Helmingi fleiri börn sprautað sig með vímuefnum í æð Meira en helmingi fleiri unglingar, yngri en 18 ára, höfðu sprautað sig með vímuefnum í æð árið 2018 miðað við síðustu ár. Forstjóri barnaverndarstofu segir þetta mikið áhyggjuefni. Hún vill sjá frekari skyldur hjá hinu opinbera um stuðning við hópinn eftir að þau ná átján ára aldri og eru þá án eftirlits. 18.3.2019 19:15
Fleiri ungmenni sprauta sig í æð Fimmtíu og sex ungmenni, undir tvítugu, sem voru á sjúkrahúsinu Vogi í fyrra höfðu sprautað sig með vímuefnum í æð og er um vaxandi hóp að ræða að sögn yfirlæknis á Vogi. Þá sé regluleg sprautufíkn að aukast almennt en hátt í þrjú hundruð manns sem komu á Vog í fyrra tilheyra þeim hópi. 17.3.2019 22:15
Fimmta mislingatilfellið staðfest Í dag staðfesti veirufræðideild Landspítala nýtt mislingatilfelli og er það fimmta tilfellið sem staðfest hefur verið frá því 18. febrúar síðastliðinn. 8.3.2019 17:11
Fjórir gert tilraun til að skaða sig í fangaklefa frá áramótum: „Þá er bara allt notað til að reyna skaða sig“ Frá áramótum hafa fjórir einstaklingar gert tilraun til að skaða sig í fangaklefum lögreglunnar höfuðborgarsvæðinu. Lögreglustjórinn segir fangaverði stundum neyðast til að afklæða fólk í annarlegu ástandi þar sem það noti fötin til að reyna að stytta sér aldur. Unnið sé að úrbótum. 7.3.2019 19:00
Hátt í fjörutíu leikskólabörn í sóttkví vegna gruns um mislingasmit Enn hafa engin ný smit komið fram en þrjátíu sýni hafa verið tekin á síðustu dögum. Sóttvarnalæknir segir að fleiri gætu átt eftir að greinast. Þá vinni hann nú að því að senda út upplýsingar til lækna um það hvernig eigi að túlka niðurstöður úr mislingaprófi en mistök á túlkun urðu til þess að smitað átján mánaða gamalt barn fór á leikskólann. 7.3.2019 19:00
Heilbrigðisstarfsmenn mistúlkuðu mislingapróf Heilbrigðisstarfsmenn gerðu mistök við túlkun á mislingaprófi á ungu barni sem nú er með mislinga að sögn sóttvarnalæknis og því fór barnið á leikskóla í góðri trú. Hann harmar mistökin. Tugir eru nú í sótthví vegna mögulegs smits. 7.3.2019 12:03
Wow í vanskilum með iðgjaldaframlög Hafa haldið eftir mótframlagsgreiðslum í þrjá mánuði en starfsmenn voru látnir vita í dag. 4.3.2019 22:30
10 til 15 þúsund Íslendinga með skerta heyrn Forstjóri heyrnar- og talmeinastöðvarinnar eða HTÍ segir að Íslendingar bregðist allt of seint við þegar heyrnin byrjar að gefa sig. 4.3.2019 19:45
Átta starfsmenn borgarinnar verið sendir í leyfi eða vikið úr starfi vegna brota gegn skjólstæðingum á síðustu 12 mánuðum Þetta kemur fram í miðlægri atvikaskrá velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem sett var á laggirnar um mitt ár í fyrra en farið var af stað með skráninguna til að tryggja öryggi starfsmanna og notenda. 4.3.2019 18:30
Yfir þúsund á aldrinum 21-24 ára á vanskilaskrá Yfir þúsund manns á aldrinum tuttugu og eins til tuttugu og fjögurra ára eru á vanskilaskrá. Þá hefur nýskráningum á vanskilaskrá farið fjölgandi á síðustu mánuðum eftir stöðuga fækkun síðustu ára. 2.3.2019 19:45