Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. maí 2026 14:15 Frá eyjunni Tristan da Cunha þar sem eitt Hanta-smit hefur komið upp. AP Sjúkraliðar úr breska hernum stukku úr flugvél með fallhlífum yfir eyjunni Tristan da Cunha fyrr í dag til að koma breskum manni sem smitaðist af hantaveiru til hjálpar. Eyjan er ein sú afskekktasta og er mitt á milli Argentínu og Suður-Afríku á miðju Atlantshafi.
Breski maðurinn sem grunur er á um að hafi smitast af hantaveiru var farþegi á skemmtiferðaskipinu MV Hondius en fór frá borði um miðjan apríl og gekk á land á Tristan da Cunha sem er afskekktasta eyjan með íbúabyggð í breska konungsdæminu eftir því sem fram kemur í frétt Breska ríkisútvarpsins um málið. Maðurinn á heima á eyjunni en þar búa um 250 manns að staðaldri. Í frétt BBC má sjá hermenn stökkva út um bakhlið flugvélarinnar og hrapa í átt að eyjunni áður en þeir virkja flughlífar sínar. Súrefni var einnig komið til eyjunnar með fallhlífum þar sem súrefnisbirgðir voru af skornum skammti. Á eyjunni er enginn alþjóðaflugvöllur og getur það tekið langan tíma fyrir skip að komast þangað enda eyjan á ballarhafi. Þrír hafa látist vegna hantaveiru um borð skipsins Hondius sem er nú komið til Tenerife. Vinna stendur nú yfir að koma farþegum sem eru einkennalausir til sinna heimalanda. Breski maðurinn á Tristan da Cunha fór frá borði fjórtánda apríl. 28. apríl fékk hann niðurgang og hita tveimur dögum síðar. Hann er nú í einangrun og ástand hans er stöðugt. Vanalega eru tveir heilbrigðisstarfsmenn á eyjunni. Bráðalæknir og hjúkrunarfræðingur eru meðal þeirra sem komu með hernum til eyjunnar ásamt þremur tonnum af lækningavörum.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Bretland Heilbrigðismál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira