Brasilía
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 16 ›
Stærsti kjötframleiðandi heims greiðir lausnargjald í kjölfar netárásar Stærsti kjötframleiðandi í heimi, brasilíska stórfyrirtækið JBS, hefur neyðst til að greiða tölvuþrjótum lausnargjald upp á um 11 milljónir dollara. Erlent 10.6.2021 06:53
Kalla eftir því að Bolsonaro verði ákærður fyrir embættisglöp Þúsundir hafa leitað út á götur Brasilíu til þess að mótmæla viðbrögðum Jair Bolsonaro, forseta landsins, og ríkisstjórn hans við kórónuveirufaraldrinum. Mótmælendur í höfuðborginni söfnuðust saman fyrir utan þinghúsið í gær og kölluðu eftir því að forsetinn verði ákærður fyrir embættisglöp. Erlent 30.5.2021 08:25
Rassían í Ríó: Saka lögregluna um aftökur utan dóms og laga Íbúar í fátækrahverfi í Río de Janeiro í Brasilíu saka lögregluna í borginni um að hafa myrt fólk sem vildi gefast upp og ráðist inn á heimili án leitarheimildar í blóðugustu rassíu í sögu borgarinnar í gær. Að minnsta kosti tuttugu og fimm manns féllu, þar á meðal einn lögreglumaður. Erlent 7.5.2021 12:31
25 í valnum eftir eina mannskæðustu atlögu lögreglunnar í Ríó Minnst einn lögregluþjónn og 24 meintir glæpamenn eru látnir eftir mannskæðustu atlögu lögreglunnar í Brasilíu gegn glæpagengi um árabil. Atlagan beindist gegn fíkniefnasmyglurum í einu af fátækrahverfum Ríó de Janeiro, sem kallast Jacarezinho og réðust þungvopnaðir lögregluþjónar til atlögu á brynvörðum bílum og þyrlum. Erlent 6.5.2021 23:26
Fimm látnir eftir sveðjuárás á dagheimili Fimm eru látnir eftir sveðjuárás átján ára karlmanns á dagheimili í suðurhluta Brasilíu í gær. Lögregla segir að þrjú börn, öll yngri en tveggja ára, hafi látist í árásinni, auk tveggja starfsmanna. Erlent 5.5.2021 08:14
Stefna brasilískum yfirvöldum fyrir meiðyrði vegna Spútnik V Framleiðandi rússneska kórónuveirubóluefnisins Spútnik V ætlar að stefna brasilísku heilbrigðiseftirlitsstofnuninni sem hafnaði beiðni nokkurra ríkja um að flytja efnið inn fyrir meiðyrði. Stjórnendur stofnunarinnar vísa ásökununum um meiðyrði á bug. Erlent 29.4.2021 23:17
Brasilía hafnar rússneska bóluefninu Lyfjayfirvöld í Brasilíu synjuðu nokkrum þarlendum ríkjum um heimild til þess að flytja inn rússneska bóluefnið Spútnik V gegn kórónuveirunni. Þau telja trúverðug gögn um virkni bóluefnisins skorta og vísa til galla á tilraunum með það. Rússar segja pólitík búa að baki synjuninni. Erlent 28.4.2021 21:54
Rannsaka viðbrögð Bolsonaro við faraldrinum Brasilíska þingið rannsakar nú viðbrögð ríkisstjórnar Jairs Bolsonaro forseta við kórónuveirufaraldrinum sem hefur orðið að minnsta kosti 391.000 manns að bana í landinu. Bolsonaro segist engar áhyggjur hafa af rannsókninni jafnvel þó að hún gæti leitt til þess að hann yrði sviptur embætti. Erlent 27.4.2021 22:21
Stendur ekki við gefin loftslagsloforð Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, samþykkti í dag niðurskurð í fjárveitingum til umhverfismála þrátt fyrir að hafa lofað auknum fjármunum í málefnið á loftslagsráðstefnu í gær. Erlent 24.4.2021 15:19
Líkja faraldrinum í Brasilíu við „líffræðilegt Fukushima“ Útlit er nú fyrir að Brasilía gæti tekið fram úr Bandaríkjunum sem það ríki þar sem flestir hafa látið lífið í kórónuveirufaraldrinum. Brasilískur læknir líkir ástandinu í heimalandi sínu við kjarnaofn sem bræðir úr sér. Erlent 6.4.2021 23:49
Skiptir út sex ráðherrum í ríkisstjórninni Jair Bolsonaro Brasilíuforseti hefur skipt út sex ráðherrum í ríkisstjórn sinni en forsetinn sætir nú miklum þrýstingi vegna nýrrar bylgju í faraldrinum þar í landi. Erlent 30.3.2021 07:57
Bolsonaro greiðir blaðamanni bætur vegna niðrandi ummæla Dómstóll í Brasilíu hefur dæmt Jair Bolsonaro, forseta Brasilíu, til þess að greiða kvenkyns blaðamanni bætur vegna ærumeiðandi ummæla sem hann lét falla í febrúar á síðasta ári. Blaðamaðurinn vann sambærilegt mál gegn syni forsetans í janúar á þessu ári. Erlent 28.3.2021 10:22
Verður fjórði heilbrigðisráðherrann á einu ári Hjartalæknirinn Marcelo Queiroga mun taka við embætti heilbrigðisráðherra Brasilíu og verður hann sá fjórði til að gegna embættinu á einu ári. Ekki hafa jafnmargir látist frá upphafi faraldursins og í síðustu viku Erlent 16.3.2021 07:33
Telja sjúkrahús í Brasilíu komin að þolmörkum Heilbrigðiskerfið flestum stærstu borgum Brasilíu er að hruni komið vegna fjölda sjúklinga með Covid-19, að mati heilbrigðisstofnunar landsins. Heimshlutanum er talin standa ógn af aðgerðaleysi brasilískra stjórnvalda við faraldrinum sem fær að geisa nær hömlulaust. Erlent 10.3.2021 14:24
Einn frægasti leikvangur heims verður endurskírður í höfuðið á Pele Borgarstjórnin í Ríó hefur ákveðið að heiðra einn besta knattspyrnumann sögunnar með því að nefna heimsþekktan íþróttaleikvang eftir honum. Fótbolti 10.3.2021 09:31
Heilbrigðiskerfi Brasilíu að sligast Heilbrigðiskerfi stærstu borga Brasilíu er komið að fótum fram vegna útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Fiocruz stofnuninni. Erlent 10.3.2021 07:32
Ógildir dóm yfir Lula sem gerir honum kleift að bjóða sig fram á ný Dómari í Brasilíu hefur ógilt dóm yfir Luiz Inácio Lula da Silva, fyrrverandi forseta landsins, sem hann hlaut vegna spillingar. Niðurstaðan gerir það að verkum að Lula gæti boðið sig fram að nýju í forsetakosningunum 2022. Erlent 9.3.2021 07:37
Dauðsföll ná nýjum hæðum og Bolsonaro segir fólki að hætta að væla Dauðsföll vegna Covid-19 hafa náð nýjum hæðum í Brasilíu. Undanfarna tvo daga hefur metfjöldi fólks dáið vegna sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur og í gærkvöldi sagði Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, fólki að hætta að væla. Erlent 5.3.2021 10:34
„Ógleymanlegur dagur“ þegar Pelé var bólusettur Brasilíski fótboltasnillingurinn Pelé var bólusettur fyrir kórónuveirunni í gær. Fótbolti 3.3.2021 17:01
Þurfa að velja milli sjúklinga vegna súrefnisskorts Víða í Afríku og Suður-Ameríku glíma heilbrigðisstarfsmenn við súrefnisskort. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og læknar segja skortinn hafa verið fyrirsjáanlegan og að hann hafi leitt til óþarfa dauðsfalla. Erlent 25.2.2021 12:23
Faðir Alissons hjá Liverpool drukknaði í Brasilíu Alisson Becker, markvörður Englandsmeistara Liverpool, fékk hræðilega fréttir frá heimalandi sínu í gær. Enski boltinn 25.2.2021 08:01
Nike samdi við átta ára gamlan fótboltastrák Kauan Basile verður bara ellefu ára gamall þegar fyrsti samningurinn hans við Nike rennur úr. Fótbolti 29.1.2021 12:00
Forseti félagsins og fjórir leikmenn fórust Brasilíska fótboltafélagið Palmas varð fyrir miklu áfalli í gær þegar flugvél á vegum félagsins fórst. Fótbolti 25.1.2021 17:01
Loka á flug vegna brasilíska afbrigðisins Bretlandsstjórn bannaði í dag komur ferðamanna frá Suður-Ameríku vegna nýs, brasilísks afbrigðis kórónuveirunnar. Erlent 15.1.2021 17:33
Brasilískt afbrigði veirunnar veldur auknum áhyggjum Yfirvöld í Bretlandi hafa auknar áhyggjur af nýju afbrigði kórónuveirunnar sem á uppruna sinn í Brasilíu og virðist vera meira smitandi en það sem kom faraldrinum af stað, líkt og tvö önnur afbrigði sem hafa greinst og eru rakin annars vegar til Bretlands og Suður-Afríku. Erlent 15.1.2021 10:27
Sinovac með rétt rúmlega 50 prósent virkni Kínverska bóluefnið Sinovac sem þróað var gegn Covid-19 virðist aðeins hafa rétt rúmlega 50 prósent virkni ef marka má niðurstöður klínískra rannsókna í Brasilíu. Erlent 13.1.2021 07:18
Ígildi íslensku þjóðarinnar liggur í valnum Alls hafa 365.346 dáið vegna Covid-19 í Bandaríkjunum, samkvæmt samantekt Johns Hopkins háskólans, þar sem haldið er utan um opinberar tölur. Það þýðir að fleiri hafa dáið þar en Íslendingar voru í upphafi síðasta árs. Erlent 8.1.2021 12:24
Marta trúlofaðist samherja sínum Ein besta fótboltakona allra tíma, hin brasilíska Marta, hefur trúlofast samherja sínum hjá Orlando Pride, Toni Pressley. Fótbolti 6.1.2021 16:30
Móðir Ronaldinho með COVID-19 og á gjörgæslu: „Vertu sterk, mamma“ Mamma fyrrum brasilíska knattspyrnumannsins, Ronaldinho, hfeur verið lögð inn á spítala eftir að hún greindist með kórónuveiruna. Fótbolti 22.12.2020 11:01
Staðfestu níu ára fangelsisdóm Robinho Fyrrum stjörnuleikmaður Real Madrid og Manchester City tapaði áfrýjun sinni á Ítalíu í gær. Fótbolti 11.12.2020 11:00