
Hinsegin

Bangsar bjóða alla velkomna
Árleg hátíð Bangsafélagsins Reykjavík Bear hefst á morgun og stendur til sunnudags. Um 125 bangsar víðsvegar úr heiminum mæta á hátíðina sem fer ört stækkandi.

Að brúa bil: Hlutverk pólitískrar orðræðu í félagslegri samheldni
Á meðan ég vann að gerð námskeiðs um menningarnæmi og inngildingu fylltist ég tilfinningu um hversu aðkallandi þessi námskeið væru. Mín upplifun og reynsla er að ég er alltaf beðin um að flytja þessi námskeið fyrir fólk sem hefur þegar lagt af stað við að skilja og vinna með eigin viðhorf um fjölbreytileika og inngildingu.

Það er alltaf von: Samtökin ‘78 styðja Píeta
Við erum öll svo dýrmæt og hvert eitt og einasta okkar skiptir máli, þó að stundum kunni okkur að líða eins og svo sé ekki. Þetta einstaka dýrmæti hvers okkar þýðir að hvert sjálfsvíg heggur stórt skarð í líf þeirra sem eftir standa og áhrifin ná langt út fyrir innsta hring hvers einstaklings.

Heitustu hinsegin pör landsins
Hinsegin dagar voru haldnir hátíðlega í liðinni viku þar sem ástinni og fjölbreytileikanum var fagnað með glæsibrag. Í tilefni hátíðarinnar setti lífið á Vísi saman lista sem samanstendur af hinsegin pörum sem eiga það sameiginlegt að vera flottar fyrirmyndir.

Kynhlutlaus klósett orðin að lögum
Reglugerð ráðherra, um að merkja beri salerni eftir aðstöðu fremur en kynjum, hefur tekið gildi. Um stórt skref er að ræða að sögn varaforseta Trans Ísland.

Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni
Gelt var á Heiði Eiríksdóttur tónlistarkonu á laugardagskvöld af ungum drengjum, þar sem hún var á leið heim á göngu í miðbæ Reykjavíkur ásamt vinkonu sinni eftir gleðskap þeirra í tilefni af Hinsegin dögum. Drengirnir tóku geltið upp á myndband. Hún segir að um hafi verið að ræða ömurlegan endi á kvöldinu og að það sé alveg ljóst að þörf sé á hinsegin dögum.

Myndaveisla: Litadýrð, ást og valdefling í Gleðigöngunni
Stemningin í bænum var gríðarleg á laugardag í stórglæsilegri Gleðigöngu þar sem margvíslegur hópur fólks kom saman að fagna fjölbreytileikanum.

„Við eigum ekki bara að hvíla í friði þegar við erum dauð“
„Ég vona að þau ykkar sem eru hinsegin en hafa ekki tekið skrefið finni kjark og þor sem fyrst til að lifa í frelsi og að hátíð eins og Hinsegin dagar fylli ykkur af eldmóð,“ skrifar ástsæli tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Friðrik Ómar Hjörleifsson í einlægri og hjartnæmri færslu á Instagram.

Daginn eftir og hinir 364
Nú er Gleðigöngunni lokið þetta árið, gaman hvað mörg gátu mætt, en baráttan heldur áfram, við megum aldrei sofna á verðinum né loka augunum fyrir hatursorðræðu og mismunun.

„Fullorðna fólk, grow up!“
Páll Óskar segir að á meðan fólk er ennþá að kasta pílum í það hvernig fólk lítur út, hvað það gerir eða hvernig það lifir lífinu sínu, séum við ekki frjáls, og Gleðigangan haldi áfram. Fólk sem dreifi óhróðri og óábyrgum upplýsingum á netinu þurfi að þroskast.

Páll Óskar og Antonio deildu sviðinu á brúðkaupstertu
Páll Óskar og eiginmaður hans Edgar Antonio Lucena Angarita, voru saman efst á brúðkaupstertu í Gleðigöngunni í dag.

Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði
Tveir hinseginfánar voru skornir niður í Hveragerði í dag, einn við hjúkrunarheimilið Ás og annar við kirkjuna. Sú sem vakti athygli á þessu vill senda fólkinu á bak við verknaðinn ást og frið.

Gleðilegan baráttudag!
Gleðilega gleðigöngu, gleðilegan baráttudag!Hinsegin dagar eru gengnir í garð og hápunktur þeirra á sér stað í dag þegar gleðigangan verður gengin. Tími þar sem fólk kemur saman og fagnar árangri sem náðst hefur í réttindabaráttu hinsegin fólks en á sama tíma að minna á að baráttunni er ekki lokið.

Dagskrá Hinsegin daga og bein útsending frá hátíðahöldum
Hápunktur Hinsegin daga er í dag, sjálf Gleðigangan, en víða um borgina verður fjölbreytt dagskrá í allan dag.

Fjölbreytni þrífst best í frjálsu samfélagi
Það er hluti af sjálfsmynd Íslendinga að standa öðrum framar þegar kemur að jafnrétti, mannréttindum og frelsi fólks til að vera það sjálft. Við erum stolt af því að hér geti fólk verið öruggt í eigin skinni, elskað þann sem það hugnast og sótt fram á sínum forsendum.

Máum út illsku með ást
Hinsegin dagar 2024 eru nú haldnir undir kjörorðunum menning, mannréttindi, fjölbreytileiki. Þetta er hátíð okkar allra sem gerum þá skýlausu kröfu að fólk fái að njóta frelsis til að vera það sjálft og láta ljós sitt skína á eigin forsendum með gleðina að leiðarljósi.

Mælir með að muna eftir sólarvörn og gleðinni í göngunni
Yfir fjörutíu atriði taka þátt í gleðigöngunni í miðborg Reykjavíkur á morgun. Götur umhverfis gönguleiðina verða lokaðar fyrir bílaumferð frá átta í fyrramálið til sex annað kvöld. Göngustýra hvetur alla sem vilja til að gera sér ferð í bæinn og taka þátt í gleðinni.

Þakklæti
Nú þegar hinsegindagar standa yfir er þakklæti mér efst í huga. Þakklæti fyrir það fólk sem hefur barist fyrir réttindum hinsegin fólks svo að við öll fáum að búa í opnara og frjálsara samfélagi.

Lifi frelsið, lifi fjölbreytnin
Samhliða því að við Ölfusingar höldum okkar árlegu bæjarhætíð undir nafninu „Hamingjan við hafið“ fögnum við fjölbreytileikanum og þeirri gæfu að regnboginn beri alla liti litrófsins.

Hinsegin Reykjavík – Stolt er styrkur
Góð borg er frjálslynd og jafnréttissinnuð borg þar sem íbúar eru jafnir, án tillits til kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, kyneinkenna eða annars. Það er góð tilfinning að koma að stjórn borgar með borgarstjórn sem leggur áherslu á mannréttindi og velsæld allra íbúa sinna.

„Hatrið má ekki sigra“
Hinsegin dagar eru gengnir í garð með tilheyrandi lífi, litagleði og sýnileika. Gleðin nær svo ákveðnu hámarki í Reykjavík á morgun þegar Gleðigangan fer fram og margvíslegur hópur hinsegin fólks sameinast í kröfugöngu sem er á sama tíma mikill fögnuður.

Gleðilega hinsegin daga – um allt land
Hinsegin dagar fara fram þessa vikuna og óska ég öllum Íslendingum innilega til hamingju með þessa glæsilegu hátíð sem nær hámarki með gleðigöngunni á morgun, laugardag.

Að vera hinsegin, kynsegin, trans
Það er árið 2024 við ættum að vera farin að ná þessu að það eru ekki allir eins, hvað væri svosem gaman að því.

Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“
„Þetta lag skiptir mig svo miklu máli því það er svo persónulegt, þannig ég hlakka til að frumflytja það í kvöld en ég er líka smá stressuð,“ segir Helga Margrét Clarke söngkona. Helga samdi lag um nána manneskju í hennar lífi sem kom út sem trans fyrir tæplega ári síðan en lagið verður frumflutt í Gamla bíó í kvöld.

„Við mætum þessu með því að stækka fánann“
Bæjarráð í Hveragerði ákvað á fundi sínum í morgun að stækka regnbogafánann eftir að unnin voru á honum skemmdarverk í nótt. Starfsfólk bæjarins hefur vinnu við stækkuna í dag. Lögreglu hefur verið tilkynnt um skemmdarverkin.

Regnbogafáninn í Hveragerði útbíaður hatursorðræðu
Hvergerðingar komu saman í gær til að mála regnbogafánann á svokallaða Regnbogagötu en ljót sjón blasti við í morgun þar sem búið var að útbía fánann hatursorðræðu.

Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar
Hörður Torfason hefur beðið Auði Magndísi Auðardóttur og fyrrverandi stjórn Samtakanna 78 undir stjórn Hilmars Hildar Magnúsar afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við DV árið 2018. Í viðtalinu talaði hann um að Samtökin hefðu sætt yfirtöku og verið rænt af hópi BDSM fólks.

Varanlegur regnbogafáni við Barónstíg
Hinsegin dagar voru formlega settir í hádeginu þegar hinsegin fáninn var málaður fyrir framan Hinsegin félagsmiðstöð S’78 og Tjarnarinnar við Barónsstíg. Borgarstjóri tók lagði hönd á plóg.

Skemmtistaðurinn 22 opnaður á nýjan leik
Eftir átján ára hlé hefur skemmtistaðurinn 22 verið opnaður á nýjan leik á horni Laugavegs og Klapparstígs. Staðurinn verður samrekinn Kiki queer club, sem er á efri hæð hússins. Margrét Erla skemmtanastjóri segir hinseginsamfélagið hafa vantað rólegan bar, til viðbótar við dansklúbbinn Kiki.

Af dragdrottningum og grátkórum
Árið 2000 var haldið upp á lok Ólympíuleikanna í Sidney með stórri hátíð á Ólympíuleikvanginum. Þar mátti meðal annars sjá furðuleg farartæki á hlaupabrautinni, en það voru raunar risavaxnir glitrandi hælaskór á hjólum.