Ítalía

Ítalía

Höfuðborg: Róm. Mannfjöldi: 58,9 milljónir (2025). Flatarmál: 301.340 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í gær hvaða fjórir geimfarar munu framkvæma næsta geimskot Artemis-áætlunarinnar. Þessir geimfarar eiga að fara á braut um jörðu og prófa þar lendingarför sem til stendur að reyna að lenda á tunglinu árið 2028. Þessari geimferð er lýst sem þeirri flóknustu um árabil.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar

Sumarið er tími ástarinnar þar sem fjölmörg pör nýta góða veðrið til að ganga í heilagt hjónaband. Stórstjörnur eru þar ekki undanskildar en fyrsta stóra stjörnubrúðkaupið fór fram síðastliðna helgi þegar söngkonan Dua Lipa og leikarinn Callum Turner fögnuðu ást sinni með vinum og vandamönnum á Sikiley.

Lífið
Fréttamynd

„Ég var löngu til­búin að giftast honum“

„Maður verður alveg smá sorgmæddur þegar þetta er búið. Þetta var svo skemmtilegt að mann langar að upplifa þetta oftar,“ segir hin nýgifta Gerður Huld Arinbjarnardóttir, oftast kennd við kynlífstækjaverslunina Blush.

Lífið
Fréttamynd

Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum inn­fæddra

„Maður lendir mjög oft í skemmtilegum týpum sem skamma mann og segja manni til og maður fær voða sjaldan að gera hluti í friði,“ segir listakonan Rakel Rögnvaldsdóttir sem er búsett í Mílanó og lærir þar grafíska hönnun og listræna stjórnun. Hún stendur á spennandi tímamótum en hefur lært gríðarlega mikið af því að búa á Ítalíu síðastliðin tvö og hálft ár.

Lífið
Fréttamynd

„Hann heitir bara Leó páfi held ég“

Umdeildur málflutningur kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um samkynhneigða var ekki ræddur á fundi forseta lýðveldisins með Leó fjórtánda páfa í dag. Forsetinn segist ávallt tala fyrir jafnréttisgildum Íslendinga en áherslan hafi frekar verið á stöðu heimsmálanna. Ljóst sé hvað nýi páfinn verði kallaður í samfélagsmiðlafærslum.

Innlent
Fréttamynd

Alex Zanardi látinn

Ítalinn Alex Zanardi er látinn 59 ára að aldri. Zanardi átti stórmerkilegan feril, fyrst sem ökuþór og síðar sem gullverðlaunahafi á Ólympíumóti fatlaðra, eftir alvarlegt slys sem breyttu lífi hans.

Sport
Fréttamynd

Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikil­ey

Athafnakonan, tískudrottningin og fyrrum forsetafrú Íslands Dorrit Moussaieff átti nýverið æðislega daga á Ítalíu þar sem hún fagnaði ástinni með vinum og djammaði með ofurfyrirsætunni Adwoa Aboah. 

Lífið
Fréttamynd

Tala dýrsins 666 og Neró keisari

Fáir eiga sér jafn blóði drifin og skrautleg eftirmæli í mannkynssögunni og rómverski keisarinn Neró. Flestir hafa heyrt söguna af geðsjúka harðstjóranum sem lék á fiðlu á meðan Rómaborg brann til ösku. En kemur það heim og saman við staðreyndir?

Lífið
Fréttamynd

Námið ekki eins krefjandi og á Tene

Fiðluleikarinn Matthildur Traustadóttir fæddist á Ítalíu, ólst upp á Spáni, gekk í menntaskóla á Íslandi og lærir nú við tónlistarháskólann Oberlin í Bandaríkjunum. Lengi vel átti hún erfitt með að velja á milli balletts og fiðluleiks og spiluðu álagsmeiðsli inn í endanlegt val. Matthildur er ein fjögurra sem kemur fram á tónleikunum Ungum einleikurum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld.

Tónlist
Fréttamynd

Hætta að styrkja Fen­eyjart­víæringinn vegna þátt­töku Rússa

Evrópusambandið ætlar að hætta að styrkja ítölsku listahátíðina Feneyjartvíæringinn vegna ákvörðunar stjórnenda hennar að bjóða rússneskum listamönnum. Þetta verður í fyrsta skipti sem Rússar taka þátt eftir að innrás þeirra í Úkraínu hófst af fullum þunga árið 2026.

Erlent
Fréttamynd

Tólf tonnum af Kitkat rænt

Óprúttnir aðilar rændu um tólf tonnum af vinsæla súkkulaðistykkinu Kitkat í flutningi í vikunni. Um rúmlega fjögur hundruð þúsund stykki var að ræða, og það rétt fyrir páska, en Nestlé segir þjófnaðinn ekki koma til með að hafa áhrif á súkkulaðibirgðir Evrópubúa.

Erlent
Fréttamynd

Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“

Poppstjörnuna Chappell Roan óraði sennilega ekki fyrir því þegar hún fékk sér morgunmat á hóteli í Sao Paulo í gærmorgun að hún myndi reita bæði fótboltamanninn Jorginho og borgarstjóra Rio de Janeiro til reiði. Stjúpdóttir Jorginho hafði gengið framhjá borði Roan og fengið skammir í hattinn frá öryggisverði í kjölfarið. Roan segir öryggisvörðinn hafa verið á vegum hótelsins og hún hati ekki börn.

Tónlist
Fréttamynd

Einn helsti sam­starfs­maður Berlusconi látinn

Umberto Bossi, stofnandi ítalska harðlínuflokksins Norðurbandalagsins, er látinn 84 ára að aldri. Undir stjórn Bossi átti flokkurinn sæti í ríkisstjórnum Silvios Berlusconi, þáverandi forsætisráðherra.

Erlent
Fréttamynd

Brotist inn hjá Alberti

Brotist var inn á heimili Alberts Guðmundssonar knattspyrnumanns í Flórens á Ítalíu í gær. Nokkrum verðmætum var stolið.

Innlent