Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Þrír voru fluttir með sjúkrabíl á heilsugæsluna á Selfossi eftir árekstur við Dyrhólaveg á Suðurlandi. Enginn er alvarlega slasaður en allir farþegar voru þó fluttir frá vettvangi til skoðunar. 31.7.2024 16:49
Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Jarðfræðingar við Háskóla Íslands sem stóðu að rannsókn um sigdalinn í Grindavík segja tímabært að fylgja eftir reglum um byggingar við misgengi og sprungur og segja mikilvægt að kortleggja þannig svæði á landsvísu. 31.7.2024 12:13
Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Vegagerðin segir auglýsingaskilti vera til þess gerð að draga athygli ökumanna frá akstrinum. Bjartir skjáir sem skipta á milli auglýsinga ótt og títt við gatnamót þar sem mikið er um að vera eru sérstaklega varhugaverð. 30.7.2024 19:53
„Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Prófessor í eldfjallafræði segir mestar líkur á að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði á sama stað og síðustu gos á svæðinu. Ólíklega muni gjósa inni í Grindavík og því sé skammur viðbragðstími ekki endilega áhyggjuefni. 30.7.2024 19:32
Gæti gosið á næstu dögum Spenna heldur áfram að aukast á Reykjanesi en nú hafa rúmlega 16 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi. Veðurstofa Íslands varar við því að kvikuhlaup án eldgoss nægi til að skapa hættu og valda tjóni í Grindavík en því fylgi jarðskjálftar og sprungur. 30.7.2024 11:58
Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sem ætlaði að sækja slasaðan göngumann í Kerlingafjöllum þurfti frá að hverfa vegna slæms skyggnis. Göngumaðurinn er talinn vera með þriðja stigs bruna upp að hné eftir að hafa stigið ofan í hver. 28.7.2024 16:27
Óvíst hvort að skemmdarverkin hafi áhrif: Skipulagsleysi setur svip sinn á samgöngumál Óvíst er að svo stöddu hvort skemmdarverkin á lestarkerfinu í Frakklandi muni hafa áhrif á íslenska Ólympíuhópinn, þó að það geti haft áhrif á lið stærri þjóða. Aðalfararstjóri íslenska hópsins segist verða var við gífurlega öryggisgæslu á svæðinu. 26.7.2024 12:06
Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Hættustig almannavarna var virkjað í dag vegna yfirvofandi eldoss í grennd við Grindavík. Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, segir það áhyggjuefni að viðvörunartími styttist með hverju gosinu sem verður en telur þó öruggt að fólk sé í bænum að degi til. 24.7.2024 23:36
Öllu gríni fylgi alvara Lögreglan lítur falska aðganga sem eru stofnaðir í þeirra nafni alvarlegum augum þó svo að það sé gert í gríni og minnir á að um lögbrot sé að ræða. Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og áætlunardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, varar við háttseminni og segir öllu gríni fylgja alvara. 24.7.2024 20:16
„Auðvitað mjög margir sem eru óttaslegnir“ Enn er stefnt að umfangsmiklum framkvæmdum í Grindavík þrátt fyrir uppfært hættumat Veðurstofunnar sem segir mikla hættu á eldgosi innan bæjarmarkanna. Þetta segir formaður Grindavíkurnefndar en kostnaður hleypur á hundruðum milljóna. 24.7.2024 12:20