Meirihluti íbúa á móti vindmyllum í Þykkvabæ Aðeins rúmur þriðjungur íbúa í Þykkvabæ og nágrenni eru hlynntir því að nýjar vindmyllur verði reistar í stað annarra sem voru teknar niður í fyrra. Töluverður munur var á afstöðu íbúa eftir því hversu nálægt þeir búa við fyrirhugaðar vindrafstöðvar. 4.7.2023 11:20
Stoltenberg stýrir NATO áfram Jens Stoltenberg stýrir Atlantshafsbandalaginu (NATO) áfram næsta árið. Þetta er i þriðja skiptið sem framkvæmdastjóratíð Stoltenberg er framlengd hjá sambandinu en hann hefur gegnt embættinu í níu ár. 4.7.2023 10:11
Skaut fólk af handahófi á götum Fíladelfíu Vopnaður karlmaður skaut fjóra til bana og særði tvo drengi í að því er virðist handahófskenndri árás á götum Fíladelfíu í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Lögreglumenn handtóku manninn eftir að hann gafst upp. 4.7.2023 08:41
Segja aðgerðirnar á Vesturbakkanum geta varað í fleiri daga Fulltrúi Ísraelshers segir að aðgerðir hans gegn vígahópum á Vesturbakkanum gætu varað í nokkra daga. Átta Palestínumenn eru nú sagðir látnir í aðgerðum Ísraelsmanna sem er lýst sem þeim umfangsmestu í tuttugu ár. 3.7.2023 16:01
Kannast ekki við beiðni sem leiddi til tímamótadóms um mismunun Maður sem var nefndur í máli sem kristinn vefsíðuhönnuður sem vildi ekki þurfa að vinna fyrir samkynhneigt fólk höfðaði fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna segist aldrei hafa óskað eftir þjónustu hönnuðarins. Dómurinn leyfði fyrirtækjum að meina samkynhneigðum um þjónustu. 3.7.2023 14:44
Ósáttir Orkneyingar horfa aftur til Noregs Óánægja yfirvalda á Orkneyjum með framkomu breskra stjórnvalda í sinn garð gæti orðið til þess að eyjarnar verði að norsku yfirráðasvæði. Þau kanna nú önnur möguleg stjórnkerfi, þar á meðal að leita aftur í faðm Norðmanna. 3.7.2023 12:32
Sendiherrann sagður farinn úr landi Rússneski sendiherrann á Íslandi er sagður farinn úr landi. Íslensk stjórnvöld mæltust til þess að sendiherrann færi heim þegar þau ákváðu að loka íslenska sendiráðinu í Moskvu í síðasta mánuði. 3.7.2023 11:25
Kommúnistaleiðtogi í klandri eftir sólgleraugnastuld Heitt er nú undir Bjørnari Moxnes, leiðtoga norska kommúnistaflokksins Rauða flokksins, eftir að upp komst að hann var staðinn að því að stela sólgleraugum í síðasta mánuði. Flokkurinn lýsti yfir stuðningi við Moxnes en eining ríkir ekki um hann. 3.7.2023 10:39
Byssumaður sem drap nágranna sína ákærður fyrir morð af ásetningi Saksóknarar í Texas í Bandaríkjunum ákærður karlmann á fertugsaldri sem skaut fimm nágranna sína til bana í apríl fyrir morð af ásetningi. Þeir hafa enn ekki ákveðið hvort þeir fari fram á dauðarefsingu yfir manninum. 3.7.2023 09:02
Evklíð ætlað að afhjúpa hulduöfl alheimsins Nýr evrópskur geimsjónauki sem verður skotið á loft í dag á að hjálpa vísindamönnum að skilja dulin og leyndardómsfull öfl sem halda vetrabrautum saman og valda sívaxandi útþenslu alheimsins. Athuganir hans gætu varpað ljósi á ýmsar brýnustu spurningar heimsfræðinnar. 1.7.2023 13:00