Kvöldfréttir Stöðvar 2
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 62 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tæplega þúsund milljarðar fara í uppbyggingu samgöngumannvirkja á næstu fimmtán árum samkvæmt samgönguáætlun sem innviðaráðherra kynnti í dag. Lokið verði við uppbyggingu varaflugvalla fyrir alþjóðaflugið og áætlun lögð fram um gerð allt að fjórtán jarðganga sem öll verði með gjaldtöku ásamt eldri göngum. Fjallað verður ítarlega um nýja áætlun í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.6.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Annar tveggja sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða mældi bil á milli götulokana í Gleðigöngunni til þess að kanna hvort hægt væri að aka stóru ökutæki þar í gegn. Samkvæmt nýrri ákæru ræddu þeir um að fljúga dróna fylltum sprengiefni inn á Alþingi. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við verjanda annars þeirra í beinni útsendingu. Innlent 12.6.2023 17:58
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Reykjavíkurborg brýtur lög með verklagi sínu í kringum biðlista einstaklinga eftir sértækum húsnæðisúrræðum að sögn lögmanns Landssamtakanna Þroskahjálp. Á annað hundrað manns eru á biðlista og enginn veit hvenær röðin kemur að þeim. Innlent 11.6.2023 17:50
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landssamtökin Þroskahjálp telja að Reykjavíkurborg sé bótaskyld gagnvart öllum fötluðum umsækjendum á biðlista um sértæk húsnæðisúrræði eftir að dómur féll í máli þroskahamlaðs manns árið 2021. Faðir ungs manns með einhverfu, sem hefur verið á biðlista í tæp fimm ár, segir stöðuna mjög erfiða. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 10.6.2023 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.6.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum rýnum við í ágreininginn í viðræðum BSRB og sveitarfélaganna en í morgun sleit sáttasemjari viðræðum fulltrúa þeirra eftir aðeins klukkustundar fund, þar sem ekkert nýtt kom fram. Innlent 6.6.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórnin boðar aðhald og ætlar að spara þrjátíu og sex milljarða með nokkrum aðgerðum til að sporna gegn verðbólgu og frekari vaxtahækkunum. Þá hefur verið ákveðið að draga úr launahækkun æðstu embættismanna. Við ræðum við forsætisráðherra um fyrirhugaðar aðgerðir og verðum í beinni frá Alþingi með formönnum Samfylkingar og Flokks fólksins í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 5.6.2023 17:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Samninganefndir BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa fundað sleitulaust hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Innlent 4.6.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá skýrslu sem segir viðbrögð starfsmanna sumarbúðanna í Reykjadal hafa verið ómarkviss, ámælisverð og alvarleg þegar níu ára stúka með fötlun greindi frá því að þroskaskaskertur starfsmaður hefði brotið á henni kynferðislega. Innlent 1.6.2023 18:07
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir nýútgefið fasteignamat fyrir næsta ár. Töluverður munur er á hækkun á mati íbúða eftir svæðum og hverfum á höfuðborgarsvæðinu en að jafnaði hækkar fasteignamat þar um 13 prósent. Mest hækkar það í prósentum á Vestfjörðum og Austfjörðum. Innlent 31.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ráðherrar skilja gremju almennings vegna launahækkana æðstu embættismanna ríkisins en segja þær í samræmi við lög. Forseti Alþýðusambands Íslands segir engin lög yfir það hafin að ekki megi endurskoða þau. Nauðsynlegt sé að skoða ástandið í samfélaginu að hverju sinni. Innlent 30.5.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Framkvæmdastjóri Samtakanna 78 segir nýsamþykkt lög um samkynhneigða í Úganda þau hættulegustu í heimi í dag fyrir hinsegin fólk og geri það nánast réttdræpt. Ísland hefur átt þróunarsamstarfi við Úganda í áratugi. Innlent 29.5.2023 17:56
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dauðir lundar og ritur hafa fundist í hundraðatali í fjörum við Faxaflóa undanfarna daga. Stórfelldur fugladauði þvert á tegundir þykir óvenjulegur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við fuglafræðing, sem segir dauðann mikið áhyggjuefni. Innlent 28.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjölmargar sundlaugar á landsbyggðinni voru lokaðar í dag vegna verkfalla. Lokað verður fram á þriðjudag, á þessari fyrstu ferðahelgi sumarsins. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við í ferðalöngum sem komu að lokuðum dyrum sundlaugarinnar í Borgarnesi voru svekktir að missa af sólinni í lauginni. Innlent 27.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Álag á starfsfólk og rúmanýting á legudeildum er að skapa neyðarástand í heilbrigðiskerfinu segir formaður Læknafélags Reykjavíkur. Læknafélag Íslands biðlar til stjórnvalda um að grípa inn í. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 26.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður VR segir galið að seðlabankastjóri skuli skella skuldinni á verkalýðshreyfinguna þegar kemur að verðbólgu í landinu. Hann segir endalausar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar vera óskiljanlegar. Innlent 25.5.2023 18:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka meginvexti sína í tveggja stafa tölu ef á þarf að halda til að ná niður verðbólgu að sögn seðlabankastjóra. Bankinn hækkaði vexti um 1,25 prósentustig í morgun og skorar á aðila vinnumarkaðarins að gera hófsama langtímasamninga og stjórnvöld að auka aðhald sitt í efnahagsmálum. Innlent 24.5.2023 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þörf er á efnagreiningu á vímuefnum hér á landi svo hægt sé að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll. Þetta segir sérfræðingur í skaðaminnkun. Lítið sé vitað um innihald þeirra efna sem eru í umferð hér á landi. Fréttir 23.5.2023 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Verkföll BSRB hófust af fullum þunga í morgun í níu sveitarfélögum. Samband íslenskra sveitarfélaga og BSRB funduðu hjá ríkissáttasemjara síðdegis en enn er langt í land. Innlent 22.5.2023 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu réði lögum og lofum á leiðtogafundi G7 sem lauk í dag, eftir ströng fundahöld og afgerandi stuðningsyfirlýsingar vesturveldanna við Úkraínu. Selenskí þurfti ítrekað að hafna fullyrðingum Rússa um yfirráð yfir úkraínsku borginni Bakhmút á lokadegi fundarins. Innlent 21.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Félagsmenn BSRB í Garðabæ bættust í dag í stóran hóp félagsmanna sem fara munu í víðtæk verkföll eftir um tvær vikur. Aðgerðirnar ná til 29 sveitarfélaga og meðal annars bitna á sundlaugum, sem víða gætu staðið lokaðar fram eftir sumri. Varaformaður BSRB segir verkföll verstu niðurstöðu sem hann geti hugsað sér. Innlent 20.5.2023 18:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni vegna samskipta sinna við forsætisráðherra Ítalíu á leiðtogafundi Evrópuráðsins. Óljóst er hvað verður um byssur sem fluttar voru inn vegna fundarins, en á þriðja tug öryggismyndavéla sem settar voru upp fara hvergi. Við gerum leiðtogafundinn upp í fréttatímanum og ræðum aukið myndavélaeftirlit í kjölfar fundar við borgarfulltrúa í beinni útsendingu. Innlent 19.5.2023 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Alþjóðastjórnmálafræðingur segir að tjónaskrá sem samþykkt var að gera á leiðtogafundi Evrópuráðsins muni setja Úkraínumenn í betri stöðu en ella. Við ræðum fundinn, áhrif hans og mikilvægi, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 18.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttatíma kvöldsins verður fjallað ítarlega um leiðtogafundinn í Reykjavík, opinbera yfirlýsingu fundarins, ávarp forsætisráðherra Úkraínu og hvernig fundargestir skemmtu sér í frítíma sínum. Innlent 17.5.2023 18:03
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Gríðarlegur viðbúnaður hefur verið í miðborg Reykjavíkur og raunar á höfuðborgarsvæðinu öllu vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu. Þá var óvissustigi almannavarna lýst yfir síðdegis vegna fjölda netárása á opinberar stofnanir hér á landi. Innlent 16.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttatíma kvöldsins verður fjallað ítarlega um undirbúning leiðtogafundarins, en allt er að verða klárt í Hörpu. Þungvopnaðir lögreglumenn og leyniskyttur hafa komið sér fyrir og öryggisgæslan er af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð hér á landi. Innlent 15.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður Samtaka leigjenda er hræddur um að mörgum hafi brugðið þegar stjórnarformaður leigufélagsins Ölmu boðaði hækkun á leiguverði í dag. Yfirlýsing stjórnarformannsins um að leiguverð sé of lágt minni á vísindaskáldskap. Við ræðum við formanninn í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 14.5.2023 17:57
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nokkur fjöldi fólks kom saman á Austurvelli í dag til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda í málefnum heimilanna. Kona sem mætti á mótmælin segir fáránlegt að stýrivextir hafi verið hækkaðir marga mánuði í röð til þess eins að þrýsta á fólk að taka verðtryggð lán. Innlent 13.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Á eftirlitsmyndbandi Matvælastofnunar sést tveggja klukkustunda langt dauðastríð langreyðar sem hæfa þurfti fjórum sinnum með skutlum. Formaður Dýralæknafélags Íslands telur ljóst að lög um dýravelferð hafi verið brotin og vandséð að hægt verði að komast hjá því við veiðarnar. Innlent 12.5.2023 18:15
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður Eflingar fagnar því að félagið fái nú beina aðild að Alþýðusambandinu eftir að meirihluti samþykkti úrsögn úr Starfsgreinasambandinu í atkvæðagreiðslu. Efling hljóti einnig að koma að viðræðum við stjórnvöld vegna komandi kjarasamninga. Við fjöllum nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins, í beinni. Innlent 11.5.2023 18:01