Seðlabankinn
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 47 ›
Lélegasti seðlabanki norðan Alpafjalla heldur strikinu Það var vissulega áhugavert að sjá hvort nýr peningastefnumaður, Ásgerður Ósk Pétursdóttir, gæti hrint umbótum af stað í lélegasta seðlabanka í norðanverðri Evrópu, Seðlabanka Íslands. Nú er ljóst að þess er ekki að vænta að óbreyttu. Síðasta ákvörðun peningastefnunefndar um 10% stýrivexti og grein Ásgerðar Óskar í nýjasta tölublaði Vísbendingar taka af öll tvímæli. Skoðun 5.9.2023 07:30
Tilraunadýr Seðlabankans Seðlabankastjóri hefur líkt 14 stýrivaxtahækkunum bankans við n.k. tilraun. Í hartnær tvö ár hef ég ásamt tugþúsundum annarra Íslendinga verið í óumbeðnu ólaunuðu aukastarfi sem tilraunadýr seðlabankastjórans og peningastefnunefndar. Skoðun 4.9.2023 10:30
Landsbankinn hækkar vextina Landsbankinn tilkynnti síðdegis í gær um hækkun á vöxtum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans og tekur ný vaxtatafla gildi í dag. Arion banki tilkynnti sömuleiðis um vaxtahækkanir í gær. Viðskipti innlent 1.9.2023 07:29
Upplifun seðlabankastjóra Seðlabankastjóri hélt ræðu á Hólum í Hjaltadal í ágúst þar sem hann gerði að umtalsefni framtíð og upplifun komandi kynslóða. Ungt fólk í blóma lífsins og þar með talin þrjú af börnum mínum fjórum með mökum, tóku lán vegna húsnæðiskaupa eftir að Seðlabankastjóri talaði um að loksins gætu íbúðarkaupendur greitt sambærilega vexti af lánum sínum og jafnaldrar þeirra í Evrópu. Skoðun 28.8.2023 07:31
„Skref í rétta átt“ en þarf meira aðhald til að ná niður verðbólguvæntingum Þótt boðaðar aðgerðir fjármála- og efnahagsráðherra um aukið aðhald í ríkisrekstrinum á komandi ári, sem nemur samtals um sautján milljörðum króna, séu jákvæðar þá eru þær ólíklega að hafa einhver áhrif til lækkunar á verðbólguvæntingum, að sögn sjóðstjóra á skuldabréfamarkaði. Síðasta vaxtahækkun Seðlabankans um 50 punkta var einkum rökstudd með vísun til hárra verðbólguvæntinga til lengri tíma en þær hafa lítið lækkað að undanförnu. Innherji 27.8.2023 11:58
„Heppilegast“ að gjaldeyrismarkaðurinn taki við metinnflæði vegna sölu á Kerecis Ekki er hægt að útiloka að Seðlabankinn muni þurfa að koma að kaupum á hluta þess mikla gjaldeyris sem kemur til landsins við söluna á Kerecis, að sögn seðlabankastjóra, en reikna má með að íslenskir fjárfestar muni á næstu dögum fá um eða yfir 100 milljarða greidda til sín. Hann hefur samt „fyllstu trú“ á því að gjaldeyrismarkaðurinn muni geti tekið á móti innflæðinu án aðkomu bankans. Innherji 25.8.2023 11:40
„Þarf að fara og sækja tekjur þar sem svigrúm er“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir verðbólguvæntingar benda til þess að almenningur hafi ekki trú á því að ríkisstjórnin geti náð verðbólgu niður. Fjármagna þurfi að fullu næsta kjarapakka sem sé ómögulegt með ríkisstjórn sem geti ekki komið sér saman um ákvarðanir. Innlent 24.8.2023 22:29
Fólk á sjötugsaldri í skuldavanda vegna smálána Talsvert hefur borið á því að fólk á sextugs og sjötugsaldri leiti til Neytendasamtakanna vegna smálánaskulda sem það hefur neyðst til að taka. Formaður telur að ferðaþjónustan ætti að axla ábyrgð á verðbólgunni en ekki neytendur. Innlent 24.8.2023 19:17
Vaxtahækkun fyrir fjármálaelitu Með nýjustu vaxtahækkun svipti seðlabankinn endanlega af sér gærunni, bæði er það orðið algjörlega ljóst að seðlabankastjóri er strengjabrúða fjármagnseigenda og á fullu að reka alla inn í verðtryggð óhagstæð lán, lán sem stuðla að því að eigið fé launafólks hverfur í húsnæði á mjög stuttum tíma. Skoðun 24.8.2023 13:01
Segir aðgerðaleysi ríkisstjórnar bitna mest á almenningi Þingkona Samfylkingarinnar segir áríðandi að ríkisstjórnin bregðist við erfiðu efnahagsástandi í landinu. Eina ráðið geti ekki verið stýrivaxtahækkanir. Hún kallar eftir alvöru aðgerðum sem virki núna fyrir heimilin í landinu. Viðskipti innlent 24.8.2023 13:00
Fyrirtækin sækja í verðtryggð lán samhliða hækkandi vaxtastigi Útlánavöxtur til atvinnulífsins er núna í auknum mæli borinn uppi af verðtryggðum lánum samhliða hækkandi vaxtastigi en ásókn fyrirtækja í slík lán hefur ekki verið meiri um langt skeið. Eftir vísbendingar um að draga væri nokkuð úr nýjum útlánum til fyrirtækja jukust þau talsvert að nýju í liðnum mánuði. Innherji 24.8.2023 11:52
Nothing left to cut back This week, the peningastefnunefnd of the central bank has now seen fit to raise interest rates for the 14th time in a row, under the auspices of controlling inflation by forcing people living in Iceland to spend less, and by making the cost of living prohibitively expensive. Skoðun 24.8.2023 07:01
Fólk að bugast vegna aukinnar greiðslubyrði Veruleg fjölgun hefur orðið á því að fólk leitar til Hagsmunasamtaka heimilanna vegna greiðsluerfiðleika og fer þeim enn fjölgandi. Útlit er fyrir að fólk gæti farið að missa heimili sín vegna aukinnar greiðslubyrði. Innlent 23.8.2023 20:30
Vaxtahækkanir Seðlabankans ýti undir verðbólgu Stýrivextir hafa ríflega tólffaldast á tveimur árum og hafa ekki verið hærri í fjórtán ár. Seðlabankastjóri segir verðhækkanir, þenslu í ferðaþjónustu og spennu á vinnumarkaði skýra hækkun vaxta. Hagsmunasamtök og verkalýðsfélög fordæmdu hækkunina í dag. Viðskipti innlent 23.8.2023 19:00
Skilur gagnrýnina en Seðlabankinn þurfi að ná niður háum verðbólguvæntingum „Við erum að beita peningastefnunni svona harkalega af því að við erum ekki að fá mikla aðstoð frá öðrum,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, en viðurkennir um leið að þegar vextirnir eru hækkaðir svona skarpt þá sé hætta á að það valdi harðri lendingu í efnahagslífinu. Fjórtánda vaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabankans í röð á rétt rúmlega tveimur árum, nú síðast í morgun um 50 punkta, var nánast alfarið réttlætt með vísun til hárra verðbólguvæntinga til lengri tíma á meðan flestir hagvísar sýna að farið er að hægja hraðar á umsvifum í hagkerfinu en áður var spáð. Innherji 23.8.2023 18:19
Seðlabankinn telur að atvinnuleysi aukist í 4,4 prósent á tveimur árum Vísbendingar eru um að hægja muni á vinnuaflseftirspurn næsta misserið. Niðurstöður sumarkönnunar Gallup benda til þess að dregið hafi úr ráðningaráformum fyrirtækja en að þau séu þó enn yfir meðallagi, segir í Peningamálum Seðlabankans. Innherji 23.8.2023 14:37
Öfgafullur seðlabanki? Enn hækkar Seðlabanki Íslands stýrivextina, þó raunvextir séu þegar komnir yfir langtímameðaltal (1,5%). Með stýrivexti í 9,25% og verðbólgu í 7,6% er bankinn kominn í mikla sérstöðu þegar litið er til þeirra landa sem við berum okkur saman við. Skoðun 23.8.2023 12:35
Dekur við bankana og atlaga að íslenskum heimilum Ýmis samtök og verkalýðsforingjar lýsa þungum áhyggjum vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í morgun. Hækkunin er sögð atlaga að íslenskum heimilum. Viðskipti innlent 23.8.2023 12:29
Hagkerfið ennþá yfirspennt Seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar sagði að hagkerfið væri ennþá yfirspennt þegar nefndin hækkaði stýrivexti fjórtánda skiptið í röð í morgun. Peningastefnan hafi virkað en verkefnið hafi stækkað vegna gríðarlegs hagvaxtar. Viðskipti innlent 23.8.2023 11:22
Mesti samdráttur í íbúðafjárfestingu frá fjármálakreppunni 2008 Íbúðafjárfesting dróst saman um 14 prósent á milli ára á fyrsta ársfjórðungi. Það er mesti samdráttur frá fjármálakreppunni 2008, segir aðalhagfræðingur Seðlabankans. Íbúðafjárfesting reyndist töluvert minni en Seðlabankinn hafði gert ráð fyrir í spá. Innherji 23.8.2023 11:20
Bein útsending: Rökstyðja fjórtándu stýrivaxtahækkunina í röð Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 23.8.2023 09:01
Hækkar vextina um 50 punkta og sendir harðan tón vegna hættu á „þrálátri“ verðbólgu Peningastefnunefnd Seðlabankans gekk lengra en flestir greinendur og markaðsaðilar höfðu spáð fyrir um þegar hún hækkaði meginvexti bankans um 50 punkta í morgun, úr 8,75 prósentum í 9,25 prósent, og vísaði til þess að þrátt fyrir að mæld verðbólga hafi komið niður að undanförnu þá eru verðbólguhorfur til lengri tíma nánast óbreyttar. Hætta er á þrálátri verðbólgu og nefndin telur því nauðsynlegt að herða taumhaldið enn frekar á næstunni. Innherji 23.8.2023 08:54
Vaktin: Seðlabankinn hækkar stýrivexti enn á ný Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,50 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 8,75 prósentum í 9,25. Viðskipti innlent 23.8.2023 07:31
Vaxtaálag á lánum banka til heimila og fyrirtækja sjaldan verið lægra Vaxtaálagið á nýjum útlánum í bankakerfinu til atvinnulífsins og heimila hefur fallið skarpt á síðustu misserum, einkum þegar kemur að íbúðalánum en munurinn á markaðsvöxtum og þeim vaxtakjörum sem bankarnir bjóða á slíkum lánum er nú sögulega lítill. Aukin samkeppni á innlánamarkaði á síðustu árum hefur meðal annars valdið því að vextir á óbundnum sparireikningum hafa nú aldrei verið hærri sem hlutfall af stýrivöxtum Seðlabankans. Innherji 22.8.2023 16:12
Frekari vaxtahækkanir óþarfar Það bárust jákvæð tíðindi í lok júlí þegar verðbólga hjaðnaði nokkuð milli mánaða og mældist 7,6%. Ljóst er að verðbólga er enn óásættanlega mikil en tölurnar gefa þó væntingar um að toppnum sé náð, verðbólga hafi náð hámarki og stýrivextir einnig. Sú þróun myndi styðja við gerð langtímasamnings á vinnumarkaði. Skoðun 21.8.2023 15:00
Markaðurinn klofinn hversu langt verður gengið við næstu vaxtahækkun Skiptar skoðanir eru á því hvort lækkandi verðbólga og kólnun á húsnæðismarkaði, ásamt vísbendingum um minnkandi einkaneyslu, séu nægjanlegt tilefni fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans til að fara í minnstu mögulegu vaxtahækkun eftir þann harða tón sem hún sendi frá sér í lok maí. Naumur meirihluti markaðsaðila væntir þess, samkvæmt könnun Innherja, að vextir bankans verði hækkaðir um 25 punkta á miðvikudaginn á meðan aðrir telja að hann eigi engra annarra kosta völ en að ráðast í 50 punkta hækkun með hliðsjón af óbreyttu verðbólguálagi og mikilvægi þess að ná upp raunstýrivöxtum. Innherji 21.8.2023 11:08
Háar verðbólguvæntingar knýja herskáan Seðlabanka í 50 punkta vaxtahækkun Fyrri yfirlýsingar peningastefnunefndar gefa skýrt til kynna að nefndin sé í „kapphlaupi við tímann“ um að ná niður verðbólgu og verðbólguvæntingum, sem hafa lítið breyst frá síðustu vaxtahækkun, áður en kjaraviðræður hefjast og því er útlit fyrir að vextir Seðlabankans hækki um 0,5 prósentur í næstu viku, að mati greiningar Arion banka. Misvísandi merki eru um að farið sé að hægja á innlendri eftirspurn en hagfræðingar Arion vara við því að hætta sé á að vaxtahækkanir „gangi of langt“ og nefndin vanmeti mögulega skaðlegu áhrifin af þeim á hagkerfið. Innherji 18.8.2023 12:44
Spá sömuleiðis enn einni stýrivaxtahækkuninni í næstu viku Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti sína á næsta vaxtaákvörðunardegi, á miðvikudaginn í næstu viku. Viðskipti innlent 18.8.2023 12:25
Spá fjórtándu stýrivaxtahækkuninni í röð Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti bankans um 0,25 prósentustig í næstu viku. Viðskipti innlent 16.8.2023 13:35
Forstjóri Stoða gagnrýnir stjórnvöld fyrir ákvörðunarfælni í orkumálum Forstjóri eins stærsta fjárfestingafélagsins landsins gagnrýnir stjórnvöld fyrir ákvörðunarfælni í orkumálum og segir ríkisstjórnina virðast vera sátta með að fylgja þeirri stefnu að vona að „þetta reddist“ þótt ljóst sé að ekki er til næg orka í kerfinu. Hann vonar að jákvæð viðbrögð stjórnmálamanna við sölunni á Kerecis marki „vitundarvakningu“ um mikilvægi erlendrar fjárfestingar sem sé forsenda þess að ná jafnvægi í gjaldeyrismálum þjóðarinnar meðan lífeyrissjóðirnir horfa í auknum mæli út fyrir landsteinana í sínum fjárfestingum. Innherji 13.8.2023 12:10