Landslið kvenna í fótbolta

„Ömurlegt ef við myndum ekki ná þessu markmiði“
„Mér finnst eins og við séum búnar að bíða heila eilífð,“ segir Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji íslenska landsliðsins sem á morgun spilar úrslitaleikinn við Portúgal um sæti á HM í fótbolta næsta sumar.

Full vél fer með stuðningsmenn til Portúgal
Uppselt er í flugvél Icelandair sem fer í dagsferð til Portúgal þar sem íslenska kvennalandsliðið mætir því portúgalska í leik upp á sæti á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári.

Sara slöpp fyrir leikinn um HM: „Hljóta að vera einhver lyf til að koma henni í gang“
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir gat ekki mætt í viðtöl í Porto í dag, daginn fyrir úrslitaleikinn við Portúgal um sæti á HM, vegna slappleika.

Boðið upp á ferð á leik Portúgals og Íslands án þess að gista
Stelpurnar okkar spila risaleik í undankeppni HM í næstu viku og nú er í boði pakkaferð á leikinn mikilvæga.

Feginn að vita hverjum Ísland mætir: „Rosalegur kraftur í Portúgal“
„Það er gott að vita það núna við hverjar við erum að fara að spila,“ segir Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta. Íslendingar vita núna að úrslitaleikurinn um sæti á HM verður gegn Portúgal en ekki Belgíu.

Portúgal verður andstæðingur Íslands í HM-umspilinu
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Portúgal í úrslitaleik um sæti í lokakeppni HM eftir að portúgalska liðið vann 2-1 sigur gegn Belgíu í kvöld.

„Mjög skrýtið fyrirkomulag“ en hentar vel
Glódís Perla Viggósdóttir segir að skrýtið fyrirkomulag undankeppni HM í fótbolta sé á vissan hátt ágætt fyrir íslenska landsliðið sem þessa dagana geti skerpt á ákveðnum atriðum sem liðið þurfi að bæta, sama hver andstæðingurinn sé.

Gremst enn klakaleikurinn á Íslandi: „Myndi ekki gerast í dag“
Írar hafa aldrei komist á stórmót í fótbolta kvenna en taka nú þátt í sama umspili og Ísland fyrir HM á næsta ári. Stærsta tækifæri Íra hingað til, á að komast á stórmót, var í umspili gegn Íslandi 2008 en þá réðust úrslitin við skelfilegar aðstæður í Reykjavík.

Mættar til Algarve en vita ekki hvert þær fara svo
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er nú komið saman í Algarve í Portúgal þar sem það mun æfa næstu daga fyrir leikinn sem sker úr um það hvort þær komist í lokakeppni HM í fyrsta sinn.

Draumar Jasmínar halda áfram að rætast
Jasmín Erla Ingadóttir hefur átt frábæra síðustu daga og í dag var hún svo valin í íslenska landsliðið sem á fyrir höndum úrslitaleik um sæti á HM í fótbolta.

Elín Metta er hætt
Knattspyrnukonan og markaskorarinn Elín Metta Jensen hefur lagt skóna á hilluna. Hún varð Íslandsmeistari með Val um helgina og valin í íslenska landsliðshópinn sem kemur saman í vikunni til undirbúnings fyrir úrslitaleikinn um sæti á HM.

Æfði sex sinnum í viku, var í þyngingarvesti og tók mörg hundruð útspörk á dag
Þó hin 19 ára gamla Ceciía Rán Rúnarsdóttir sé um þessar mundir á meiðslalistanum þá hefur hún náð ótrúlegum árangri á stuttum tíma. Fótboltavefurinn GOAL telur hana eina af efnilegri leikmönnum heims og fór nýverið yfir uppgang þessa öfluga markvarðar sem í dag er samningsbundin þýska stórveldinu Bayern München.

Svona var hópurinn fyrir HM-umspilið kynntur
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, tilkynnti í dag leikmannahóp Íslands fyrir komandi umspil um sæti á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári.

Enginn vafi um Söru Björk en algjör óvissa um Karólínu
Fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir er klár í slaginn með Íslandi í umspilinu um sæti á HM sem fram fer næsta sumar. Algjör óvissa ríkir hins vegar um bataferlið hjá Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur.

Þetta eru stelpurnar sem eiga að koma Íslandi á HM í fyrsta sinn
Nú er orðið ljóst hvaða leikmenn eru í landsliðshópi kvennalandsliðs Íslands fyrir leikinn gegn Portúgal eða Belgíu 11. október, sem ræður því hvort Ísland kemst á HM í fyrsta sinn.

Stelpurnar okkar æfa í Portúgal en gætu þurft að fara til Belgíu
Kvennalandslið Íslands í fótbolta mun æfa í Algarve í Portúgal fyrir leikinn sem ræður úrslitum um það hvort liðið verður með á HM í Eyjaálfu næsta sumar.

„Það má segja að þetta hafi verið alvöru U-beygja í fríinu“
Markvörðurinn Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving var óvænt kölluð inn í íslenska landsliðshópinn á EM í sumar eftir að Cecilía Rán Rúnarsdóttir þurfti frá að víkja vegna meiðsla. Auður var þá nýkomin til Englands þar sem hún ætlaði að taka sér gott frí, en fríið breyttist þó fljótt í keppnisferð.

Sif leggur landsliðsskóna á hilluna
Sif Atladóttir hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna. Frá þessu greindi hún á Instagram-síðu sinni í kvöld.

„Bayern myndi aldrei leyfa mér það“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir segir „einhverjar líkur“ á því að hún geti spilað með Íslandi í umspilsleiknum mikilvæga 11. október um sæti á heimsmeistaramótinu í fótbolta.

„Ég spilaði EM á verkjalyfjum“
Þó að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hafi notið þess að láta ljós sitt skína á EM í fótbolta í sumar þá var hún um leið hreinlega að pína sig áfram. Rútuferðir á milli staða voru henni sérstaklega erfiðar.

Stelpurnar okkar í keppnina sem strákarnir okkar hafa ekki unnið leik í
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, stefnir að því að koma á fót nýrri keppni fyrir A-landslið kvenna; Þjóðadeildinni.

Hægt að spila sem stelpurnar okkar í FIFA 23
Bæði kvenna- og karlalandslið Íslands í fótbolta eru á meðal þeirra liða sem hægt verður að velja í næstu útgáfu af FIFA-tölvuleiknum gríðarvinsæla, FIFA 23.

Arna Sif: Þvílíkt högg í magann
Arna Sif Ásgrímsdóttir, leikmaður Vals og íslenska landsliðsins, gerði upp tapið gegn Hollandi í lokaleik undankeppni HM á þriðjudaginn sl. með Helenu Ólafsdóttur og Mist Edvardsdóttur í Bestu mörkunum.

„Þurfum að búa okkur vel undir báða möguleikana“
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, segir að liðið muni koma saman til æfinga á meginlandi Evrópu ekki á Íslandi, fyrir umspilsleikinn 11. október um sæti á HM.

„Held að það sé mjög mikill séns þarna“
Valsvarnarmúrinn, sem þær Mist Edvardsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir hafa mótað svo myndarlega í sumar, telur líklegast að Ísland muni mæta Belgíu frekar en Portúgal í umspilsleiknum um sæti á HM kvenna í fótbolta.

„Svo halda allir of fljótt að það verði bara hægt að vinna Ísland“
Þjálfari Belgíu segir að liðsins bíði erfitt verkefni við að komast á HM kvenna í fótbolta. Liðið þarf að slá út Portúgal og Ísland til að ná því.

Stelpurnar okkar þurfa að fara til Portúgals eða Belgíu
Nú er orðið ljóst hver andstæðingur Íslands verður í seinni hluta umspilsins í Evrópu um sæti á HM kvenna í fótbolta, sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar.

Utan vallar: Ógeðslega ósanngjarnt
Ég botna ekki í því hvert alþjóðafótboltinn er að stefna með því að láta heppni ráða svona miklu um það hvaða þjóðir komast á stórmót, eins og raunin er farin að vera varðandi umspil í Evrópu. Ætli Ísland verði aftur eins óheppið í dag og árið 2020?

„Ekki hægt að vera reyna að klukka í heilan leik“
„Við vorum svo fjandi nálægt þessu. Ein og hálf mínúta eftir og maður var liggur við búin að kippa kampavínsflöskunni út en þá fáum við þetta rothögg. Er sárasta tapið,“ sagði Helena Ólafsdóttir um grátlegt tap Íslands gegn Hollandi í lokaleik undankeppni HM kvenna í fótbolta.

Myndasyrpa frá tapinu grátlega í Hollandi
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu var 90 sekúndum frá því að tryggja sér sæti á HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. Jafntefli hefði dugað en liðið fékk hins vegar á sig mark undir lok leiks í Utrecht og þarf nú að fara í umspil sem fram fer í október.