Ástin á götunni
316 317 318 319 320 321 322 323 324 … 334 ›
Sir Alex aðvarar Solskjær Alex Ferguson hefur sagt norska framherjanum Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United að gera sér ekki of miklar vonir um að ná að spila leik með aðalliði félagsins á ný, en sá norski hefur sem kunnugt er ekki spilað leik með United í 15 mánuði. Sport 13.10.2005 19:42
Eiður, Grétar og Kári bestir Þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Kári Árnason stóðu sig best í leiknum gegn Suður-Afríku að mati Fréttablaðsins en hér má finna dóm um frammistöðu allra leikmanna liðsins í 4-1 sigrinum á Laugardalsvellinum í gær. Sport 13.10.2005 19:42
Jafntefli hjá nágrönnunum Hollendingar og Þjóðverjar gerðu jafntefli í kvöld 2-2 í vináttulandsleik í Hollandi. Arjen Robben gerði bæði mörk Hollendinga og kom þeim í 2-0 en þeir Michael Ballack og Gerald Asemoah jöfnuðu fyrir Þjóðverja. Sport 13.10.2005 19:42
Danir flengdu Englendinga Danir tóku Englendinga í kennslustund í vináttuleik á Parken í Kaupmannahöfn í gærkvöld en þetta var stærsta tap enska landsliðsins í 25 ár. Englendingar binda miklar vonir við landslið sitt á HM í Þýskalandi næsta sumar, en ef marka má frammistöðu liðsins í gærkvöld þarf Sven-Göran Eriksson að lesa hressilega yfir hausamótunum á sínum mönnum. Sport 13.10.2005 19:42
Englendingar niðurlægðir á Parken Danir unnu Englendinga 4-1 í vináttulandsleik í Parken í Kaupmannahöfn. Mörk Dana gerðu Dennis Rommendahl, Jon Dahl Tomsson, Sören Larsen og Mikael Gravgaard. Mark Englendinga gerði Wayne Rooney. Danir komust í 3-0 á níu mínútna kafla í seinni hálfeik. Sport 13.10.2005 19:42
Rooney ætlar að hemja skapið Wayne Rooney, sóknarmaður Man. Utd. og enska landsliðsins, kveðst ætla að reyna eftir fremsta megni í vetur að láta skapið ekki hlaupa með sig í gönur, eins og það hefur stundum gert í gegnum tíðina. Sport 13.10.2005 19:42
Beckham ætlar sér í form David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að hann líti á vináttuleikinn gegn Dönum í kvöld sem kærkomið tækifæri til að koma sér í form. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:00. Sport 13.10.2005 19:42
Bellion til West Ham David Bellion, leikmaður Manchester United er genginn til liðs við West Ham í ensku úrvalsdeildinni að láni. Fyrir hjá West Ham hittir Frakkinn Roy Carroll, markvörð og fyrrum samherja sinn hjá Manchester United. Bellion er 22 ára sóknarmaður. Sport 13.10.2005 19:42
Suður-Afríka átti aldrei möguleika Íslenska landsliðið vann afar sannfærandi 4-1 sigur á arfaslöku s-afrísku liði í vináttuleik á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Mikil batamerki voru á leik íslenska liðsins og lofar frammistaðan góðu. Sport 13.10.2005 19:42
Newcastle reynir að stela Kanoute Spænska liðið Sevilla tilkynnti fyrr í dag að liðið hefði keypt framherja Tottenham, Fredi Kanoute, en umboðsmaður Kaunoute segir ekki svo vera. Nú ætlar Newcastle að reyna að kaupa Kanoute áður en hann skrifar undir hjá Sevilla. Sport 13.10.2005 19:42
Fékk rautt eftir 30 sekúndur Argentínumenn þurftu ekki að sýna á sér sparihliðarnar þegar þeir sóttu Ungverja heim í æfingaleik í gær og höfðu sigur 2-1, þrátt fyrir að leika manni færri síðustu 25 mínútur leiksins. Það var Maxi Rodriguez sem kom Argentínumönnum yfir eftir 17 mínútna leik, en lærisveinar Lothar Matthaus náðu að jafna metin rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins. Sport 13.10.2005 19:42
Abbiati til Juventus að láni Markvörðurinn Christian Abbiati er genginn til liðs við Juventus að láni frá A.C. Mílan. Gianluigi Buffon, aðalmarkvörður Juventus meiddiist illa í leik gegn A.C. Mílan um helgina þegar hann fór úr axlarlið eftir samstuð við Kaká leikmann Mílan og því þurfti Juventus sárlega á markverði að halda. Sport 13.10.2005 19:42
Halvorsen hættir með Sundsvall Norski þjálfarinn Jan Halvor Halvorsen hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Sundsvall hætti í gær störfum daginn eftir að lið hans var kjöldregið af Halmstad. Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þrennu þegar Halmstad vann Sundsvall 6-0 í fyrrakvöld. Halvorsen fór til Sundsvall í fyrra frá norska liðinu Sogndal og skrifaði þá undir þriggja ára samning. Sport 13.10.2005 19:42
Fowler á nokkuð í land Robbie Fowler, framherjinn knái hjá Manchester City, er enn nokkrum vikum frá því að ná bata á þeim meiðslum sem hafa hrjáð hann í allt sumar. Sport 13.10.2005 19:41
Gerði tvö í litla nágrannaslagnum Bjarni Þór Viðarsson, 17 ára gamall leikmaður Everton á Englandi gerði tvö mörk fyrir varlið liðsins gegn Liverpool í litla nágrannaslag liðana eins og þeir kalla leikinn á heimasíðu Everton. Hann gerði bæði mörkin í fyrri hálfleik og var óheppinn að gera ekki þrennu í kvöld því hann átti skot sem sleikti stöngina í lok fyrri hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:42
Byrjunarlið Englendinga gegn Dönum Sven Göran Erikson hefur valið byrjunarlið Englendinga sem mætir Dönum á Parken á morgun. Michael Owen er hafður á bekknum því hann er í leikbanni í næsta leik liðsins í undankeppni HM. Lið Englands ( 4-3-1-2 eða 4-3-3), Paul Robinson, G.Neville, Rio, Terry, A.Cole; Gerrard, Lampard, Beckham, Joe Cole; Dafoe, Rooney. Sport 13.10.2005 19:42
SWP meiddur Enska landsliðið í knattspyrnu verður að vera án Shaun Wright-Phillips í æfingaleiknum við Dani annað kvöld, en tilkynnt var að hann færi ekki með liðinu til Danmerkur vegna þess að annað hné hans væri bólgið. Sport 13.10.2005 19:42
Berger rekinn Jörg Berger þjálfari þýska liðsins Hansa Rostock var rekinn í gær og Frank Pagelsdorf ráðinn í hans stað, en hann var þjálfari liðsins á árunum 1994 til 1997. Hansa Rostock, sem féll úr þýsku úrvalsdeildinni í vor, hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í 2. deild. Sport 13.10.2005 19:42
Hannes Þór og Ólafur Örn meiddir Hannes Þór Sigurðsson, leikmaður Víking og Ólafur Örn Bjarnason, leikmaður Brann úr norska boltanum eru meiddir og verða því ekki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu gegn Suður Afríku á morgun á Laugardalsvelli. Hannes Þór er meiddur á ökkla en Ólafur Örn er meiddur á liðþófa. Sport 13.10.2005 19:42
England sigraði Danmörk í U21 Enska landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri sigraði jafnaldra sína frá Danmörku 1-0 í kvöld með marki frá Darren Ambrose leikmanni Charlton. Á morgun eigast við aðallið þjóðanna í Parken í Danmörku. Sport 13.10.2005 19:42
Ronaldo meiddur á ökkla Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, leikur ekki með landsliði sínu, Portúgal gegn Egyptum á miðvikudag vegna ökklameiðsla. Ronaldo missti af leik United gegn Everton vegna sömu meiðsla en verður líklega með United gegn Aston Villa næsta laugardag. Í stað Ronaldos var Luis Boa Morte,leikmaður Fulham valinn í landsliðið. Sport 13.10.2005 19:42
Ólafur og Hannes líklega ekki með Ólíklegt er að Ólafur Bjarnason og Hannes Þ. Sigurðsson leiki með íslenska landsliðinu gegn Suður-Afríkumönnum í vináttuleik í knattspyrnu á Laugardalsvellinum á morgun. Þeir eru báðir meiddir og Ólafur líklega með rifinn liðþófa. Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari reiknar með því að leyfa sem flestum leikmönnum að spreyta sig annað kvöld. Sport 13.10.2005 19:42
Fish búinn að leggja árar í bát Mark Fish, fyrrum fyrirliði Suður Afríska landsliðsins í knattspyrnu er hættur knattspyrnuiðkunnar vegna þrálátra hnémeiðsla. Fish,31árs lék með Bolton og Charlton í ensku úrvalsdeildinni en var síðast hjá Ipswich í ensku Championship deildinni. Sport 13.10.2005 19:42
Ósáttur við Mikka Mús leiki Graeame Souness, knattspyrnustjóri Newcastle er ekki sáttur við vináttulandsleikina sem eru spilaðir í þessari viku. "Þetta eru Mikka Mús leikir sem skipta engu máli og nú þegar ég vil vinna með mína menn á æfingavellinum eru sex eða sjö leikmenn fjarverandi. Spurðu hvaða knattspyrnustjóra sem er, allir eru ósáttir," sagði Souness. Sport 13.10.2005 19:42
Sölunni á Essien seinkar enn Forráðamenn Lyon náðu ekki að senda samningsdrög til Chelsea í tæka tíð til að ganga frá félagsskiptum Mickael Essien og því verður það ekki fyrr en á morgun sem gengið verður frá kaupunum. Sport 13.10.2005 19:41
Nakata til Bolton Japanski knattspyrnumaðurinn Hidetoshi Nakata hefur verið lánaður frá Fiorentina á Ítalíu til enska úrvalsdeildarliðsins Bolton. Sport 13.10.2005 19:41
Wenger hrósar van Persie Arsene Wenger hrósaði sóknarmanni sínum Robin van Persie eftir að varamaðurinn skoraði mark á móti Newcastle í 2-0 sigri Arsenal í gær, en sagðist viss um að Newcastle liðið ætti eftir að verða sterkt í vetur. Sport 13.10.2005 19:41
Rautt verður gullt Steve Bennet dómarinn sem rak Jermaine Jenas af velli í leik Arsenal og Newcastle hefur ákveðið að breyta rauða spjaldinu sem hann gaf Jenas í gullt spjald og því þarf leikmaðurinn ekki að fara í þriggja leikja bann. Sport 13.10.2005 19:41
Ellington til WBA Nathan Ellington er genginn til liðs við WBA frá Wigan fyrir 3 milljónir punda. Ellington, 24 ára er mikill markaskorari og gerði 59 mörk í 134 deildarleikjum fyrir Wigan. Kaupverðið nam 3 milljónum punda. Sport 13.10.2005 19:41
Áttunda mark Ásthildar í Svíþjóð Ásthildur Helgadóttir skoraði fyrir Malmö í sænsku úrvalsdeildinni þegar liðið sigraði Sunnanå 3-2. Umeå og Malmö eru efst í deildinni með 37 stig úr 13 leikjum. Ásthildur er búin að skora 8 mörk í deildinni. Sport 13.10.2005 19:41