Uppgjör Marels var undir væntingum greinenda Afkoma Marels var undir væntingum greinenda á flesta mælikvarða. Mótteknar pantanir voru þó tæplega tveimur prósentum yfir meðaltalsspá. Engu að síður hafa stjórnendur Marels lækkað afkomuspá sína fyrir fjórða ársfjórðung en það var líka gert á sama tíma fyrir ári. Gengi Marels hefur lækkað um þrjú prósent það sem af er degi í Kauphöll. 27.7.2023 10:45
Gildi bað Helgu Hlín um að bjóða sig fram í stjórn Íslandsbanka Helga Hlín Hákonardóttir, ráðgjafi hjá Strategíu, segir að lífeyrissjóðurinn Gildi sem sé næststærsti hluthafi Íslandsbanka hafi óskað eftir því að hún myndi bjóða sig fram í stjórn bankans. Helga Hlín er ekki á lista sem tilnefningarnefnd mælir með að taki í sæti í stjórn Íslandsbanka. „Það er um að gera að rödd næststærsta hluthafans fái að heyrast,“ segir hún um framboð sitt og nefnir að ábendingar um nafn hennar hafi borist til tilnefningarnefndar frá fleirum en Gildi. 26.7.2023 14:47
Verðmetur Ölgerðina töluvert yfir markaðsvirði og uppgjör yfir væntingum Nýtt verðmat á Ölgerðinni er 29 prósentum hærra en markaðsvirði félagsins. Engu að síður er verðkennitala miðað við verðmatið „umtalsvert“ lægri en gengur og gerist erlendis. Uppgjör fyrsta ársfjórðungs var lítillega yfir væntingum hlutabréfagreinanda. 26.7.2023 08:00
Frosti Sigurjónsson býður sig fram í stjórn Íslandsbanka Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi alþingismaður, býður sig fram til setu í stjórn Íslandsbanka. Hann er ekki á lista yfir þá sem tilnefningarnefnd mælir með að sitji í stjórn bankans. Frosti segir að þegar honum bárust þau tíðindi hafi hann upplýst nefndina að hann vilji engu að síður vera í framboði enda séu það hluthafar sem velji stjórn en tilnefningarnefnd komi með tillögur. Hann hefur vakið athygli stjórnenda lífeyrissjóða á framboði sínu. „Lokaákvörðun er hjá hluthöfum.“ 25.7.2023 13:39
Bendir til áframhaldandi niðursveiflu á evrusvæðinu Efnahagsvandræði evrusvæðisins fóru vaxandi við upphaf þriðja ársfjórðungs. Framleiðsluvísitala sem fylgst er náið með bendir til að efnahagsumsvif á svæðinu hafi dregist saman. Sömu sögu er að segja af Bretlandi. 24.7.2023 15:32
VEX kaupir 45 prósenta hlut í Öryggismiðstöðinni Framtakssjóðurinn VEX I hefur náð samkomulagi um kaup á um 45 prósenta hlut í Öryggismiðstöðinni. Kaupin eru til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Fyrirtækið velti rúmlega sjö milljörðum króna á síðasta ári. 24.7.2023 14:34
Ættum að marka stefnu um uppbyggingu gagnavera eins og hin Norðurlöndin Hin Norðurlöndin hafa gert markvissar áætlanir um hvernig megi byggja upp gagnaversiðnað enda skapar hann vel launuð störf, auknar gjaldeyristekjur og er góð leið til að fjölga eggjum í körfunni þegar kemur að orkusölu. Ísland ætti að gera slíkt hið sama. Spár gera ráð fyrir að þörf fyrir reikniafl og gagnageymslu í heiminum muni margfaldast á næstu árum, segir formaður Samtaka gagnavera í viðtali við Innherja. 15.7.2023 09:00
Fjárfesting í erlendum verðbréfum bætir ávöxtun en vægi þeirra hefur verið of lítið Erlend verðbréf, sem skráð eru í kauphöll, bæta sögulegt hlutfall ávöxtunar og áhættu fyrir íslenska fjárfesta, eins og til dæmis lífeyrissjóði. Vægi erlendra eigna í innlendum eignasöfnum hefur verið of lítið, segir í nýrri rannsókn. 11.7.2023 14:27
Kerecis er fyrsti einhyrningur Íslands Kerecis er fyrsta íslenska fyrirtækið sem flokkast sem einhyrningur (e. unicorn), sagði Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands og stjórnarmaður í nýsköpunarfyrirtækinu. Hann útskýrði að það orð væri notað yfir nýsköpunarfyrirtæki sem hafa á örskömmum tíma farið frá því að vera sproti í að vera metið á yfir milljarð Bandaríkjadala. 7.7.2023 17:15
Verðmat Reita enn langt yfir markaðsvirði Verðmat Jakobsson Capital á Reitum lækkaði lítillega á milli ársfjórðunga. Verðmatið er um 54 prósentum hærra en markaðsvirðið. Raunvöxtur í leigutekjum var tvö prósent á milli ára. Sennilega standa hóteleignir á baki við hluta rauntekjuvaxtar milli ára. Reitir eru þyngstir í hóteleignum af öllum fasteignafélögunum. 7.7.2023 07:01