
Fangelsismál

Þegar lítil þúfa...
Okkur sem störfum í málefnum fanga og frelsissviptra líður oft eins og ráðamenn berji stanslaust höfðinu við steininn þrátt fyrir að við færum þeim nytsamlegar hugmyndir og skotheld rök. Svo koma dagar eins og í dag og þá sjáum við hjá Afstöðu að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Og það gleður okkur mikið.

Hættulegasti staðurinn á Litla Hrauni brátt úr sögunni
Alræmt torg á Litla Hrauni þar sem fangar úr öllum áttum geta rekist á hvorn annan, heyrir brátt sögunni til. Fangelsismálastjóri segir um að ræða hættulegasta staðinn innan fangelsissvæðins þar sem mjög oft komi til átaka.

Nýtt nafn á nýju fangelsi: Enginn fer „á Hraunið“
Nýtt fangelsi sem verður byggt við hliðina á Litla-Hrauni fær nýtt nafn. Fangelsismálastjóri segir löngu tímabært að loka „ömurlegri“ aðstöðu á Litla-Hrauni.

Nýtt fangelsi byggt á Litla-Hrauni
Stórtækar breytingar í fangelsismálum voru boðaðar á blaðamannafundi á Litla-Hrauni í morgun. Til stendur að byggja nýtt fangelsi, fjölga opnum rýmum á Sogni og endurskoða lög um fullnustu refsinga. Aukin áhersla verður lögð á betrun.

Fangar á Litla-Hrauni mættir til starfa á ný
Fangar á Litla hrauni mættu allir til vinnu í dag eftir að helmingur þeirra lagði niður störf í gær til að mótmæla bágum kjörum. Fangelsismálastjóri segir aðstæður sem sköpuðust hafa aukið álag á alla.

Strokufanginn gómaður eftir tveggja vikna flótta
Danelo Cavalcante, morðingi sem hefur gengið laus síðustu tvær vikur, hefur verið gómaður. Hann slapp úr fangelsi í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna á ótrúlegan átt á dögunum.

Þeim fjölgar sem er vísað beint úr landi að loknu gæsluvarðhaldi
Það sem af er ári hefur 44 einstaklingum verið vísað úr landi strax að loknu gæsluvarðahaldi en allt árið í fyrra var heildarfjöldinn 36. Fangelsismálastofnun hefur ekki upplýsingar um það hversu stór hluti hópsins eru hælisleitendur.

Tugir fanga færðir um set vegna flótta strokufangans
Um það bil fjörutíu fangar í HMP Wandsworth fangelsinu í suðvesturhluta Lundúna hafa verið færðir í annað fangelsi eftir að hinum 21 árs gamla Daniel Khalife tókst að strjúka úr fangelsinu á miðvikudag.

Batt sig undir sendiferðabíl og strauk úr fangelsi
Lögreglan í Bretlandi leitar nú 21 árs gamals fanga sem tókst að strjúka úr fangelsi í suðvesturhluta Lundúna í morgun. Mannsins er nú leitað um allt landið.

Milljarða framkvæmdir á fangelsinu á Litla-Hrauni
Milljarða framkvæmdir eru hafnar við fangelsið á Litla Hrauni en þar á að fara að byggja nýtt þjónustuhús, nýja varðstofu og nýtt fjölnotahús. Dómsmálaráðherra kynnti sér framkvæmdirnar og fékk í leiðinni einkanúmer að gjöf frá fangelsinu með nafni sínu en hún má þó ekki nota númerið því önnur er með nafnið hennar á bíl sínum.

„Pabbi hans er í fangelsi og við bara tölum um það“
„Við tölum mjög opið um þetta enda ætla ég ekki að láta barnið mitt upplifa þetta sem skömm á nokkurn hátt. Pabbi er bara í fangelsi og svona er það og það er bara allt í lagi, ekkert leyndarmál eða feluleikur,“ segir María Dís Knudsen.

„Mín upplifun er sú að það var verið að refsa mér endalaust fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“
Árið 2019 var Annþór Karlsson ásamt Berki Birgissyni sýknaður af ákæru um að hafa veitt samfanga sínum áverka í fangaklefa hans á Litla-Hrauni sem drógu hann til dauða. Samfanginn, Sigurður Hólm Sigurðsson lést með dularfullum hætti og án sýnilegra verka og neituðu þeir Börkur og Annþór sök frá upphafi. Málið er með þeim flóknari sem um getur í íslenskri réttarfarssögu, en það var til meðferðar hjá lögreglu og í réttarkerfinu í fjögur ár.

Fangar í hungurverkfalli hætt komnir: „Mjög óhugnalegt fyrir alla sem að þessu koma“
Hungurverkföllum fanga hér á landi hefur fjölgað undanfarin ár. Fangelsismálastjóri segir tilfellin nú alvarlegri og sláandi en dæmi eru um að menn hafi orðið mjög alvarlega veikir vegna næringarskorts.

Fangar lýsa baráttu við fíkniefni, fangelsi og fjölmiðla
„Ég vil meina að fangavist skemmi þig andlega og líkamlega. Þegar ég fór í fyrsta skipti þá var nánast vitað að ég færi aftur. Þú í raun og veru kannt ekkert annað og það er ekkert unnið með þér. Þér er ekki kennt neitt og það er ekkert sem grípur þig. Þá ferðu bara í það sem þú kannt og heldur því áfram og allir vinir þínir verða fyrrverandi fangar,“ segir íslenskur karlmaður sem afplánað hefur fleiri en einn fangelsisdóm.

Meintur handrukkari aftur á bak við lás og slá
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmanni verði gert að afplána 445 daga eftirstöðvar fangelsisdóms, sem hann fékk reynslulausn á í lok árs 2021. Maðurinn er með 26 mál í ferli hjá lögreglu, þar á meðal tvö sem varða grun um frelsisviptingar og stórfelldar líkamsárásir.

Túlka reglulega við viðkvæmar og flóknar aðstæður
Framkvæmdastjóri Alþjóðaseturs segir ekki vandamál að túlka fyrir hvern sem þarf á þjónustunni að halda. Þau séu vön að túlka við viðkvæmar aðstæður, eins og í fangelsum.

Mikil fækkun fíknifanga í íslenskum fangelsum
Aðeins 26,7 prósent fanga sátu inni fyrir fíkniefnabrot á síðasta ári. Ári áður var hlutfallið 37,4 prósent og um 60 prósent um aldamótin.

„Bróðir minn eyddi allt of mörgum árum bak við lás og slá í flestum fangelsum landsins“
„Hann langaði svo mikið að öðlast eðlilegt líf. Hann sagði að hann ætlaði aldrei að fara í fangelsi aftur. Hann var búinn að ganga í gegnum svakalega hluti í gegnum ævina og var löngu búinn að fá nóg af þessu öllu,“ segir Haraldur Freyr Helgason sem í tæp tuttugu ár horfði upp á eldri bróður sinn, fara inn og út úr fangelsi. Bróðir hans náði aldrei almennilegri fótfestu í lífinu og lést af völdum ofskömmtunar árið 2020.

„Svo allt í einu vakna ég upp á Hólmsheiði og enginn segir neitt“
Tinna Hilmarsdóttir Konudóttir afplánaði dóm á meðan heimsfaraldri stóð. Fyrst á Hólmsheiði og svo að Sogni. Hún segir eitt stærsta vandamálið sem hún upplifði innan fangelsisins hafa verið skort á upplýsingagjöf.

Mikil áskorun að fá túlkaþjónustu í fangelsin
Fangelsismálastjóri, Páll Winkel, segir það mikla áskorun að fá túlkaþjónustu í fangelsin en síðustu ár hefur verið mikið fjölgun meðal erlendra fanga í íslenskum fangelsum.

„Kvenfangar eiga aldrei að afplána með karlföngum“
Formaður Afstöðu, félags fanga, telur áríðandi að brugðist sé við lélegum aðstæðum kvenna í fangelsum á Íslandi.

Staða kvenna í fangelsum verri en karla
Fyrirkomulag við afplánun kvenna hér á landi er almennt til þess fallið að gera stöðu þeirra lakari samanborið við karlfanga. Þetta kemur fram í ítarlegri skýrslu umboðsmanns Alþingis um stöðu kvenna í fangelsum landsins.

Páll timbursali: „Hefði sætt mig við fjögur til fimm ár“
Páll Jónsson, tæplega sjötugur timbursali sem hlaut nýverið tíu ára fangelsisdóm fyrir stærsta kókaínmál Íslandssögunnar, segist sjá ólýsanlega eftir þeirri ákvörðun sinni að flytja inn fíkniefni. Hann segir dvölina í fangelsinu á Hólmsheiði óbærilega og að hann sé við það að gefast upp. Þá gagnrýnir hann rannsókn lögreglunnar á málinu harðlega og telur spillingu ríkja innan fíkniefnadeildarinnar. Hann telur sig jafnframt vita hver kom lögreglu á sporið.

Svona litu íslensk fangelsi út árið 1988
Árið 1988 voru fimm fangelsi starfrækt á Íslandi; Litla Hraun, Kvíabryggja, Hegningarhúsið, Síðumúlafangelsi og fangelsið á Akureyri. Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari eyddi degi á Litla Hrauni og í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og náði þar einstökum ljósmyndum sem sýna vistarverurnar í fangelsunum á þessum tíma.

Fjórir kynferðisbrotamenn sluppu við fangelsi vegna fyrningar
Tugir brotamanna sleppa við afplánun í fangelsi vegna fyrningar brota á hverju ári. Á undanförnum fimm árum hafa fjórir kynferðisbrotamenn sloppið við fangelsisvist.

Fleiri fangar koma út úr fangelsum í verri stöðu
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu félags fanga, segir fleiri fanga koma í verri stöðu út úr fangelsinu en þeir voru í þegar þeir hófu afplánun. Hann kveðst bjartsýnn á að breytingar verði gerðar en Guðmundur Ingi ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Vill fjölga opnum úrræðum í fangelsi og segir mat á sakhæfi til skoðunar
Dómsmálaráðherra vill stíga frekari skref í átt að betrunarstefnu og fjölga opnum úrræðum í fangelsi. Hann segir sérfræðinga í ráðuneytinu nú skoða mat á sakhæfi og hefur áhyggjur af skorti á úrræðum fyrir fólk að afplánun lokinni.

Leggur til nýtt úrræði fyrir alvarlega veika fanga
Dómsmálaráðherra mun leggja fyrir ríkisstjórnina tillögur að nýju úrræði fyrir fanga sem glíma við alvarleg andleg veikindi og þá borgara sem þurfa á öryggisvistun að halda. Hann undirbýr nú minnisblað um málið sem hann segir forgangsmál í ráðuneytinu.

Kannast ekki við að veikum föngum sé neitað um þjónustu
Framkvæmdastjóri geðþjónustu Landspítala kannast ekki við að veikum föngum sé neitað um þjónustu. Hún segir að um misskilning sé að ræða sem gæti byggt á skilningsleysi á báða bóga. Alltaf sé þó hægt að standa betur að málum.

Eigi sama rétt og aðrir en ekki sömu möguleika
Lögfræðingur sem rannsakaði hvort heilbrigðisþjónustu fanga væri ábótavant segir auðvelt að draga þá ályktun að stjórnvöld hafi ekki haft áhuga á málaflokknum enda hafi lítið sýnilegt breyst til batnaðar í málaflokknum þrátt fyrir mikinn þrýsting eftirlitsaðila.