Matvælaframleiðsla

Fréttamynd

Turninn á Lækjar­torgi fær nýtt líf

Söluturninn á Lækjartorgi fær nýtt líf í næstu viku en til stendur að opna þar ísbúðina Ísfabrikkuna. Nýir eigendur stefna á að framleiða og selja „fyrsta flokks ís úr alvöru hráefnum“ en einnig verður boðið upp á kaffi til sölu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stærsti hluti land­búnaðar­lands ekki í virkri notkun

Tvö af hverjum þremur lögbýlum á Íslandi eru ekki í skráðum rekstri sem tengist landbúnaði og vísbendingar eru um að lögum sem eiga að takmarka óhóflega jarðasöfnun sé ekki beitt. Lagt er til að lög um eignarhald á jörðum verði hert í skýrslu á vegum Landbúnaðarháskólans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta

Forstjóri SS - Sláturfélags Suðurlands segir minni framleiðslu og meiri eftirspurn innanlands vera helstu ástæðu þess að tekin hafi verið ákvörðun um að hætta svokallaðri halal-slátrun. Sláturfélaginu hafi auk þess borist hringingar og haturspóstar vegna aðferðarinnar vegna misskilnings um aðferðina.

Innlent
Fréttamynd

Dýrum stefnt í hættu

Starfsmaður alifuglabús segir dýrum hafa verið stefnt í hættu þegar brotist var inn í búið í vikunni. Aflífa þurfti dýr sem hleypt var út.

Innlent
Fréttamynd

For­dæma inn­brot í Reykjabú

Samtök fyrirtækja í landbúnaði fordæma harðlega innbrot hjá Reykjabúi aðfaranótt mánudags. Í tilkynningu segja samtökin mikilvægt að háttsemi af þessu tagi sé skýrt fordæmd og stjórnvöld undirstriki að ólögmæt innkoma í landbúnaðarfyrirtæki verði ekki liðin. Matvælastofnun hyggt kæra brot á lögum um velferð dýra til lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er mikið á­fall fyrir okkur fjöl­skylduna“

Bóndi á Reykjabúi í Mosfellsbæ segir einn mann hafa verið að verki í innbroti á býlið aðfaranótt mánudags, maðurinn hafi borið fugla út sem síðar hafi þurft að aflífa. Hann hafi skilið eftir bréf þar sem hann hafi afsakað gjörðir sínar. Bóndinn segir um mikið áfall að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Brotist inn í Reykjabú og annað „mani­festó“ skilið eftir

Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar.

Innlent
Fréttamynd

Er ekki best að tala bara ís­lensku um ESB og mat­væla­verð?

Nú að loknum sveitarstjórnarkosningum hefur umræða um möguleg áhrif aðildar Íslands að ESB tekið sig upp aftur og er matvælaverð algengt stef í orðræðu aðildarsinna síðustu daga. Ýmist fullyrða þeir að matvælaverð muni lækka um tugi prósenta við inngöngu í sambandið eða gefa það sterklega í skyn, en algengasta fullyrðingin er sú að matvælaverð geti lækkað hér um ein 25%.

Skoðun
Fréttamynd

Skemmdarvargarnir skildu eftir „mani­festó“

Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Inn­brot og skemmdar­verk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt

Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags og voru unnar miklar skemmdir. Þá var dýrum hleypt út og drápust tíu smágrísir auk þess sem taka þurfti einn grís af lífi vegna kjálkabrots. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar.

Innlent
Fréttamynd

Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní

Samkaup hefur aukið eignarhlut sinn í Kjötkompaníinu upp í 48 prósent samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Samkaup keypti 38 prósenta hlut í október en samkvæmt tilkynningu vildi félagið auka hlut sinn vegna góðs samstarfs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nói Siríus aftur í inn­lendri eigu

Sjóður í stýringu Alfa framtaks hefur samið við norska matvælaframleiðslurisann Orkla snacks um kaup á öllu hlutafé í sælgætisgerðinni Nóa Siríus. Orkla gekk frá kaupum á Nóa Siríus árið 2021.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Af­greiðslu frestað um viku

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur frestað um viku að taka fyrir byggingaleyfisumsókn á Grensásvegi 46 vegna kaffistofu sem Samhjálp hyggst reka í húsinu. Til stóð að taka málið fyrir á fundi ráðsins í dag en af því verður ekki. 

Innlent
Fréttamynd

Fram­leiðslu­stöðvunin högg fyrir fyrir­tækið og við­skipta­vini

Framleiðsluvélin sem notuð er til að búa til hafravörur Veru Örnudóttur bilaði nýlega og ekki verður hægt að framleiða meira af veganskyrinu eða öðrum hafravörum fyrr en í fyrsta lagi í maí. Arna María Hálfdánardóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins, segir það högg og vont fyrir bæði fyrirtækið og viðskiptavini.

Neytendur
Fréttamynd

Enn ó­vissa um fram­tíð blóð­mera­halds: „Þetta er stórt og við­kvæmt mál“

Fagráð um velferð dýra komst ekki að samhljóma niðurstöðu um umsókn fyrirtækisins Ísteka um leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum. Tveir fulltrúar veittu neikvæða umsögn, tveir jákvæða. Auk þess sagðist yfirdýralæknir, formaður nefndarinnar, ekki geta veitt jákvæða umsögn og sagði skýringar Ísteka á samfélagslegum ávinningi ekki fullnægjandi.

Innlent
Fréttamynd

„Heims­markaðs­verð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð”

Helgi Vilhjálmsson, forstjóri Góu, segir að þegar horft sé til verðs í verslunum megi sjá að fleiri þættir ráði verðlagningu en aðeins heimsmarkaðsverð á kakói verði á súkkulaði. Heimsmarkaðsverð á kakói hrundi í síðasta mánuði og Helgi segir fyrirtækið tilbúið að taka hluta af sveiflum á sig.

Neytendur
Fréttamynd

Smáframleiðendur – van­nýtt tæki­færi fyrir ís­lenskt at­vinnu­líf?

Á undanförnum árum hefur smáframleiðendum matvæla fjölgað jafnt og þétt á Íslandi. Víða um land eru einstaklingar og fjölskyldufyrirtæki að þróa og framleiða vörur úr íslensku hráefni, kjöt, grænmeti, drykki og fjölbreyttar sérvörur sem endurspegla sérstöðu landsins og heimabyggðar. Þessi fyrirtæki skapa störf, fjölbreytni og verðmæti í heimabyggð.

Skoðun