýrrar mathallar á Glerártorgi á Akureyri. Eik hefur nú slitið samstarfi við Kristján. Sturla G. Eðvarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik tekur við rekstrarstjórn á meðan framhald ræðst. 12.3.2024 20:40