Vill færa Bretum von á nýjan leik Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, segir að breskir stjórnmálamenn verði að standa sig betur. Hann segist skilja að kjósendur séu komnir með upp í kok af pólitík í Bretlandi og að yfirvöld og stjórnmálin verði að vinna í hag almennings. Hann segist vilja færa Bretum von á nýjan leik. Erlent 20.7.2026 13:18
„Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Andy Burnham, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, tekur við sem forsætisráðherra landsins í dag þegar Keir Starmer hverfur á braut. Starmer mun flytja sína síðustu ræðu sem forsætisráðherra nú fyrir hádegið áður en hann og arftaki hans halda á fund konungs í Buckingham höll, þar sem Karl konungur mun leggja blessun sína yfir valdaskiptin. Erlent 20.7.2026 07:39
Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, er nú formlega formaður Verkamannaflokksins. Hann tekur við forsætisráðherraembættinu af Keir Starmer á mánudaginn. Burnham heitir því að verða forsætisráðherra allra Breta, hlusta á þjóðina og vinna í hennar þágu. Erlent 17.7.2026 12:20
Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Dómstóll í Skotlandi dæmdi þarlendan karlmann í átta ára fangelsi fyrir manndráp vegna sjálfsvígs eiginkonu hans. Þetta er í fyrsta skipti sem maður sem beitir maka sinn ofbeldi er gerður ábyrgur fyrir sjálfsvígi. Erlent 10. apríl 2026 14:59
Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. Erlent 1. apríl 2026 22:11
Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skoska þingið hefur hafnað lögleiðingu dánaraðstoðar en tillaga þess efnis var felld með 69 atkvæðum á móti 57. Frumvarpið hafði mætt töluverðri mótspyrnu og þá var harðlega deilt um það á þinginu í síðustu viku hvort einstaklingar í viðkvæmri stöðu myndu njóta nægilegrar verndar frá mögulegum þvingunum. Erlent 18. mars 2026 08:12
Eldhaf í Glasgow Umfangsmikill eldur kviknaði í fornfrægri fjögurra hæða byggingu við hlið mikilvægustu lestarstöðvarinnar í Glasgow í Skotlandi í gærkvöldi. Þar logaði lengi mikið eldhaf stjórnlaust og er byggingin að miklum hluta hrunin. Ekki er vitað til þess að nokkurn hafi sakað. Erlent 9. mars 2026 08:04
Skotar fá frídag vegna HM Til að fagna því að vera komnir á heimsmeistaramótið í fótbolta í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár fá Skotar auka frídag. Fótbolti 6. janúar 2026 10:30
Fannst látinn á fjöllum degi eftir afmælisdaginn Skoski söngvarinn og verslunareigandinn Andrew Ure fannst látinn á fjallinu Ben Vane, daginn eftir afmælisdag sinn, eftir að hafa lagt einn af stað í fjallgöngu á gamlársdag til að prófa nýjan klifurbúnað. Lífið 5. janúar 2026 10:54
Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Sveitastjórn Múlaþings hyggst taka til skoðunar að hefja ferjusamgöngur milli Seyðisfjarðar og Skotlands. Bæjarfulltrúi telur að slíkt samstarf gæti bætt stöðu atvinnumála. Innlent 18. desember 2025 19:27
Vellinum í Edinborg lokað um stund og seinkanir mögulegar Edinborgarflugvelli var lokað í skamma stund í morgun vegna bilana hjá þjónustuaðila flugumferðarstjórnarinnar á vellinum. Að sögn Guðna Sigurðssonar, staðgengils forstöðumanns samskipta hjá Icelandair, kann lokunin að hafa einhverja seinkun í för með sér fyrir farþega félagsins. Erlent 5. desember 2025 11:02
Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, segir blikur á lofti í breskum stjórnmálum. Sótt sé að stofnunum sem gegni lykilhlutverki í lýðræðissamfélagi, þar á meðal fjölmiðlum á borð við BBC. Þótt fjölmiðillinn hafi gert mistök og sé ekki hafin yfir gagnrýni, sé markvisst reynt að grafa undan stofnuninni. Þá óttast Sturgeon mögulegt bakslag í kvennréttindabaráttunni en hún segir konur í leiðtogastöðum verða fyrir auknu aðkasti frá því sem var þegar hún var að hefja sinn leiðtogaferil í stjórnmálum. Erlent 10. nóvember 2025 20:53
Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Skosk kona notaði gervibumbu í marga mánuði, falsaði sónarmyndir, þóttist hafa eignast dóttur og reyndi að telja fólki trú um að dúkka væri dóttir hennar. Upp komst um blekkingarleikinn þegar hún sagði dótturina hafa dáið. Lífið 23. október 2025 15:26
Falin myndavél á þingklósettinu og ósæmilegar myndir af börnum Skoski þingmaðurinn Colin Smyth hefur verið ákærður fyrir að koma falinni myndavél fyrir á salerni í skoska þinginu. Fyrr í mánuðinum var Smyth handtekinn fyrir að vera með ósæmilegt myndefni af börnum í fórum sér. Erlent 29. ágúst 2025 08:15
Sæti Artúrs logar Sinueldur kviknaði á Sæti Artúrs, fjallinu sem gnæfir yfir Edinborg, í dag. Fjallið er vinsæll áfangastaður ferðamanna og borgarbúa á hlýjum sumardögum en í dag sást login og reykstrókarnir um alla borgina. Erlent 10. ágúst 2025 22:12
Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Donald Trump Bandaríkjaforseti og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins undirrituðu í dag viðskiptasamning sem felur í sér fimmtán prósenta heildartoll á innflutning Evrópusambandsríkja til Bandaríkjanna. Erlent 27. júlí 2025 22:03
Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Icelandair fagnar því um þessar mundir að áttatíu ár eru liðin frá fyrsta millilandaflugi Íslendinga. Afmælisins var sérstaklega minnst á flugvellinum í Glasgow í fyrradag en fyrsta flugið frá Íslandi var einmitt til Skotlands. Innlent 13. júlí 2025 22:32
Robertson vildi ekki ræða Liverpool Andrew Robertson, fyrirliði skoska landsliðsins og leikmaður Liverpool á Englandi, vildi ekki ræða félagsliðið sitt í viðtölum fyrir landsleik Skota við Ísland sem fram fer í kvöld. Fótbolti 6. júní 2025 08:51
Allt snýst um McTominay í Skotlandi: „Reif Serie A í sig“ Framganga Skotans Scott McTominay er nánast það eina sem kemst að í Skotlandi þessa dagana í aðdraganda landsleiks Íslands við heimamenn á Hampden Park annað kvöld. Andrew Robertson hrósar honum í hástert. Fótbolti 5. júní 2025 15:02
Játar sök vegna smygls á 60 kílóum af kannabisi Jay Emmanuel-Thomas, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur játað sök vegna tilraunar til að smygla um 60 kílóum af kannabisi til Englands. Fótbolti 21. maí 2025 15:15
Hefja flug til Edinborgar og Malaga Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbul og Miami. Viðskipti innlent 15. maí 2025 12:29
Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Hæstiréttur Bretlands komst að þeirri niðurstöðu í dag að ákvæði jafnréttislaga um konur næðu aðeins til „líffræðilegs kyns“ en ekki trans kvenna. Hópur andstæðinga trans fólks háði áralanga baráttu fyrir dómstólum til þess að fá þá niðurstöðu fram. Erlent 16. apríl 2025 09:47
Tveir unglingar handteknir í Glasgow grunaðir um morð Tveir unglingar hafa verið handteknir í Glasgow grunaðir um að hafa myrt Amen Teklay, fimmtán ára dreng. Erlent 8. mars 2025 09:27
Íslenskur læknir í sögulegri skilnaðardeilu í Skotlandi Íslenskur læknir sem búsettur er í Skotlandi er í klemmu eftir að dómstóll í Edinborg komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði átt að veita honum og fyrrverandi eiginkonu hans lögskilnað árið 2021. Bjarni Eyvindsson giftist öðru sinni árið 2023 en yfirvofandi úrskurður gæti leitt til þess að hann verði giftur tveimur konum. Málið á sér engin fordæmi í skoskri réttarsögu. Innlent 18. febrúar 2025 07:01