Körfubolti „
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 216 ›
„Við erum að láta sóknarleikinn stjórna því sem við gerum varnarlega“ Rúnari Inga Erlingssyni, þjálfara liðs Njarðvíkur í Subway deild kvenna í körfubolta, lá ýmislegt á hjarta eftir að hans lið beið ósigur á heimavelli, 67-73, gegn Grindavík fyrr í kvöld. Þetta var fjórði ósigur liðsins í deildinni í röð. Körfubolti 18.1.2023 21:41
Tómas undir hnífinn eftir tveggja ára glímu við meiðsli Körfuboltamaðurinn Tómas Þórður Hilmarsson verður ekki með Stjörnunni næstu sex vikurnar hið minnsta en hann fór í aðgerð á báðum fótum eftir tapið gegn Val í bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi. Körfubolti 18.1.2023 15:01
Elvar og félagar í 16-liða úrslit eftir sigur í oddaleik Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Rytas Vilnius eru komnir í 16-liða úrslit meistaradeildarinnar í körfubolta eftir öruggan 19 stiga sigur gegn gríska liðinu PAOK í oddaleik í kvöld, 82-63. Körfubolti 17.1.2023 19:51
„Örlítið verri en George skiptin og þar af leiðandi þau verstu á þessari öld“ Hinn stórskemmtilegi liður „Nei eða Já“ var á sínum stað í síðasta þætti af Lögmál leiksins. Þar var að venju farið yfir það helsta sem hefur gerst í NBA deildinni að undanförnu. Farið var yfir baráttu Toronto Raptors og Atlanta Hawks, hvað Sacramento Kings ætti að gera á leikmannamarkaðnum, hvort það sé verðbólga í NBA og hversu ömurleg Rudy Gobert skiptin voru. Körfubolti 17.1.2023 07:00
KKÍ með í baráttunni gegn endurkomu Rússa og Hvít-Rússa á svið íþróttanna Körfuknattleikssamband Íslands er meðal körfuboltasambanda Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sem sendu í dag frá sér yfirlýsingu vegna stríðsins í Úkraínu. Körfubolti 16.1.2023 13:54
Reiknað með 8.600 sæta þjóðarhöll við Suðurlandsbraut Reiknað er með að ný þjóðarhöll rísi við Suðurlandsbraut í Reykjavík, fyrir aftan Laugardalshöll. Áætlaður kostnaður er um fimmtán milljarðar. Höllin á að vera fjölnota, taka 8.600 í sæti á íþróttaviðburðum og hýsa allt að tólf þúsund á tónleikum. Verklok eru sem fyrr áætluð árið 2025. Innlent 16.1.2023 12:16
Svona var upplýsingafundurinn um nýja þjóðarhöll Boðað hefur verið til blaðamannafundar um nýja þjóðarhöll, þar sem farið verður yfir áætlaða stærð, staðsetningu og ýmislegt fleira. Horfa má á fundinn í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 16.1.2023 10:12
Semple áfram í botnbaráttunni Jordan Semple mun leika með Þór Þorlákshöfn út leiktíðina í Subway deild karla í körfubolta. Hann lék með KR fyrr á þessari leiktíð en var látinn fara þaðan fyrir ekki svo löngu síðan. Bæði lið eru í fallsæti deildarinnar sem stendur. Körfubolti 13.1.2023 22:31
Nei eða Já: „Verðum eiginlega að fá Lakers inn í þetta“ Hinn stórskemmtilegi liður „Nei eða Já“ var að venju á sínum stað í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins en þar er farið yfir það helsta sem hefur gerst í NBA deildinni í körfubolta. Að þessu sinni var farið yfir hvort Memphis Grizzlies ætti að gera eitthvað á leikmannamarkaðnum, hversu gott umspilið verður, hversu góður Nikola Jokić er að senda boltann og hvort Anthony Edwards á bjartari framtíð en LaMelo Ball. Körfubolti 10.1.2023 09:01
Gott gengi Nets í hættu: Durant með tognað liðband Kevin Durant, stórstjarna Brooklyn Nets í NBA deildinni, er með tognað liðband í hægra hné og verður frá næstu vikurnar. Þetta setur gott gengi liðsins í hættu en það er sem stendur í 2. sæti Austurdeildar. Körfubolti 9.1.2023 23:01
„Pínu fáránlegt hversu skringilega þeir byrjuðu tímabilið“ Golden State Warriors, ríkjandi meistarar NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú tapað tveimur leikjum í röð gegn heldur slökum mótherjum og situr 6. sæti Vesturdeildar. Farið verður yfir stöðu mála hjá Stephen Curry og félögum í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins. Hann er á dagskrá Stöðvar 2 Sport 2 klukkan 22.00. Körfubolti 9.1.2023 17:45
Jón Axel og félagar aftur á sigurbraut Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Pesaro eru komnir aftur á sigurbraut eftir að liðið vann öruggan 29 stiga sigur gegn Treviso í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 101-72. Körfubolti 8.1.2023 18:55
Sara setti átta í mikilvægum sigri Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir skoraði átta stig fyrir Faenza er liðið vann góðan tíu stiga sigur gegn Libertas Moncalieri í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 72-62. Körfubolti 7.1.2023 21:26
Körfuboltakvöld: Bræðurnir frá Þorlákshöfn unnu vel saman Frammistaða bræðranna Styrmis Snæs og Tómasar Vals Þrastarsonar var til umræðu í Körfuboltakvöldi í gær. Teitur Örlygsson og Jón Halldór Eðvaldsson voru heillaðir af spilamennsku þeirra. Körfubolti 7.1.2023 10:48
Flautan á hilluna vegna svívirðinga: „Meinaði fjölskyldunni að mæta á þá leiki sem ég dæmdi“ Körfuboltadómarinn Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson hefur ákveðið að leggja flautuna á hilluna eftir að hafa starfað við dómgæslu undanfarin sjö ár. Hann segir ástæðuna vera svívirðingar, dónaskap og persónuníð sem hann hefur mátt þola á sínum dómaraferli. Körfubolti 5.1.2023 18:00
Elvar skoraði tíu í öruggum Meistaradeildarsigri Elvar Már Friðriksson átti góðan leik fyrir Rytas Vilnius er liðið vann öruggan 23 stiga sigur gegn gríska liðinu PAOK í Meistaradeild Evrópu í körfubolta í kvöld, 85-62. Körfubolti 3.1.2023 21:16
Denver vann uppgjör bestu liðanna en Boston er með betra lið: Tímabilið í NBA til þessa Það hefur margt komið á óvart í NBA deildinni í körfubolta það sem af er tímabili. Sigur Denver Nuggets á Boston Celtics aðfaranótt mánudags kom hins vegar ekki mikið á óvart, eða hvað? Körfubolti 2.1.2023 23:31
Annáll Subway deildar karla: Valur Íslandsmeistari eftir magnað úrslitaeinvígi Valur varð Íslandsmeistari karla í körfubolta árið 2022. Liðið hafði aldrei orðið Íslandsmeistari síðan úrslitakeppnin var tekin upp. Liðið endaði í 3. sæti í deildinni en sýndi sínar bestu hliðar í áðurnefndri úrslitakeppni. Körfubolti 2.1.2023 23:00
Annáll Subway deildar kvenna: Njarðvík batt enda á áratugs bið Það má segja að Njarðvík hafi komið flestum, ef ekki öllum, á óvart á síðustu leiktíð Subway deildar kvenna í körfubolta en liðið stóð uppi sem Íslandsmeistari eftir að lenda í 4. sæti í deildarkeppninni. Körfubolti 2.1.2023 22:31
KR semur við bakvörð frá Litáen KR, botnlið Subway deildar karla í körfubolta, hefur samið við Justas Tamulis um að leika með liðinu út leiktíðina. KR hefur aðeins unnið einn deildarleik þar sem af er tímabili. Körfubolti 2.1.2023 22:00
Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Farið var yfir bestu tilþrif tímabilsins til þessa í Subway deild karla í körfubolta. Mynd segir meira en þúsund orð og myndband segir mun meira en það. Hér að neðan má sjá hvað Körfuboltakvöld telur vera tilþrif tímabilsins til þessa. Körfubolti 31.12.2022 23:30
Körfuboltakvöld um Grindavík: „Íslenskasta liðið, villtir og til í að vera í böggi allan leikinn“ Farið yfir gott gengi Grindavíkur í síðasta þætti Körfuboltakvölds. Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi, telur að um íslenskasta lið deildarinnar sé að ræða. Körfubolti 31.12.2022 19:00
LeBron sýndi og sannaði að aldur er afstæður | Geggjaður Giannis LeBron James varð 38 ára gamall í gær. Hann fagnaði með stórkostlegum leik sem tryggði Los Angeles Lakers óvæntan sigur á Atlanta Hawks í einum af þeim fjölmörgu leikjum sem fram fóru í NBA deildinni í nótt. Körfubolti 31.12.2022 13:00
Jóhann Þór um mögulegar breytingar á leikmannahópnum: „Erum búnir að vera að leita síðan einhvern tímann í október“ Það var ekki boðið upp á góðan leik fyrir hjartveika í Grindavík í kvöld þar sem heimamenn og Þór Þorlákshöfn áttust við í Subway-deild karla í körfubolta. Gestirnir frá Þorlákshöfn skoruðu 34 stig í 4. leikhluta og þurrkuðu út 20 stiga forskot Grindvíkinga eins og hendi væri veifað. Körfubolti 30.12.2022 21:02
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Þór Þ. 95-93 | Grindvíkingar slökktu í sigurvonum Þórsara Grindavík virtist með unninn leik í höndunum þegar fjórði leikhluti hófst gegn Þór Þorlákshöfn í Subway deild karla í körfubolta í kvöld. Þórsarar eru hins vegar ólseigir og spiluðu hreint út sagt frábærlega í 4. leikhluta. Það dugði hins vegar ekki og Grindavík vann á endanum tveggja stiga sigur. Körfubolti 30.12.2022 17:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur-Njarðvík 83-61 | Íslandsmeistararnir komust lítt áleiðis á Hlíðarenda Valur fór létt með Íslandsmeistara Njarðvíkur í lokaleik 14. umferðar Subway deildar kvenna í körfubolta. Valskonur tóku forystuna strax í upphafi og létu hana ekki af hendi. Leikar enduðu 83-61 og þægilegur sigur Vals staðreynd sem varð augljós mjög snemma. Körfubolti 28.12.2022 19:30
„Þurfum bara að fara að drullast til að spila vörn“ Það voru skýr skilaboð sem Kristjana Jónsdóttir hafði fyrir sínar konur eftir tap í kvöld gegn Keflavík 107-78. Þær þurfa einfaldlega að drullast til að fara að spila vörn. Sóknarleikur Fjölnis var nefnilega alls ekki galinn á köflum þrátt fyrir stífa pressu Keflvíkinga allan leikinn. Körfubolti 28.12.2022 21:31
Öruggt hjá Haukum og Grindavík | Tímaspursmál hvenær ÍR fellur Haukar og Grindavík unnu góða sigra í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld. Körfubolti 28.12.2022 21:05
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Fjölnir 107-78 | Þægilegur Keflavíkursigur í tilþrifalitlum leik Það var óvenju rólegt kvöld í Blue höllinni í kvöld þar sem Fjölniskonur sóttu Keflavík heim. Stúkan nánast tóm þar til rétt fyrir leik, en rættist þó aðeins úr þegar leið á kvöldið. Mögulega voru áhorfendur enn að melta jólasteikina, því á köflum mátti heyra saumnál detta í húsinu. Leikurinn var svo sem aldrei sérstaklega spennandi svo að stemmingin á pöllunum kannski einfaldlega í takt við það. Lokatölur 107-78 Keflavík í vil. Körfubolti 28.12.2022 17:30
„Ég er andskoti þreyttur og þarf bjór til að jafna mig“ Luka Dončić heldur áfram að gera fólk orðlaust. Hann skráði sig á spjöld sögunnar í nótt þegar hann skoraði 60 stig, tók 21 frákast og gaf 10 stoðsendingar. Eftir leikinn, sem fór í framlengingu, sagðist Luka þurfa einum bjór að halda til að jafna sig. Viðtal við drenginn eftir leik sem og viðbrögð fólks við þessum magnaða leik má sjá hér að neðan. Körfubolti 28.12.2022 17:00