Ástin á götunni
Þormóður æfir með Stjörnunni Sport 14.1.2006 16:44 Jökull Elísabetarson úr KR Víkingar fengu í dag liðsauka þegar Jökull Elísarbetarson gekk til liðs við félagið úr KR. Jökull sem verður 22 ára á þessu ári hefur spilað sem varnar og miðjumaður. Sport 8.1.2006 22:55 Eiður til London í einkaþotu Baugs Eiður Smári Guðjohnsen var krýndur íþróttamaður ársins við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í gær. Þessi frábæri knattspyrnumaður hefur staðið í ströngu með Chelsea yfir hátíðirnar og fengið lítið frí. Hann flaug til landsins með Flugleiðavél seinni partinn í gær og stoppaði stutt því Chelsea vildi fá hann aftur á æfingu í dag. Sport 3.1.2006 17:50 Samdi við KR í dag Sóknarmaðurinn skæði, Björgólfur Takefusa sem leikið hefur mðe Fylki síðustu tvö tímabil í Landsbankadeildinni, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KR. Björgólfur sagði það alltaf hafa verið draum sinn að spila með Vesturbæjarliðinu og því sé hann afar ánægður að vera kominn í KR. Sport 21.12.2005 19:38 Laugardalsvöllur stækkaður Í dag var undirritaður nýr samningur milli KSÍ og menntamálaráðuneytisins um 200 milljón króna styrk sem renna mun í sjóð vegna stækkunar stúku og annara mannvirkja á Laugardalsvelli, en heildarkostnaður mun nema um 1200 milljónum króna. Sport 21.12.2005 18:49 Páll Einarsson í Fylki Páll Einarsson, fyrrum fyrirliði Þróttar, er genginn í raðir Fylkis í Árbænum og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins, Fylkir.com. Þá segir á síðunni að félagið hafi einnig náð samningi við Hermann Aðalgeirsson, sem er ungur leikmaður og kemur frá Húsavík. Sport 21.12.2005 18:36 Fellur um tvö sæti á styrkleikalista FIFA Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er í 19. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun og fellur því um tvö sæti síðan listinn var birtur síðast og um eitt sæti á árinu. Heims- og Evrópumeistrar Þjóðverja eru sem fyrr í toppstinu og Bandaríkjamenn í öðru sæti. Sport 21.12.2005 14:42 Bjarni og Birkir aðstoða Eyjólf Bjarni Jóhannsson, þjálfari Breiðabliks og Birkir Kristinsson, fyrrum landsliðsmarkvörður, hafa verið ráðnir aðstoðarmenn Eyjólfs Sverrissonar landsliðsþjálfara. Bjarni kom liði Breiðabliks í Landsbankadeildina í sumar og Birkir, sem mun sjá um markmannsþjálfun hjá landsliðinu, spilaði sjálfur 74 landsleiki á ferlinum. Sport 19.12.2005 17:34 « ‹ 281 282 283 284 285 286 287 288 289 … 334 ›
Jörundur velur hópinn Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A-landsliðs kvenna hefur tilkynnt íslenska hópinn sem fer til Englands og mætir þar heimamönnum í vináttuleik á Carrow Road, heimavelli NOrwich þann 9. mars næstkomandi. Sport 28.2.2006 18:13
Emil og Helgi í byrjunarliði Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Trinidad í kvöld. Þeir Emil Hallfreðsson og Helgi Valur Daníelsson fá í fyrsta sinn tækifæri í byrjunarliðinu. Leikurinn fer fram á Loftus Road í London og hefst klukkan 19:30. Sýn verður með beina útsendingu frá leiknum. Sport 28.2.2006 14:28
KR tapaði fyrir Odd Grenland KRingar höfnuðu í neðsta sæti á LaManga mótinu í knattspyrnu eftir að liðið tapaði 1-0 fyrir norska liðinu Odd Grenland í dag. KRingar gerðu eitt jafntefli og töpuðu þremur leikjum á mótinu. Sport 23.2.2006 20:23
Auðun Helgason ekki með FH í sumar Varnarjaxlinn Auðun Helgason hjá Íslandsmeisturum FH getur ekkert leikið með liðnu í sumar eftir að hann meiddist á hné á æfingu á dögunum og nú er ljóst að hann þarf í aðgerð vegna krossbandaslita. Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir Íslandsmeistarana, enda var Auðun einn allra besti leikmaður Íslandsmótisins í fyrra. Sport 23.2.2006 12:14
Bjarni Guðjónsson til ÍA Bjarni Guðjónsson mun leika með gömlu félögum sínum í ÍA í sumar, en hann hefur gert fjögurra ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Bjarni lék síðast með liðinu árið 1996 en hefur spilað erlendis sem atvinnumaður síðan. Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Skagamenn í baráttunni í sumar. Sport 21.2.2006 16:03
Gylfi inn í stað Grétars Gylfi Einarsson leikmaður Leeds hefur verið valinn í landsliðshóp Eyjólfs Sverrissonar fyrir æfingaleikinn gegn Trinidad og Tobago þann 28. febrúar í stað Grétars Ólafs Hjartarsonar hjá KR, sem er meiddur. Sport 21.2.2006 14:24
Tryggvi og Marel skoruðu báðir þrennu Tryggvi Guðmundsson skoraði þrennu fyrir FH sem burstaði Þróttara 6-0 í Deildabikar KSÍ í dag og slíkt hið sama gerði Marel Baldvinsson fyrir Breiðablik sem vann ÍBV 3-1. Þá unnu Víkingar 1-0 sigur á Fram. Sport 19.2.2006 21:52
KR tapaði fyrir Krylia KRingar töpuðu í kvöld öðrum leik sínum í röð á LaManga mótinu í knattspyrnu sem fram fer á Spáni þegar liðið lá 4-2 fyrir rússneska liðinu Krylia Sovetov Samara. Garðar Jóhannsson skoraði bæði mörk KRinga í leiknum, annað þeirra úr vítaspyrnu. Sport 16.2.2006 18:45
Æfingaleikur við Spánverja í ágúst Knattspyrnusamband Íslands hefur komist að samkomulagi við spænska knattspyrnusambandið um að þjóðirnar spili æfingaleik á Laugardalsvelli þann 16. ágúst í sumar. Þetta kemur fram á vef KSÍ í dag. Sport 14.2.2006 18:26
Leikjaniðurröðun klár Nú er búið að tilkynna leikjaniðurröðun hjá íslenska A-landsliðinu í knattspyrnu fyrir undankeppni EM í ár og á næsta ári. Fyrsti leikurinn verður gegn Norður-Írum í Belfast þann 2. september í haust, en fyrsti heimaleikurinn verður gegn Dönum fjórum dögum síðar. Sport 14.2.2006 15:55
Ívar aftur í landsliðið Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur valið hópinn sem mætir Trinidad og Tobago í London þann 28. febrúar næstkomandi, en þetta verður fyrsti landsleikur íslenska liðsins undir hans stjórn. Auk Ívars eru þeir Jóhannes Karl Guðjónsson, Emil Hallfreðsson og Grétar Ólafur Hjartarson valdir í hóp Eyjólfs. Sport 14.2.2006 14:35
KR tapaði fyrir Tromsö KRingar biðu lægri hlut gegn norska liðinu Tromsö 1-0 á æfingamóti í fótbolta sem haldið er á La Manga á Spáni þessa dagana. Ásamt KR og Tromsö leika á mótinu rússneska liðið Krylya Sovetov og norska íslendingaliðið Brann. Næsti leikur hjá KR er á fimmtudaginn. Sport 13.2.2006 16:41
Snæfell lagði Grindavík Heil umferð fór fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Snæfellingar lögðu Grindavík í hörkuleik í Hólminum 68-67, Njarðvík vann Hamar/Selfoss 85-73, KR lagði Hauka 83-74, Skallagrímur burstaði Þór 114-83, Keflavík valtaði yfir Hött 119-79 og ÍR lagði Fjölni 91-83. Sport 9.2.2006 21:09
Á eftir að sýna mitt rétta andlit Framherjinn Hannes Þ. Sigurðsson hjá Stoke City í Englandi er á batavegi eftir ökklameiðsli og vonast til að fá tækifæri í byrjunarliði liðsins um næstu helgi. Sport 9.2.2006 10:03
Spilar þrjá leiki fyrir Malmö Knattspyrnukonan Ásthildur Helgadóttir mun fljúga í þrígang utan til Malmö FF í Svíþjóð í vor og spila þrjá fyrstu leiki liðsins á komandi leiktíð. Sport 9.2.2006 09:59
27 milljóna hagnaður hjá KSÍ Knattspyrnusamband Íslands skilaði hagnaði upp á 27 milljónir króna á árinu 2005. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í dag þar sem lagðir voru fram ársreikningar sambandsins. Þar kom í ljós að heildartekjur KSÍ voru 462,2 milljónir króna á síðasta ári og er eigið fé sambandsins í árslok tæpar 200 milljónir króna. Sport 3.2.2006 16:23
Þorvaldur Makan í Val Þorvaldur Makan hefur gengið til liðs við Valsmenn í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en hann lék áður með Fram og KA. Þorvaldur tók sér frí frá knattspyrnuiðkun í nokkurn tíma vegna meiðsla, en hefur nú ákveðiði að snúa til baka og spila með Valsmönnum. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag. Sport 3.2.2006 15:32
Stefni á að spila næsta sumar "Ég er að hjóla og lyfta mikið og svo má ég byrja að skokka í næsta mánuði," Það er talað um að menn geti æft sex mánuðum eftir þessi meiðsli og sá tími er í byrjun júní hjá mér. Ég næ því vonandi nokkrum leikjum í sumar." sagði Sigurður Ragnar í gær. Sport 22.1.2006 20:22
Jóhann Birnir á heimleið? Fótboltakappinn Jóhann Birnir Guðmundsson er á leiðinni frá Örgryte í Svíþjóð og gæti snúið heim til Íslands. Jóhann sagði við Fréttablaðið í gær að ef ekkert erlent lið sýndi honum áhuga fljótlega væri líklegast að hann kæmi heim og spilaði hér næsta sumar. Hans gamla félag Keflavík hefur mikinn áhuga á því að fá hann til sín auk þess sem Íslandsmeistarar FH hafa hug á að krækja í Jóhann. Sport 22.1.2006 20:21
Aðstoðarþjálfari ráðinn til Fram Sigurður Þórir Þorsteinsson, hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki Fram í knattspyrnu. Sigurður sem er fyrrverandi þjálfari meistaraflokks Aftureldingar verður því nýráðnum þjálfara, Ásgeiri Elíassyni innan handar með liðið sem leikur í 1. deild karla í sumar. Sport 22.1.2006 19:02
Annríki hjá Keflvíkingum Landsbankadeildarlið Keflavíkur í karla- og kvennaflokki gengu í dag frá samningum við hvorki meira né minna en fimmtán leikmenn í dag. Hjá karlaliðinu bar hæst að þeir Þórarinn Kristjánsson og Hörður Sveinsson sömdu við félagið, en talið var líklegt að Hörður kæmist að hjá liði erlendis. Sport 19.1.2006 20:28
Ísland á svipuðum slóðum Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er sem stendur í 95. sæti styrkleikalista FIFA. Liðið fellur því um eitt sæti síðan listinn var gefinn út í lok síðasta árs og hefur verið á mjög svipuðu róli í eitt ár. Brasilíumenn eru sem fyrr í efsta sæti listans. Sport 18.1.2006 14:51
Jökull Elísabetarson úr KR Víkingar fengu í dag liðsauka þegar Jökull Elísarbetarson gekk til liðs við félagið úr KR. Jökull sem verður 22 ára á þessu ári hefur spilað sem varnar og miðjumaður. Sport 8.1.2006 22:55
Eiður til London í einkaþotu Baugs Eiður Smári Guðjohnsen var krýndur íþróttamaður ársins við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í gær. Þessi frábæri knattspyrnumaður hefur staðið í ströngu með Chelsea yfir hátíðirnar og fengið lítið frí. Hann flaug til landsins með Flugleiðavél seinni partinn í gær og stoppaði stutt því Chelsea vildi fá hann aftur á æfingu í dag. Sport 3.1.2006 17:50
Samdi við KR í dag Sóknarmaðurinn skæði, Björgólfur Takefusa sem leikið hefur mðe Fylki síðustu tvö tímabil í Landsbankadeildinni, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KR. Björgólfur sagði það alltaf hafa verið draum sinn að spila með Vesturbæjarliðinu og því sé hann afar ánægður að vera kominn í KR. Sport 21.12.2005 19:38
Laugardalsvöllur stækkaður Í dag var undirritaður nýr samningur milli KSÍ og menntamálaráðuneytisins um 200 milljón króna styrk sem renna mun í sjóð vegna stækkunar stúku og annara mannvirkja á Laugardalsvelli, en heildarkostnaður mun nema um 1200 milljónum króna. Sport 21.12.2005 18:49
Páll Einarsson í Fylki Páll Einarsson, fyrrum fyrirliði Þróttar, er genginn í raðir Fylkis í Árbænum og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins, Fylkir.com. Þá segir á síðunni að félagið hafi einnig náð samningi við Hermann Aðalgeirsson, sem er ungur leikmaður og kemur frá Húsavík. Sport 21.12.2005 18:36
Fellur um tvö sæti á styrkleikalista FIFA Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er í 19. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun og fellur því um tvö sæti síðan listinn var birtur síðast og um eitt sæti á árinu. Heims- og Evrópumeistrar Þjóðverja eru sem fyrr í toppstinu og Bandaríkjamenn í öðru sæti. Sport 21.12.2005 14:42
Bjarni og Birkir aðstoða Eyjólf Bjarni Jóhannsson, þjálfari Breiðabliks og Birkir Kristinsson, fyrrum landsliðsmarkvörður, hafa verið ráðnir aðstoðarmenn Eyjólfs Sverrissonar landsliðsþjálfara. Bjarni kom liði Breiðabliks í Landsbankadeildina í sumar og Birkir, sem mun sjá um markmannsþjálfun hjá landsliðinu, spilaði sjálfur 74 landsleiki á ferlinum. Sport 19.12.2005 17:34