Kristinn H. Gunnarsson

Makríll: 45 milljarða kr. vinningur
Þegar verst stóð á eftir bankahrunið fengu Íslendingar einstæðan happafeng. Ný verðmæt fiskitegund, makríllinn, tók að veiðast í miklu magni. Frá 2010 hafa veiðst 550-600 þúsund tonn og útflutningsverðmætið er um 70 milljarðar króna.

Verkin sýna merkin, Katrín
Síðasta ríkisstjórn glímdi við mikla erfiðleika en hún fékk líka betra tækifæri til þess en nokkur önnur ríkisstjórn að umbylta valdakerfi fámennrar yfirstéttar og að jafna byrðarnar á þegna landsins með sanngjörnum og réttlátum hætti.

Hvað er hægri, Katrín?
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, skrifar grein í Fréttablaðið og leitast við að draga skarpar pólitískar línur milli fyrrverandi og núverandi stjórnarflokka.

Sveigjanlegar forsendur fyrir sanngirni
Kveðið hefur verið upp úr með það að almenn niðurfærsla allra húsnæðisskulda eigi að bæta rýrnun sem orðið hafi á eignarhlut í íbúðarhúsnæði vegna hækkunar skulda og lækkunar á íbúðaverði frá 2008. Svo mikil hafi röskunin orðið að forsendur hafi brostið og réttur skapast á bótum fyrir atbeina ríkisvaldsins.

Kosið verður um efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar
Í yfirstandandi kosningabaráttu er að verulegu leyti siglt framhjá þeirri staðreynd að það varð fjárhagslegt hrun í bankakreppunni. Of margir stjórnmálaflokkar bjóða óraunhæfa framtíðarsýn og vekja vonir og væntingar sem engin innistæða er fyrir.

Frelsinu fylgir ábyrgð
Umræðan í aðdraganda komandi alþingiskosninga snýst um þessar mundir að mestu um fortíðina.

Háskalegur blekkingarleikur
Um árabil hefur verið stundaður háskalegur blekkingarleikur um áhrif verðtryggingar á lánum. Áróðurinn hefur aukist eftir bankahrunið 2008. Því er haldið fram að lánin hafi stökkbreyst vegna verðtryggingarinnar. Boðað er að lausnin felist í óverðtryggðum lánum. Þá geti lántakendur verið rólegir þrátt fyrir verðbólgu því að höfuðstóll lánanna muni ekki hækka. Til vara er lagt til að setja hámark á verðtrygginguna þannig að

Efnahagur við hengiflug
Þjóðarbúið er fjárhagslega í alvarlegri stöðu en nokkru sinni fyrr. Brýnasta verkefni stjórnvalda á næsta kjörtímabili verður að koma í veg fyrir stóráföll og leggja grunn að bættum lífskjörum síðar. Margt hefur verið vel gert eftir bankahrunið en því fer fjarri að mestur vandinn sé að baki. Öðru nær, stjórnvöld þurfa á næstu árum að taka mjög erfiðar ákvarðanir ef ekki á illa að fara.

Gróðavegur – 3,5% afnotagjald
Metafkoma varð í sjávarútvegi á árinu 2011. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnskostnað varð 80 milljarðar króna, eða 30% af öllum tekjum greinarinnar. Þetta er árið sem skilaði 25-30 milljarða króna tekjum af makrílveiðum án fjárfestingar í skipum né í búnaði að nokkru ráði. Þetta er árið sem veiðirétturinn á makríl kostaði aðeins 140 milljónir króna. Þetta er árið sem landsmenn öxluðu skattahækkanir og niðurskurð í heilbrigðiskerfinu en útvegsmenn öxluðu gróðann. Framlag þeirra til ríkisins í formi veiðigjalds var einungis 3,7 milljarðar króna. Hreinn hagnaður, það sem eftir stendur þegar allt er tiltekið, varð 60 milljarðar króna. Það er helmingur af vátryggingarverðmæti alls fiskiskipaflotans.

Útgerðarmenn innheimta 92% veiðigjald
Mikil orrusta stendur yfir um skiptingu arðsins sem fiskimiðin gefa af sér. Sjávarútvegurinn gefur af sér 35-45 milljarða króna árlega svo það er eftir miklu að slægjast. Um 75% af þessari fjárhæð fara til 18 stærstu fyrirtækjanna.

Gefið þeim sem græddu
Misgengi á þróun íbúðaverðs og lána sem varð á árunum 2008 og 2009 hefur vakið upp kröfur um lækkun verðtryggðu lánanna um allt að 20% til þess að bæta eignarýrnunina. Þykir eignarýrnunin ósanngjörn og eðlilegt talið að skattgreiðendur eða lífeyrisþegar beri kostnaðinn.

Grundvallarbreytingar samþykktar á kvótakerfinu
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni voru samþykktar grundvallarbreytingar á núverandi kvótakerfi í sjávarútvegi. Rúmir tveir þriðju þeirra sem afstöðu tóku samþykktu tillögu stjórnlagaráðs sem grundvöll að nýrri stjórnarskrá. Kvótalöggjöfin hefur verið eitt allra stærsta deilumálið í íslenskum stjórnmálum undanfarin 20 ár. Ítrekað hafa landsmenn

Ábyrg stjórnmál
Margt hefur áunnist frá efnahagshruninu á haustdögum 2008 og ýmislegt hefur verið vel gert. Engu að síður er mikil þrekraun fram undan. Greiða þarf niður skuldir á næstu árum og varðveita þannig efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Það verður ekkert áhlaupaverk, en samt vel gerlegt ef ástunduð eru ábyrg stjórnmál næsta áratuginn. Helsta hættan er sú að flokkarnir falli í hefðbundið far og lofi stórfelldum nýjum útgjöldum úr ríkissjóði. Því miður eru fyrstu kosningatilboðin komin fram bæði frá stjórn og stjórnarandstöðu. Staðreyndin er sú að þetta eru innistæðulaus fyrirheit og auka aðeins á vandann.

Græðgi frjálshyggjunnar áfram
Meirihluti kjósenda veitti ríkisstjórnarflokkunum brautargengi í síðustu Alþingiskosningum til þess að breyta þjóðfélaginu. Vinstri flokkunum var ætlað að koma böndum á græðgina og siðleysið sem nýfrjálshyggjan leysti úr læðingi þar sem fámennur hópur manna sópaði til sín miklum auðævum í skjóli ranglátra laga og leiddi á fáum árum til bankahrunsins. Flokkarnir sögðu kjósendum að eitt allra stærsta umbótamálið væri að umbylta löggjöfinni um sjávarútveginn og lögðu fram skýra stefnu um áform sín. Nú þegar dregur að lokum kjörtímabilsins er orðið ljóst að þeir hafa guggnað. Félagshyggjuflokkarnir virðast á valdi hagsmunaaðila og hugmyndafræðilega gjaldþrota. Þeir boða opinskátt áfram sömu frjálshyggjuna og nærði græðgina fyrir hrun.

Veiðigjaldið kom fyrir löngu
Veiðigjald er komið á fyrir löngu í sjávarútveginum. Það gerðu útvegsmenn sjálfir. Viðskipti með veiðiheimildir eru umfangsmiklar og verðið afar hátt. Veltan nemur tugum milljarða króna á hverju ári. Tekjurnar renna nær eingöngu til handhafa veiðiheimildanna.

Vafasöm vigtun sjávarafla
Hinar opinberu reglur um vigtun fiskafla eru hriplekar sem gatasigti. Látið er að mestu eftirlitslaust í hendur vinnsluaðila að ákvarða magn, stærð, meðalþyngd og tegund aflans. Framkvæmd vigtunarinnar þýðir að kaupendum aflans einum er treyst fyrir því að gefa ríkinu upp hve mikill kvóti hefur verið nýttur. Þetta er vafasamt fyrirkomulag.

Allt rangt hjá Þorsteini
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, setur fram staðhæfingar um jákvæð áhrif af framsali kvóta. Opinber gögn sýna hins vegar að fullyrðingar Þorsteins eru rangar.

Blekkingarleikur Steingríms
Fyrir síðustu alþingiskosningar höfðu Vinstri grænir svör á reiðum höndum við því hvernig ætti að nýta fiskimiðin við landið svo réttlátt væri. Núna þremur árum seinna hefur svörunum verið snúið á hvolf og látið eins og kosningastefnan hafi aldrei verið til. Flokkurinn taldi vorið 2009 nauðsynlegt að breyta úthlutun kvótans í framhaldi af áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Það yrði að innkalla kvótann og endurúthluta honum eftir nýju kerfi þar sem "jafnræðis verði gætt við úthlutun afnotaréttar og aðgengi að hinni sameiginlegu auðlind“ eins og segir í tillögu flokksins að nýju ákvæði í 1. grein laga um stjórn fiskveiða. Þetta er rakið í ítarlegri stefnu flokksins Hafið bláa hafið.

Milljarða atkvæðareikningur
Helgi Hjörvar alþingismaður er hálfdrættingur á við Kristján Þór Júlíusson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, þegar kemur að uppboðsmarkaði á skattfé almennings. Hann telur sig af þeim sökum hófsemdarmann og tillögur sínar sáttatilboð. Þetta er alvarlegur misskilningur. Tillagan er róttæk, breytir leikreglum eftir á, ógildir bindandi samninga og gerir eignir upptækir á kostnað ríkissjóðs. Tillaga Helga færir afmörkuðum hópi

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ
Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010. Fiskveiðiarðurinn varð það ár hvorki meira né minna en 44 milljarðar króna eða 20% af tekjunum. Fiskveiðiarðurinn er hagnaðurinn sem eftir stendur þegar búið er að draga frá tekjum í veiðum og vinnslu allan kostnað og 6% árgreiðsluvexti sem kemur í stað afskrifta og fjármagnskostnaðar. Að mati Hagstofunnar er þetta besti mælikvarðinn á afkomu greinarinnar og hafa opinberar stofnanir lengi gert svona upp.

Of langt gengið
Kallað er eftir bættum samgöngum í öllum landsfjórðungum. Ákveðið var 2009 að taka Vaðlaheiðargöng sérstaklega út úr röðinni, þótt þau væru ekki í röð brýnustu framkvæmda, enda myndi umferðin kosta framkvæmdina að fullu. Nú liggur fyrir að ríkissjóður mun bera kostnaðinn og óvíst er um endurgreiðslur. Samt er ætlun stjórnvalda að hraða jarðgangagerðinni.

Að hirða arðinn af veiðunum
Það leggst illa í LÍÚ að greiða ríkinu gjald fyrir að nýta gjöful fiskimið við landið. Framkvæmdastjóri þess kallar það í grein í Fréttablaðinu að "hirða arðinn af veiðunum“ frá þeim sem skila íslensku þjóðarbúi miklum verðmætum. Greiddir voru 90 aurar fyrir hvert kg af makríl í árferði sem fer í annála fyrir methagnað.

15 milljarða króna gjöf ríkisins
Fréttablaðið birti á forsíðu sinni frétt um mikil uppgrip í uppsjávarveiðum. Veiðar á makríl, síld og loðnu munu væntanlega skila um 75 milljörðum kr. í þjóðarbúið. Það eru góðar fréttir fyrir marga, en sérstaklega fyrir útgerðina sem græðir á tá og fingri um þessar mundir. Það gæti líka verið sérstaklega góðar fréttir fyrir ríkissjóð, en eru það ekki.

Plan B: Amma borgar
Ritari Framsóknarflokksins heldur því fram í aðsendri grein í Fréttablaðinu að verðtryggingu hafi verið komið á til þess að steypa fólki í skuldir með hjálp verðtryggingarinnar. Þarna er staðreyndum snúið á haus. Verðtryggingu var komið á til þess að koma í veg fyrir að skuldarar, meðal annars þeir sem reistu sér hurðarás um öxl, gætu fyrir tilstilli verðbólgunnar komið sér undan því að greiða skuldina.

Sjálfsblekkingin um 2007
Sú sjálfsblekking er áberandi í þjóðfélaginu að hægt sé að strika út efnahagsleg áhrif hrunsins og hverfa aftur til lífskjara árins 2007. Til marks um það eru kröfur um lækkun skulda, hækkun launa og bætur fyrir lækkun íbúðaverðs. Staðreyndin er sú að lífskjörin á hátindi góðærisins fyrir hrun voru blekkingin ein, velmegun sem byggð var áralangri og ofsafenginni skuldasöfnun einstaklinga og fyrirtækja. Það eru ekki til nein verðmæti í þjóðfélaginu til þess að standa undir fölsku lífskjörunum frá 2007.

Skuldafangelsi Íslandsbanka
Viðskiptabankarnir beita öllu afli sínu og verja óbreytt kvótakerfi. Þeir hæla kerfinu á hvert reipi og Íslandsbanki lofar það í hástert. Bankastjórinn segir áróðursstríð vera í gangi og nú verði allir velunnarar þeirra sem eiga ótímabundinn einkarétt á hagnaðinum að verjast áformum stjórnvalda. Það er um mikla peninga að tefla, arðurinn er talinn verða 35-45 milljarðar króna á hverju ári.

Ómakleg Orrahríð
Í aðsendri grein vegur Magnús Orri Schram ómaklega að Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.

Tálsýnin – lífskjör á lánum
Verðtryggingu lánsfjár er mjög kennt um skuldavanda fyrirtækja og heimila. Því er haldið fram að vandinn væri minni eða hverfandi ef lánin væru óverðtryggð eða í erlendum gjaldmiðli. Hvort tveggja eru miklar bábiljur.

Pólitískar skopparakringlur
Nýleg skýrsla svonefndar Verðtryggingarnefndar opinberar, óvænt kannski, djúpstæða kreppu í íslenskum stjórnmálum.

35 milljarða árleg tekjulind
Í annað sinn á tæpum áratug er ráðist í gagngera endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða. Fyrri endurskoðun lauk árið 2002 á þann veg að kerfið var framlengt nánast óbreytt. Sú sátt reyndist strax haldlaus enda í engu hróflað við úthlutunarkerfinu sjálfu og ákvæðum framsalsins. Sáttin frá