Guðmundur Árni leiðir áfram listann Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði var samþykktur á félagsfundi flokksins í dag. Guðmundur Árni Stefánsson leiðir áfram listann og Stefán Már Gunnlaugsson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Hildur Rós Guðbjargardóttir eru þar jafnframt ofarlega. Elín Anna Baldursdóttir sálfræðingur vermir fjórða sætið. 28.2.2026 14:14
Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands, er oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ komandi sveitarstjórnarkosningum. Í öðru sæti er Valdimar Birgisson rekstrarráðgjafi og varaþingmaður og í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Listinn var staðfestur á félagsfundi nú í morgun. 28.2.2026 13:15
Jóhanna Vigdís greindist með MS Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona og söngkona með meiru greindist með MS-sjúkdóminn árið 2023 og segist ekki eiga afturkvæmt á sviðið. Hún segir sjúkdóminn af þeirri gerð sem læðist aftan að manni. Hún er með skertan mátt í hægri hlið líkamans og haltrar en segist heppin og einblína á það jákvæða. 28.2.2026 11:59
Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ var samþykktur á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ á Hótel Keflavík í gærkvöldi. 28.2.2026 11:06
„Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Karl Bretakonungur setti Höllu Tómasdóttur forseta í nokkuð óþægilega stöðu þegar hún heimsótti Buckingham-höll í nóvember síðastliðnum. Ákveðið hafði verið að engin gjafaskipti færu fram en „Kalli“ eins og hún kallaði hann kom henni á óvart með rauðri gjafaöskju en Halla kom tómhent til Bretlands. 28.2.2026 11:04
Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Tuttugu manns hið minnsta létu lífið og tugir eru slasaðir eftir að herþota sem með farm af peningaseðlum hrapaði í grennd við höfuðborg Bólivíu, La Paz, í morgun. 28.2.2026 10:25
Frostlaust sums staðar sunnan heiða Eftir útsynningsveður gærdagsins hefur dregið úr vindi og úrkomu. Von er á suðvestan golu eða kalda í dag og einhverjum éljum á stangli en bjart verður að mestu um landið austanvert. 28.2.2026 10:13
Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Hið minnsta tvö hundruð eru taldir látnir eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árás á Íran í morgun. Ísraelsríki segir árásina fyrirbyggjandi og Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að æðstiklerkur Írana hafi verið felldur. Vísir færir ykkur nýjustu fréttir í vaktinni hér að neðan. 28.2.2026 07:32
Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur að því að ráða niðurlögum sinuelds á landi Mela á Kjalarnesi. Eldurinn barst í heyrúllur en engin hætta er talin steðja að mannvirkjum. 21.2.2026 14:47
Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð samþykkti framboðslistann fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ragnar Sigurðsson formaður bæjarráðs verður áfram oddviti listans. 21.2.2026 14:09