Stéttarfélög

Fréttamynd

Verka­lýðs­leið­togar hjóla í Við­skipta­ráð

Formenn stéttarfélaganna BHM og BSRB gagnrýna harðlega úttekt Viðskiptaráðs á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þær segja skýrsluna unna út frá misvísandi gögnum og að tillaga ráðsins um að færa veikindarétt opinberra starfsmanna til jafns við einkageirann sé ómanneskjuleg. 

Innlent
Fréttamynd

Rang­færslur Við­skipta­ráðs

Það er villandi þegar Viðskiptaráð dregur fram tölur um veikindafjarveru opinberra starfsmanna frá árinu 2020 og notar þær sem rök í dag. Fyrsta ár Covid-19 einkenndist af fordæmalausum aðstæðum. Framlínustarfsfólk, sem hélt samfélaginu gangandi, var í gjörólíkum aðstæðum en þau sem gátu unnið heima og voru eðli málsins samkvæmt í mun meiri hættu á að veikjast. Fleiri skráðir veikindadagar á opinberum markaði árið 2020 eru því eðlileg niðurstaða af mismunandi starfsaðstæðum fólks á almennum og opinberum vinnumarkaði.

Skoðun
Fréttamynd

„Fjöl­skyldur eru margar í al­gjörri spenni­treyju“

Oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður Eflingar telja nýjar tillögur Reykjavíkurleiðarinnar betri en þær sem voru kynntar í haust. Formaður Eflingar hefur áhyggjur af því að ekki sé nóg gert til að bregðast við alvarlegri stöðu innan leikskóla en er vongóð. Oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur áhyggjur af áhrifum breytinganna á fjölskyldur og er ekki hrifin af tekjutengingu í gjaldskrá.

Innlent
Fréttamynd

Opin­berir starfs­menn eigi rétt á sjö­falt fleiri veikindadögum

Veikindaréttur opinberra starfsmanna er mun ríkari en í einkageiranum, að því er segir í nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Þar segir að eftir sex mánuði í starfi eigi opinber starfsmaður rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum en starfsmaður með sama starfsaldur í einkageiranum. Samhliða því séu veikindafjarvistir tvöfalt algengari hjá hinu opinbera.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Borgin taki til sín fimmtung launa­hækkunar barnafólks

VR gerir ráð fyrir því að Reykjavíkurborg taki um 20 prósent, eða fimmtung, af kjarasamningsbundnum launahækkunum barnafjölskyldna í borginni á þessu ári. Mest muni þar í krónum talið um nýkynnta hækkun á leikskólagjöldum en hitaveitukostnaður vegi einnig hlutfallslega þungt. 

Innlent
Fréttamynd

Stærstur hluti for­eldra falli al­gjör­lega utan af­sláttar­kerfis

Formenn VR og BSRB gagnrýna breytta Reykjavíkurleið. Formaður VR segir tekjutengingu leikskólagjalda fátæktargildru og formaður BSRB segir flesta foreldra nú standa frammi fyrir því að greiða meira eða þurfa að draga úr vinnu. Hún segir umhugsunarvert að svo stórar kerfisbreytingar hafi orðið án nokkurrar pólitískrar umræðu og gagnrýnir að starfsfólki og foreldrum sé stillt upp sem andstæðum hópum.

Innlent
Fréttamynd

ASÍ og SA telja stjórn­völd á villi­götum

Binding bótagreiðslna við launavísitölu er óráðleg og ótímabær að mati Alþýðusambands Íslands. Samtök atvinnulífsins telja breytinguna geta leitt til þess að bætur hækki hraðar en laun. Gera má ráð fyrir verðbólguþrýstingi og milljarða útgjaldaaukningu samkvæmt greinargerð með frumvarpi um málið.

Innlent
Fréttamynd

Vís­bendingar um gerviverktöku í geiranum

Vísbendingar eru um gerviverktöku meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra samkvæmt vinnustaðaeftirliti ASÍ. Þeir sem starfi sem slíkir séu með skerta réttarstöðu og tapi á grundvallarréttindum. Tugir ferðaþjónustufyrirtækja voru ekki skráð á fyrirtækjaskrá Skattsins.

Innlent
Fréttamynd

Fara í að­gerðir fáist ekki svör

Leikskólastjóri í Reykjavík og formaður Eflingar segja skýrt að fáist ekki svör frá borgaryfirvöldum um hvernig eigi að bæta starfsemi leikskóla fyrir lok mánaðar verði farið í einhvers konar aðgerðir. Mönnunarvandinn og álagið sem fylgi starfinu leiði til þess að fagfólk leiti annað.

Innlent
Fréttamynd

„Skýrar og síendur­teknar hótanir í garð verkalýðs­hreyfingarinnar“

Vilhjálmur Birgisson er ekki ánægður með skilaboð Seðlabanka Íslands til launafólks en seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri sögðu í morgun að bankinn myndi ekki hika við að hækka stýrivexti ef laun hækka. Sérstaklega var minnst á brugðist yrði við ef forsenduákvæði kjarasamninga yrði beitt í september. Það mælir fyrir um að rifta megi samningum ef verðbólga mælist yfir fimm prósentum í ágúst. „Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp,“ segir Vilhjálmur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Daði Már og mann­auðsmálin

Það hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og nú að ræða mannauðsmál ríkisins af yfirvegun og ábyrgð. Þrátt fyrir það er fjármálaráðherrann, Daði Már Kristófersson, á vegferð sem virðist fremur byggja á óljósri hugmyndafræði út frá samtölum við einsleitan hóp og persónulegri reynslu af stjórnun, frekar en samráði og raunverulegum gögnum.

Skoðun
Fréttamynd

Guð­jón endur­kjörinn og Simon líka

Guðjón Hreinn Hauksson var endurkjörinn formaður Félags framhaldsskólakennara (FF) til næstu fjögurra ára. Mótframbjóðandi hans, Simon Cramer Larsen, var endurkjörinn til stjórnar. Kosið var í fjögur embætti stjórnar á sama tíma og kosið var um formann.

Innlent
Fréttamynd

„Menn voru hér með ein­hverja sleggju“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir fregnir af verulega aukinni verðbólgu hafa slegið hann kylliflatan í morgun og nánast steinrotað. Aukning verðbólgu sé í andstöðu við markmið hinna svokölluðu stöðugleikasamninga, sem hafi átt að byggja á því að allir reru í sömu átt til þess að ná verðbólgu niður. „Það sem er sorglegast í þessu öllu saman er að það eru opinberir aðilar sem bera ábyrgð á þessu,“ segir hann og vísar til hækkunar gjalda sem tóku gildi um áramót.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vísar á­sökunum um ó­eðli­leg af­skipti í kosninga­bar­áttu á bug

Guðjón Hreinn Hauksson, sitjandi formaður Félags framhaldsskólakennara (FF) og frambjóðandi til formanns, vísar ásökunum mótframbjóðanda síns um óeðlileg afskipti varaformanns af kosningu á bug. Tveir eru í framboði til formanns, Guðjón og Simon Cramer Larsen, stjórnarmaður í FF. Kosning hófst þann 26. janúar og lýkur í dag. Guðjón Hreinn hefur gegnt formennsku frá árinu 2019.

Innlent
Fréttamynd

Verka­lýðs­hreyfingin úti á túni með sitt tal?

Brynjar Níelsson lögmaður kom inn sem varaþingmaður á Alþingi í dag, þá fyrir Guðlaug Þór Þórðarson, og lét ekki bjóða sér það tvisvar; hann henti sér umsvifalaust í óundirbúnar fyrirspurnir. Brynjar átti erindi við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og þá með vísan til fortíðar hans hjá verkalýðshreyfingunni en Ragnar var formaður VR.

Innlent
Fréttamynd

Breytum við­horfi til veikindaréttar

Hjá Visku stéttarfélagi er virkni og endurkoma kjarninn í allri ráðgjöf um veikindarétt á vinnumarkaði. Markmiðið er einfalt; að félagsfólk nýti réttinn með það fyrir augum að ná bata og komast aftur til virkrar þátttöku í lífi og starfi.

Skoðun
Fréttamynd

Aukin veikinda­for­föll ekki vegna einstaklingsbundinna vanda­mála

Of einföld mynd hefur verið dregin upp af veikindaforföllum á vinnumarkaði og látið að því liggja að þau séu einstaklingsbundin heilbrigðisvandamál. Nýjustu gögn frá Noregi, Svíþjóð og Danmerku benda hinsvegar til þess að kerfislægar ástæður liggi að baki, álag, mannekla og sífellt kröfuharðara vinnuumhverfi þar sem streita, kvíði og þunglyndi vegi sífellt þyngra.

Innlent
Fréttamynd

„Ég hafði ekki í­myndunar­aflið í að sjá þetta fyrir mér“

„Þetta eru áhugaverðar fréttir,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir um þau tíðindi morgunsins að Bjarni Benediktsson sé nú orðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann mun þá væntanlega leiða kjaraviðræður fyrir hönd SA og hitta þar fyrir, ásamt öðrum, Sólveigu Önnu sem hefur gagnrýnt Bjarna harðlega.

Innlent
Fréttamynd

Ein í fram­boði og á­fram for­maður

Sólveig Anna Jónsdóttir verður áfram formaður Eflingar stéttarfélags næstu tvö árin. Þá telst listi uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs sjálfkjörinn. Þetta varð ljóst í hádeginu eftir að engir aðrir framboðslistar bárust. Ný stjórn tekur við á aðalfundi 26. mars.

Innlent
Fréttamynd

„Ein­hver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“

Formaður Eflingar sendir forstöðumanni miðlunarsviðs hjá Samtökum Atvinnulífsins væna pillu vegna ummæla hans um að leikir íslenska handboltalandsliðsins geti nýst á vinnustöðum til að þjappa fólki saman. Sólveig segir verkafólk ekki getað hliðrað vinnu sinni, það fái enga uppsagnarvernd og þurfi að skila vottorði.

Innlent
Fréttamynd

Halla slær á putta handboltahetjunnar

Halla Gunnarsdóttir formaður VR slær góðlátlega á putta Viktors Gísla Hallgrímssonar markmanns íslenska landsliðsins sem vildi fá alla til Malmö þar sem íslenska liðið leikur nú í undanriðli. Fyrsti leikurinn er á morgun og Viktor taldi ekki mikið mál að fólk nýtti sér veikindadagana til að skjótast út.

Innlent
Fréttamynd

Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust

Verðbólga gæti sprengt hina svokölluðu „stöðugleikasamninga“ strax í haust. Í lok árs mældist verðbólga 4,5 prósent og Landsbankinn spáir verðbólgu upp á 5,1 prósent í janúar og Arion spaír 4,9 prósent. Forsenduákvæði kjarasamninganna sem skrifað var undir 2024 miða við 4,7 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Léttara yfir for­manninum eftir þriggja tíma fund

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segist hafa farið bjartari út af fundi með Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra en hann fór inn á hann. Fundurinn stóð yfir í rúmlega þrjár klukkustundir að hans sögn.

Innlent
Fréttamynd

Ingvar Freyr nýr hag­fræðingur BHM

BHM hefur ráðið Ingvar Frey Ingvarsson í stöðu hagfræðings BHM. Hann kemur til BHM frá Læknafélagi Íslands en þar áður starfaði hann sem hagfræðingur hjá Samorku og hjá Samtökum verslunar og þjónustu. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kvennaár og hvað svo?

Á Kvennaári 2025 höfum við tekið saman tölfræði og sett í samhengi við kröfur kvennaárs. Kröfurnar varða aðgerðir til að eyða kynbundnum launamun, jafna fjölskylduábyrgð og uppræta kynbundið ofbeldi. Greinarnar okkar sýna að þegar gögn eru rýnd í samhengi verður kynbundið ójafnrétti skýrara, ekki sem einstök frávik heldur sem afleiðing samverkandi þátta á mörgum sviðum samfélagsins.

Skoðun