Sambandsdeild Evrópu

Leik Tottanhem og Rennes aflýst | Óvíst hvað gerist í framhaldinu
Leik Tottenham Hotspur og Rennes í Sambandsdeild Evrópu sem átti fram að fara á fimmtudagskvöld hefur nú verið aflýst. Vegna fjölda kórónuveirusmita í liði Tottneham er ljóst að leikurinn getur ekki farið fram á tilsettum tíma.

Brendan Rodgers: „Ég veit ekki einu sinni hvaða keppni þetta er“
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Leicester, var eðlilega ósáttur eftir 3-2 tap sinna manna gegn Napoli í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í gær. Tapið þýðir að liðið fer í útsláttakeppni Sambandsdeildarinnar í staðin fyrir Evrópudeildarinnar.

Vitesse setti pressu á veika Tottenham-menn | Hákon lagði upp tvö
Nú er öllum leikjum kvöldsins lokið í lokaumferð riðlakeppninnar í Sambandsdeild Evrópu. Leikmenn Tottenham vita nú að þeir þurfa að vinna sinn leik eftir að Vitesse vann 3-1 sigur gegn NS Mura, en leik Tottenham og Rennes var frestað vegna fjölda kórónuveirusmita innan herbúða Lundúnaliðsins. Þá lagði Hákon Arnar Haraldsson upp bæði mörk FCK í 2-0 sigri gegn Slovan Bratislava.

Albert og félagar enduðu riðlakeppnina á sigri
Alls er nú átta af 15 leikjum kvöldsins í lokaumferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu lokið. Albert Guðmundsson og félagar hans í AZ Alkmaar unnu 1-0 sigur gegn Randers og Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt gerðu 1-1 jafntefli gegn Zorya og misstu þar með af toppsæti C-riðils.

Mikilvægum leik Tottenham frestað vegna hópsmitsins
Leik Tottenham og Rennes í Sambandsdeild Evrópu sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestað eftir að alls 13 einstaklingar innan raða Lundúnaliðsins greindust með kórónuveiruna.

Fyrrverandi leikmaður Tottenham segir leikmenn liðsins hafa verið sér til skammar
Jamie O'Hara, fyrrverandi leikmaður Tottenham Hotspur og núverandi sparkspekingur, segir að margir af leikmönnum liðsins hafi verið sér til skammar þegar liðið tapaði 2-1 gegn slóvenska liðinu NS Mura í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöldi.

Alfons og Albert komnir í útsláttakeppni Sambandsdeildarinnar
Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt tryggðu sér sæti í útsláttakeppni Smbandsdeildarinnar með 2-0 sigri gegn CSKA Sofia og Albert Guðmundsson og félagar hans í AZ Alkmaar tryggðu sér sigur í sínum riðli er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Jablonec.

Ísak skoraði eitt og lagði upp tvö í Sambandsdeildinni
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði fyrsta mark FC Köbenhavn og lagði upp seinustu tvö er liðið vann 4-0 stórsigur geg Lincoln Red Imps frá Gíbraltar í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Tottenham með bakið upp við vegg fyrir lokaumferðina
Slóvenska liðið NS Mura vann óvæntan og dramatískan 2-1 sigur gegn Tottenham Hotspur í næst síðustu umferð G-riðils Sambandsdeildar Evrópu þar sem að seinasta snerting leiksins réði úrslitum.

Íslendingalið FCK fær íslenska dómara í Sambandsdeildinni
Dómarinn Helgi Mikael Jónasson verður með flautuna á fimmtudagskvöld þegar Íslendingalið FC Köbenhavn heimsækir Lincoln Red Imps til Gíbraltar í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Conte: Þetta var klikkaður leikur
Antonio Conte, nýráðinn knattspyrnustjóri Tottenham, var hálf ringlaður eftir 3-2 sigur liðsins gegn Vitesse í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Hann segir að liðið þurfi að bæta sig á mörgum sviðum.

Alfons lagði upp er Bodø/Glimt hélt áfram að stríða Roma
Alfons Sampsted lagði upp seinna mark norksa liðsins Bodø/Glimt er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn José Mourinho og lærisveinum hans í Roma í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Albert skoraði í sigri í Sambandsdeildinni
Alls er nú tíu leikjum lokið af þeim 16 sem fara fram í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Albert Guðmundsson skoraði fyrra mark AZ Alkmaar er liðið vann 2-0 sigur gegn CFR Cluj í D-riðli.

„Vorum ellefu leikmenn sem unnum eins saman sem lið en þeir ellefu leikmenn sem unnu eins og einstaklingar“
Alfons Sampsted segir að leikmenn Bodø/Glimt, hafi haft trú á sigri gegn Roma í Sambandsdeild Evrópu í fyrradag. En ekki að þeir myndu vinna 6-1.

Skotið á Mourinho á forsíðu VG: „Hinir sérstöku“
Stórsigur Bodø/Glimt á Roma í Sambandsdeild Evrópu vakti verðskuldaða athygli og rataði meðal annars á forsíðu íþróttablaðs Verdens Gang. Þar var skotið smekklega á José Mourinho, knattspyrnustjóra Roma.

Mourinho eftir stórtapið í Noregi: Betra liðið með betri leikmenn vann
José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, sendi leikmönnum sínum tóninn eftir stórtapið fyrir Bodø/Glimt, 6-1, í Sambandsdeild Evrópu í gær. Hann sagði að lið Bodø/Glimt í leiknum í gær hefði einfaldlega verið betra en það sem hann tefldi fram.

Stærsta tap Mourinho á ferlinum á köldu kvöldi í Noregi
José Mourinho, knattpyrnustjóri Roma, mátti þola sitt stærsta tap á ferlinum er liðið heimsótti Alfons Sampsted og félaga í Bodø/Glimt í Sambandsdeild Evrópu í gær. Alfons lagði upp þriðja mark heimaliðsins, en lokatölur urðu 6-1.

Albert hafði betur í Íslendingaslag Sambandsdeildarinnar
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar er liðið vann 1-0 sigur gegn Rúnari Má Sigurjónssyni og félögum hans í CFR Cluj í Sambandsdeild Evrópu.

Tottenham í slæmum málum í Sambandsdeildinni
Enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur heimsótti hollenska liðið Vitesse í þriðju umferð Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Tottenham situr nú í þriðja sæti G-riðils eftir 1-0 tap.

Alfons lagði upp er Bodø/Glimt burstaði Roma | Elías Rafn og félagar björguðu stigi gegn toppliðinu
Alfons Sampsted lagði upp þriðja mark Bodø/Glimt er liðið vann 6-1 sigur gegn Roma í Sambandsdeild Evrópu og Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina í marki Midtjylland gerði 1-1 jafntefli við serbneska liðið Rauðu Stjörnuna í Evrópudeildinni.

KR-ingar vonast eftir tugmilljóna rúsínu: „Á mjög erfitt með að halda með öðrum“
„Við getum sjálfum okkur um kennt um stöðuna en það gæti verið rúsína [í pylsuendanum],“ segir Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR. Mikið er í húfi fyrir KR-inga á morgun þegar Víkingur og ÍA mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Tíu árum síðar skoraði annar Guðmundsson fyrir AZ á móti Jablonec
AZ Alkmaar rifjaði upp tíu ára mark eins Guðmundssonar fyrir Evrópuleik í gær þar sem annar Guðmundsson skoraði sigurmarkið

Kane með þrennu í stórsigri Tottenham
Illa hefur gengið hjá Tottenham að undanförnu og liðið þurti því nauðsynlega á sigri að halda gegn slóvenska liðinu Mura. Tvö mörk á fyrstu átta mínútum leiksins lögðu grunninn að 4-1 sigri Lundúnaliðsins.

Albert tryggði AZ Alkmaar sigur í Sambandsdeildinni
Albert Guðmundsson og félagar hans eru á toppi D-riðils í Sambandsdeild Evrópu eftir 1-0 sigur gegn Jablonec. Albert skoraði eina mark leiksins.

Pellegrini fyrsti leikmaðurinn til að skora í öllum Evrópukeppnunum
Ítalski knattspyrnumaðurinn Lorenzo Pellegrini varð í gær fyrsti leikmaðurinn til að skora í öllum þrem Evrópukeppnunum.

Enn lengist meiðslalisti Tottenham
Nuno Espirito Santo, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, segir að félagið hafi verið hræðilega óheppið með meisli að undanförnu. Kantmennirnir Lucas Moura og Steven Bergwijn höltruðu báðir af velli þegar að liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Rennes í Sambandsdeildinni í kvöld.

Daninn bjargaði stigi fyrir Tottenham í Sambandsdeildinni
Tottenham heimsótti franska liðið Rennes í fyrsta leiknum sínum í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar en hún er ný keppni hjá Knattspyrnusambandi Evrópu. Lokatölur 2-2, en það var danski miðjumaðurinn Pierre-Emile Højbjerg sem bjargaði stigi fyrir Lundúnaliðið.

Ensku liðin þurfa ekki að spila á hlutlausum velli í keppnum á vegum UEFA
Ensku liðin sem taka þátt í Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildinni og nýstofnaðri Sambandsdeild Evrópu þurfa ekki að spila leiki sína á hlutlausum velli, þrátt fyrir að andstæðingar þeirra komi frá landi á rauðum lista bresku ríkisstjórnarinnar.

Kennir „hræðilegri skammsýni“ bæjaryfirvalda um vanda Blika
„Því miður er það hræðileg skammsýni bæjarfulltrúa í bæjarráði Kópavogs sem veldur því að Kópavogsvöllur stenst ekki kröfur UEFA.“ Þetta segir Pétur Hrafn Sigurðsson í grein þar sem hann gagnrýnir bæjaryfirvöld í Kópavogi vegna aðstöðuleysis meistaraflokka Breiðabliks í Evrópukeppnum í fótbolta.

Framkvæmdastjóri Víkings: Brekka framundan og við þurfum að girða okkur í brók
Þrátt fyrir frábærara frammistöðu Breiðabliks á Evrópumótunum í knattspyrnu á þessari leiktíð er ljóst að Pepsi Max deild karla í fótbolta fær aðeins þrjú sæti í Evrópu næstu tvö árin, ekki fjögur eins og vonast var til.