Rock Star Supernova

Magni gerði allt vitlaust þegar hann tók Dolphin's Cry
Ný þáttaröð af Kvöldstund með Eyþóri Inga fór í loftið á Stöð 2 á föstudagskvöldið. Gestasöngvarinn í fyrsta þættinum var enginn annar en Magni Ásgeirsson.

Tommy Lee var sjúkur í Ragnhildi Steinunni
Magni Ásgeirsson spilar í tíu hljómsveitum samhliða kennslustörfum en hefur minnkað álagið eftir að hafa verið fluttur á sjúkrahús í sumar. Hann á langan feril að baki og má segja að hann hafi orðið heimsfrægur á einni nóttu með þátttöku sinni í raunveruleikaþáttunum Rock star: Supernova fyrir hart nær tveimur áratugum.

Íslandsvinurinn Dilana að rústa The Voice í Hollandi
Það kannast eflaust margir Íslendingar við nafnið Dilana Smith en hún var einn helsti keppinautur Magna Ásgeirssonar í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova, sem þjóðin fylgdist svo vel með árið 2006.

Lukas Rossi úr Rock Star: Supernova reynir við Adele
Hver man ekki eftir Lukas Rossi?

Dilana tekur upp með Þorvaldi Bjarna í Los Angeles
Ég skil sýn höfundanna á verkið svo vel vegna þess að ég kem af sama stað. Þetta verkefni er að breyta lífi mínu, segir söngkona Dilana Robichaux, sem Íslendingar kynntust í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova.

Dilana snýr aftur til landsins og syngur í rokkóperu
Söngkonan Dilana Robichaux hefur tekið að sér hlutverk í íslenskri rokkóperu. Þetta staðfestir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, sem kemur meðal annars að útsetningum verksins. Nafnið er enn þá á huldu, sem og stærsti hluti þeirra sem að þessu dularfulla verkefni koma.

Skjár einn skoðar Ásdísarþátt
Þetta er ekkert sem okkur hefur boðist ennþá, en við höfum hugsað um þetta, segir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, dagskrárstjóri Skjás Eins.

Magni í útrás vinnur Bon Jovi
Magni Ásgeirsson er í Kanada ásamt hljómsveit sinni og spilar í Toronto í kvöld á Bier Markt klúbbnum. Þar spilaði hann líka á mánudagskvöldið.

Að komast á kortið
Ég er ekkert hrifinn af þessari friðarsúlu en þetta er frábær landkynning, sagði félagi minn við mig um daginn þegar við fylgdumst með umstanginu í kringum Yoko Ono og súluna í Viðey. Ég heyrði að margir tóku í sama streng. Fæstir ræddu um listrænt gildi verksins en allir voru ósköp ánægðir með að kastljós fjölmiðlanna skyldi beinast að Íslandi eina kvöldstund.

Fáanleg í október
Fyrsta sólóplata rokkstjörnunnar Magna Ásgeirssonar verður fáanleg í stafrænu formi í Bandaríkjunum frá og með 2. október næstkomandi. Magni á stóran aðdáendahóp í Bandaríkjunum eftir þátttöku sína í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova og því verður fróðlegt að sjá hvernig viðtökur platan fær.

Magni - Magni: Tvær stjörnur
Það verður að segjast eins og er að þessi fyrsta sólóplata Magna veldur vonbrigðum. Orðið sem kemur upp í hugann þegar maður hlustar á hana er meðalmennska. Lagasmíðarnar og textarnir eru klisjukenndir og það sama á við um hljóminn og útsetningarnar.

Eyrún Huld flytur norður
„Ég er að flytjast norður og taka við kennarastöðu hjá MA,“ segir Eyrún Huld Haraldsdóttir. Nafn Eyrúnar Huldar var á allra vörum þegar þjóðin horfði á sigurgöngu Magna Ásgeirssonar í Rock Star: Supernova í fyrrasumar.

Magni hitar upp fyrir Aerosmith í Las Vegas
"Já, þetta er komið nokkurn veginn á hreint. Ég verð þarna sem gítarleikari og spila með Dilönu á tónleikum sem verða haldnir 28. apríl. Já, við erum upphitunarnúmer fyrir Aerosmith," segir tónlistarmaðurinn Magni.

Aðdáendur hóta aðgerðum gegn yfirvöldum
Magna Ásgeirssyni hefur verið neitað um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna en hann er bókaður í tónleikaferð þar með Rock Star: Supernova.

Skilnaður Magna kemur aðdáendum í opna skjöldu
Aðdáendur Magna Ásgeirssonar geta vart á heilum sér tekið yfir að yfirlýsing frá honum birtist í DV í gær um sambandsslit Magna og unnustu hans, Eyrúnar Haraldsdóttur.

Á leið til Bandaríkjanna með Rockstar: Supernova
Ég fer út um miðjan janúar og ferðast um með hljómsveitinni Rock Star: Supernova í sex til sjö vikur, segir söngvarinn Magni Ásgeirsson.

Trúlofaðist leikkonu
Framleiðandinn Mark Burnett, sem hefur sent frá sér raunveruleikaþætti á borð við Survivor, Rock Star: Supernova og The Apprentice hefur trúlofast leikkonunni Roma Downey.

Magni æfði með Húsbandinu
Það má búast við alvöru rokkstemmningu í Laugardalshöllinni annað kvöld þegar Magni Ásgeirsson treður þar upp ásamt þremur af félögum sínum úr raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova á sérstökum afmælistónleikum Magna.

Miðasala á Magna í dag
Aukatónleikar með þátttakendum úr raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova verða haldnir í Laugardalshöll 1. desember. Fyrri tónleikarnir verða haldnir 30. nóvember og vegna mikillar eftirspurnar var ákveðið að bæta við öðrum tónleikum.

Sirrí með þrjár tilnefningar í Gullkindinni
Morgunþátturinn Capone stendur að venju fyrir verðlaunaafhendingunni Gullkindinni sem heiðrar allt það versta í afþreyingariðnaði Íslands og voru tilnefningarnar tilkynntar nú í morgun. Að venju getur þjóðin kosið á vefsíðunni XFM.is en um er að ræða þrettán flokka.

Rokkað í Höllinni
Miklir rokkstjörnutónleikar verða haldnir í Laugardalshöll þann 30. nóvember. Allar hetjurnar úr Rock Star: Supernova hittast þar í fyrsta sinn síðan raunveruleikaþættinum lauk, eða þau Magni, Dilana, Toby og Storm ásamt húshljómsveitinni.

Þorvaldur ekki með í Eurovision
Ríkissjónvarpið auglýsir nú eftir lögum í undankeppni Eurovision. Þekktir lagahöfundar og tónlistarmenn vega og meta hvort þeir eigi að vera með.

Er bæði sár og svekktur
Allt er komið í háaloft vegna tónleikaferðar Rock Star: Supernova sem gert var ráð fyrir að hæfist á næstunni. Húshljómsveitinni mögnuðu sem spilaði undir hjá keppendum í raunveruleikaþættinum hefur verið sparkað sem upphitunarbandi og hljómsveit Tobys, Juke Cartel, verið fengin í staðinn.

Heita nú Rock Star: Supernova
Nafni hljómsveitarinnar Supernova, sem Magni Ásgeirsson var nálægt því að komast í, hefur verið breytt í Rock Star: Supernova. Heitir hljómsveitin því eftir raunveruleikaþættinum sem kom henni á kortið. Pönksveitin Supernova frá Kaliforníu höfðaði mál gegn Tommy Lee og félögum fyrir að stela nafninu og á endanum þurfti raunveruleikasveitin að gefa eftir.

Átta þúsund manns tóku á móti Magna
Átta þúsund manns tóku á móti söngvaranum Magna Ásgeirssyni í Smáralindinni í dag og ætlaði allt um koll að keyra þegar hann steig á svið. Kappinn vann hugi og hjörtu Íslendinga þegar hann sló í gegn í keppninni Rock Star: Supernova

Magni kemur heim í dag
Söngvarinn Magni Ásgeirsson, sem sló í gegn í keppninni Rock Star Supernova, kemur til landsins í dag og hefur sjónvarpsstöðin Skjár einn skipulagt mótttökuathöfn í Vetrargarði Smáralindar klukkan fjögur.

Magni lenti í 4. sæti
Magni Ásgeirsson lenti í fjórða sæti í úrslitaþætti raunveruleikaþáttarins Rock Star: Supernova í nótt en Kanadamaðurinn Lukas Rossi fór með sigur af hólmi.

Áhorfendur ekki á bandi Magna
Í nótt kemur í ljós hvort Magni verður næsti söngvari hljómsveitarinnar Supernova. Aðeins fjórir keppendur eru eftir í bandaríska sjónvarpsþættinum Rock Star: Supernóva og áhorfendur voru ekki á bandi okkar manns.

Á móti sól með byr í seglin
Hljómsveitin Á móti Sól nýtur greinilega góðs af velgengni söngvarans, Magna Ásgeirssonar, sem hefur gert góða hluti í Rock Star: Supernova.

TV chef cooks for LA rockers
Icelandic TV chef Völli Snær, who also owns a restaurants in the Bahamas, conjured up a gourmet dinner for the remaining contestants in Rock Star Supernova on Sunday night.