Þetta á ekki að gerast Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg segir mikinn leka í glænýju þaki Fossvogsskóla mikil vonbrigði. Málið verði skoðað strax eftir helgi. Reykjavíkurborg er þannig enn og aftur í vandræðum með húsnæði skólans en á honum voru nýlega gerðar gagngerar endurbætur vegna myglu. 21.1.2023 12:30
Verkafólk á Akureyri með hærri laun en í Reykjavík Launakjör verkafólks á Akureyri eru betri en í Reykjavík samkvæmt könnunum. Sérfræðingur hjá Eflingu segir kröfur félagsins um sérstaka framfærsluuppbót meira en sanngjarnar í ljósi hærri húsnæðiskostnaðar á höfuðborgarsvæðinu. 21.1.2023 00:01
Aukið álag þegar líður á daginn Mikill viðbúnaður er hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en búist var við miklu álagi vegna veðursins í dag. Börn voru til að mynda send heim úr Fossvogsskóla vegna leka frá þaki og inn í kennslustofur. Sigurjón Hendriksson, varðstjóri í aðgerðarstjórn slökkviliðsins segir álag á viðbragðsaðila vera mikið. 20.1.2023 13:42
Hefur litla trúa á lýðræðisást atvinnurekenda Formaður Eflingar segir vinnu við verkfallsboðun vera í gangi og hefur litla trú á lýðræðisást formanns Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra segist ekki vera vongóð um að samningar náist á næstunni. 15.1.2023 22:31
„Þetta er húseigandans að passa upp á“ Grýlukerti og klakabunkar sem víða sjást á húsþökum þessa dagana geta verið stórhættuleg þegar þau falla. Forvarnafulltrúi segir að húseigendur geti borið ábyrgð á tjóni sem af hlýst vegna klaka og grýlukerta. Þau geti reynst mjög hættuleg. 15.1.2023 20:35
Umfangsminni leit í dag og engar vísbendingar hafa borist Engar vísbendingar hafa borist lögreglu um ferðir Modestas Antanavicius sem leitað hefur verið að í Borgarfirði. Leit heldur áfram í dag og biðlar lögregla til fólks að hafa samband hafi það einhverjar upplýsingar um ferðir mannsins. 15.1.2023 12:47
Vilja loka húsnæði sem hýsir hælisleitendur Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Grindavík þrátt fyrir mótmæli bæjaryfirvalda. Bæjarráð hefur beint því til skipulags- og byggingarfulltrúa að kanna hvort bærinn geti lokað húsnæðinu. 12.1.2023 19:30
Hýsa hælisleitendur í Festi í óþökk bæjaryfirvalda Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Festi í Grindavík í óþökk bæjaryfirvalda en hótelstarfsemi var stöðvuð í húsinu síðastliðið vor vegna myglu. Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir engum verða úthýst en furðar sig á vinnubrögðum Vinnumálastofnunar. 12.1.2023 13:00
Mun fleiri fá skorpulifur vegna áfengisneyslu Skorpulifur er vaxandi vandmál hér á landi en nýgengi hefur margfaldast síðast liðin ár og aukin þörf verður fyrir lifrarígræðslu á næstu árum. Áfengisneysla er helsti orsakavaldurinn að mati lifrarlæknis. 11.1.2023 20:01
Spá ferðamannafjölda á pari við 2018 Viðsnúningurinn í fjölda ferðamanna var hraðari en Ferðamálastofa bjóst við en 146 prósent aukning var á komum ferðamanna milli ára. Stofnunin spáir 2,3 milljónum ferðamanna á árinu sem er svipað og metárið 2018. Íslendingar voru einnig fljótir að taka við sér en áfangastaðirnir hafa lítið breyst. 11.1.2023 13:01