Konur innan menntageirans rjúfa þögnina: Nauðgaði nemanda en fékk að hætta undir yfirskyni veikinda Kynferðisofbeldi, kynferðisáreitni og mismunun viðgengst enn í skjóli þagnar. Um árabil hafa konur þagað yfir misréttinu sem þær eru beittar innan menntastofnana. Svo segir í yfirlýsingu sem 737 konur innan menntageirans skrifa undir og sendu fjölmiðlum í dag. 15.12.2017 13:24
Samþykkt að færa Brexit-viðræður á næsta stig Viðræðurnar munu nú snúast um hvernig langtímasambandi Bretlands og ESB verði háttað. 15.12.2017 12:52
Sekt Securitas lækkuð um 40 milljónir Samkeppniseftirlitið hefur sektað Securitas um fjörutíu milljónir vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins og fyrir að hafa veitt Samkeppniseftirlitnu ófullnægjandi upplýsingar við rannsókn málsins. 15.12.2017 12:38
Innkalla Piparkúlur vegna mistaka við pökkun Nói Síríus hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Nóa Piparkúlur – súkkulaðihjúpaðar lakkrískaramellur með pipardufti 15.12.2017 10:57
Bein útsending: Fjárlagafrumvarpið rætt á Alþingi Fyrsta umræða um frumvarp til fjárlaga ársins 2018 hefst á Alþingi í dag klukkan 10:30. 15.12.2017 10:30
Böndum komið á drónaflug Í dag öðlast reglugerð um fjarstýrð loftför, svokallaða dróna, gildi hér á landi. Er þetta í fyrsta skipti sem sérstaklega er fjallað um notkun dróna í reglugerð. 15.12.2017 10:27
Tveir menn sakfelldir fyrir hatursorðræðu Hæstiréttur hefur dæmt tvo menn til þess að greiða 100 þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna ummæla sem þeir létu falla í athugasemdakerfum við frétt á Vísi annars vegar og DV hins vegar. 14.12.2017 17:14
Forseti Íslands um MeToo-byltinguna: „Hingað og ekki lengra“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, gerði MeToo-byltinguna að viðfangsefni sínu í ávarpi sínu er Alþingi var sett fyrr í dag. Hann segir skilaboð kvenna um víðan heim skýr. Kynferðislegt ofbeldi og áreitni verði ekki lengur liðin. 14.12.2017 14:43
Bein útsending: Þingsetning og ávarp forseta Íslands Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 fimmtudaginn 14. desember með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, starfandi forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. 14.12.2017 13:08
Íslenska á tækniöld: Sjöföldu framlagi í fjárlagafrumvarpi fagnað Gert er ráð fyrir að 450 milljónir verði settar í að byggja upp innviði í íslenskri máltækni samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Um er að ræða sjöfalt hærri upphæð en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi síðustu ríkisstjórnar. 14.12.2017 12:48