Föst í lægð út mánuðinn Veðrið hefur ekki beint leikið við landsmenn þetta sumarið og virðist reyndar alls ekki ætla að gera það ef marka má langtímaspár. Þær gera ráð fyrir reglulegum lægðum og úrkomu út júlímánuð. 7.7.2022 13:32
Jakkafataklæddir ungherrar til friðs á Íslandi Nýjasta teiknimyndin um skósveinana nýtur nú óvæntra vinsælda meðal eldri hópa, þökk sé óvenjulegum færslum á samfélagsmiðlum. Ekki hefur þótt ástæða til að banna hópana í kvikmyndahúsum hér á landi eins og sums staðar í heiminum. 5.7.2022 20:01
Þrettán skelfilegar mínútur Maðurinn sem er grunaður um að hafa skotið þrjá til bana í verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn í gær verður í varðhaldi á geðdeild út mánuðinn. Myndbönd úr eftirlitsmyndavélum gætu skipt sköpum við rannsókn málsins. 4.7.2022 20:00
Kanna hvort ástæða sé til að herða vopnalöggjöfina „Það þyrmir yfir mann hreinlega, yfir svona fullkomlega tilgangslausu ódæðisverki,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um skotárásina sem gerð var í Fields-verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn í gær. 4.7.2022 19:26
„Ég heyrði skothljóð en ætlaði samt ekki að trúa þessu“ Íslensk kona sem var við störf í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupmannahöfn í gær þegar árásarmaður hóf skothríð segir upplifunina bæði skelfilega og óraunverulega. Sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn segir borgarbúa slegna. Opið hús verður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn þar sem Íslendingar geta rætt við prest og starfsmenn sendiráðsins. 4.7.2022 12:18
Óskað eftir áfallahjálp og aðstoð við að komast heim til Íslands Haft hefur verið samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins vegna sex Íslendinga eftir árásina í Fields-verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn í gær. Yfirleitt hefur verið óskað eftir aðstoð við að komast heim til Íslands sem fyrst, að sögn Sveins H. Guðmarssonar, upplýsingafulltrúa í utanríkisráðuneytinu. 4.7.2022 11:17
Þrjár einstæðar mæður með sjö börn á einni viku Lögfræðingur segir forkastanlegt að stjórnvöld hyggist senda barnafjölskyldur aftur til Grikklands á næstu mánuðum, þvert á yfirlýsingar um annað. Á einni viku hafi hann fengið mál þriggja einstæðra mæðra á borð til sín, sem standi frammi fyrir ömurlegum örlögum í Grikklandi. 1.7.2022 20:00
Ómetanlegt að fagna fjörutíu ára afmælinu Fjörutíu ár eru í dag síðan starfsemi hófst á Hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum í Reykjavík. Heimilismenn, starfsfólk og gestir fögnuðu afmælinu við hátíðlega athöfn í garði heimilisins, þar sem boðið var upp á veitingar og fjölbreytt tónlistaratriði. 30.6.2022 20:31
Mikil vinna framundan áður en nýja hverfið rís Þrjú hundruð og sextíu íbúðir munu rísa í nýju hverfi við Leirtjörn í Úlfarsárdal en mikil vinna er framundan við deiliskipulag. Formaður borgarráðs segir mikilvægt að ryðja land undir ný hverfi samhliða þéttingu byggðar. 30.6.2022 19:00
Ríkið leggst gegn endurupptöku á máli Erlu Bolladóttur Settur ríkissaksóknari leggst gegn endurupptöku á máli Erlu Bolladóttur. Lögmaður Erlu furðar sig á umsögninni í ljósi fyrri yfirlýsinga stjórnvalda. Erla segir umsögnina áfall og lýsandi fyrir það virðingarleysi sem henni hafi verið sýnt. 26.6.2022 18:40