
Hæstiréttur Bandaríkjanna

Amy Coney Barrett situr fyrir svörum í öldungadeildinni
Amy Coney Barrett, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt í Hæstarétt Bandaríkjanna mun síðar í dag mæta fyrir þingnefnd í öldungadeildinni og svara þar spurningum þingmanna sem eiga síðan að ákveð hvort hún sé hæf til starfans.

Stefna ótrauðir að tilnefningu Barrett þrátt fyrir smit á þingi
Þrír af öldungadeildarþingmönnum Bandaríkjanna hafa smitast af Covid-19 og þrír til viðbótar eru í sóttkví. Allir eru þeir Repúblikanar og þess vegna hefur Mitch McConnell, forseti þingsins, frestað þingi um tvær vikur.

Dómaraefni Trump tilheyrir trúarhópi sem er sagður kúga konur
Amy Coney Barrett, áfrýjunardómari sem Donald Trump Bandaríkjaforseti tilnefndi til hæstaréttar um helgina, er sögð tilheyra kristnum trúarhópi sem fyrrverandi félagar fullyrða að kenni að konur verði að vera undirgefnar eiginmönnum sínum.

Mesta íhaldssveifla í hæstaréttinum í áratugi
Hugmyndafræði Hæstaréttar Bandaríkjanna er líklegt til að taka skarpa hægribeygju til næstu áratuganna eftir að Donald Trump forseti tilnefndi Amy Coney Barrett, íhaldssaman áfrýjunardómara, til að taka sæti Ruth Bader Ginsburg í gær.

Barrett tilnefnd til Hæstaréttar Bandaríkjanna
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti rétt í þessu tilnefningu sína til Hæstaréttar Bandaríkjanna.

Trump ætlar að tilnefna Barrett til Hæstaréttar
Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að tilnefna Amy Coney Barrett til Hæstaréttar Bandaríkjanna.

Ginsburg fyrsta konan á viðhafnarbörum í þinghúsinu
Opinber minningarathöfn um Ruth Bader Ginsburg, bandaríska hæstaréttardómaranna sem andaðist á föstudag, fer fram í Washington-borg í dag. Ginsburg er fyrsta konan og fyrsti gyðingurinn til að liggja á viðhafnarbörum í bandaríska þinghúsinu.

Bandaríkin: Hvers vegna skiptir Hæstiréttur svona miklu máli?
Í nýjum þætti Bandaríkjanna, hlaðvarps fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar, ræðum við af hverju bandarískir íhaldsmenn leggja svo mikla áherslu á Hæstarétt.

Telur að úrslit kosninganna fari fyrir Hæstarétt
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann teldi að Hæstiréttur Bandaríkjanna þyrfti að skera út um úrslit forsetakosninganna í nóvember. Þessa vegna segir hann mikilvægt að skipa nýjan dómara í sæti Ruth Bader Ginsburg eins hratt og auðið sé.

Romney tryggir meirihluta repúblikana fyrir dómaraefni Trump
Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings virðast nú hafa tryggt sér atkvæði nógu margra þingmanna sinna til þess að geta staðfest dómaraefni Donalds Trump forseta til Hæstaréttar eftir að Mitt Romney, öldungadeildarþingmaður frá Utah, sagði ætla að greiða atkvæði með því.

Líklegt að Trump hafi nægan stuðning Repúblikana til að tilnefna í Hæstarétt
Útlit er fyrir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hafi nægan stuðning Repúblikana í öldungadeildinni til þess að tilnefna nýjan dómara í Hæstarétt Bandaríkjanna eftir andlát Ruth Bader Ginsburg.

Trump ætlar að tilnefna dómaraefni í þessari viku
Dómaraefni Donalds Trump Bandaríkjaforseti til að fylla autt sæti í Hæstarétti gæti verið kynnt þegar á föstudag eða laugardag, að sögn forsetans.

Líklegur arftaki Ginsburg yrði með íhaldssömustu dómurunum
Atkvæði nýs hæstaréttardómara í Bandaríkjunum gæti ráðið úrslitum í stórpólitískum málum, þar á meðal um réttinn til þungunarrofs og byssueignar, næstu áratugina.

Segir Trump misnota vald sitt
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, hefur kallað fyrirætlanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að tilnefna hæstaréttardómara fyrir kosningarnar í nóvember, misnotkun á valdi.

Annar þingmaður Repúblikana mótmælir fyrirhugaðri tilnefningu til Hæstaréttar
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, hyggst ræða við Donald Trump Bandaríkjaforseta um áætlun hans um að tilnefna nýjan dómara til Hæstaréttar Bandaríkjanna áður en kjörtímabili hans lýkur.

Segist ætla að tilnefna konu til Hæstaréttar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að tilnefna konu til að taka við sæti Ruth Bader Ginsburg í Hæstarétti Bandaríkjanna. Hann segist þar að auki ætla að tilnefna konuna sem fyrst.

Heitir því að greiða atkvæði um nýjan hæstaréttardómara
Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, segir að ef Donald Trump, forseti, tilnefni mann til að taka við af Ruth Bader Ginsburg í Hæstarétti Bandaríkjanna, muni öldungadeildin greiða atkvæði um tilnefninguna.

Ruth Bader Ginsburg látin
Ruth Bader Ginsburg, dómari við hæstarétt Bandaríkjanna, er látin.

Ruth Bader Ginsburg greinist með krabbamein í fimmta sinn
Ruth Bader Ginsburg, hæstaréttardómari í Bandaríkjunum, gengst nú undir geislameðferð vegna krabbameins í lifur.

Ginsburg lögð inn á sjúkrahús
Bandaríski hæstaréttardómarinn Ruth Bader Ginsburg hefur verið flutt á sjúkrahús vegna mögulegrar sýkingar.

Ósennilegt að skattskýrslur Trump líti dagsins ljós fyrir kosningar
Tveir dómar Hæstaréttar Bandaríkjanna í dag voru tímabundinn sigur Donalds Trump Bandaríkjaforseta í tilraunum hans til að koma í veg fyrir að skattskýrslur og fjármálaupplýsingar hans verði gerðar opinberar fyrir kosningar.

Hæstiréttur úrskurðaði gegn forsetanum
Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í dag að forseti njóti algerrar friðhelgi fyrir sakamálarannsókn. Úrskurðurinn opnar möguleikann á að saksóknarar í New York fái skattskýrslur Donalds Trump forseta afhentar.

Hæstiréttur tekur ákvörðun um birtingu skattskýrslu Trump í dag
Fyrirhugað er að Hæstiréttur Bandaríkjanna í Washington ákvarði í dag hvort að fulltrúadeild Bandaríkjaþings verði veittur aðgangur að persónuupplýsingum þeim sem Bandaríkjaforseti hefur reynt að leyna frá því að framboði hans var hrundið af stað árið 2015.

Hæstiréttur Bandaríkjanna segir ólöglegt að mismuna starfsfólki á grundvelli kynhneigðar
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að það brjóti í bága við lög landsins að segja upp starfsfólki á grundvelli kynhneigðar eða kyngervis.