Landslið karla í handbolta

Svíar ekki í vandræðum með Ungverja
Svíþjóð lenti ekki í teljandi vandræðum með lið Ungverjalands í fyrsta leik liðanna í milliriðli á HM í handbolta, lokatölur 37-28 Svíum í vil. Ísland mætir Svíþjóð í Gautaborg á föstudaginn í leik sem Ísland verður í raun að vinna.

Twitter yfir sigri kvöldsins: „Elliði er snillingur“
Ísland vann tíu marka sigur á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik liðanna í milliriðli á HM í handbolta, lokatölur 40-30 Íslandi í vil. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, rúllaði vel á liði sínu í dag og fengu allir leikmenn liðsins mínútur. Það má þó segja að leikmenn Grænhöfðaeyja hafi stolið senunni á Twitter.

„Að vinna Svía á heimavelli er næst á dagskrá“
„Við unnum og ég spilaði mikið, það er fínt,“ sagði Janus Daði Smárason eftir tíu marka sigur Íslands á Grænhöfðaeyjum í milliriðli á HM í handbolta.

Einkunnir strákanna okkar á móti Grænhöfðaeyjum: Óðinn Þór bestur
Íslenska handboltalandsliðið vann tíu marka stórsigur á Grænhöfðaeyjum, 40-30, í fyrsta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta í Svíþjóð og Póllandi.

„Mjög ánægður með að fara af velli með tíu marka sigur“
„Ég vil segja það,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er hann var spurður hvort frammistaða Íslands í sigrinum gegn Grænhöfðaeyjum í kvöld hefði ekki verið fagmannleg.

Gísli Þorgeir strax farinn að hugsa um næsta leik: „Ætlum okkur sigur á móti Svíum“
„Þetta var fagmannlega gert, náðum að halda 100 prósent fókus allan tímann,“ sagði miðjumaðurinn knái Gísli Þorgeir Kristjánsson eftir að Ísland vann Grænhöfðaeyjar í fyrsta leik milliriðilsins á HM í handbolta með tíu marka mun, lokatölur 40-30.

Topparnir í tölfræði á móti Grænhöfðaeyjum: Skoruðu ellefu í tómt mark
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann tíu marka stórsigur á Grænhöfðaeyjum, 40-30, í fyrsta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Póllandi.

Umfjöllun og myndir: Grænhöfðaeyjar - Ísland 30-40 | Öruggt í fyrsta leik í milliriðli
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan tíu marka sigur á Grænhöfðaeyjum, 30-40, í milliriðli á HM í dag.

Kristján Örn kemur inn fyrir Ólaf og Elvar er enn frá vegna veikinda
Örvhenta skyttan Kristján Örn Kristjánsson fær sitt fyrsta tækifæri á heimsmeistaramótinu í handbolta en hann kemur inn í hópinn fyrir Ólaf Guðmundsson.

Ísland með fæst mörk úr langskotum af öllum liðunum á HM í handbolta
Samkvæmt opinberri tölfræði heimsmeistaramótsins í handbolta þá rak íslenska handboltalandsliðið lestina í mörkum fyrir utan í riðlakeppninni sem lauk í gær.

Gleði hjá okkar stuðningsfólki í Gautaborg: Myndir
Íslensku stuðningsmennirnir komu saman í Gautaborg í dag fyrir fyrsta leik Íslands í milliriðli sem er á móti Grænhöfðaeyjum á eftir.

Sjáðu stemninguna á nýja stuðsvæði Íslendinga í Gautaborg
Íslenska handboltalandsliðið hefur fært sig yfir frá Kristianstad til Gautaborgar og í dag komu stuðningsmenn liðsins saman á nýju stuðningsmannasvæði í Gautaborg.

„Þarf að halda tilfinningunum í jafnvægi“
Reynsluboltinn Björgvin Páll Gústavsson hefur farið mjög hátt sem og mjög lágt með landsliðinu og lætur fátt taka sig úr jafnvægi.

„Ég var ekki brjálaður á bekknum“
Viggó Kristjánsson fékk loksins að spila á HM er íslenska liðið valtaði yfir Suður-Kóreu. Hann fékk ekki eina sekúndu í fyrstu leikjunum.

„Drauma HM“ á enda hjá Ólafi sem ætlar að gera eins og restin af þjóðinni
Skyttan sterka Ólafur Guðmundsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Ísland á heimsmeistaramótinu í handbolta. Hann náði þó að spila í höll sem er honum afar kær.

Ætluðum alltaf að vinna alla leikina í milliriðlinum
„Það er alltaf gott að skipta um stað á stórmóti, maður var svona að fá leið á hótelinu og matnum á hinum staðnum,“ segir Aron Pálmarsson fyrirliði íslenska landsliðsins eftir æfinguna í Gautaborg í gær.

HM í dag: Grænhöfðaeyjar eru ekkert grín
Strákarnir okkar eru komnir til Gautaborgar og spila í fyrsta sinn í sögunni við Grænhöfðaeyjar í dag. Nýr dagur, nýr leikur og ný borg.

Landin segir Viktor Gísla vera frábæran markvörð
Niklas Landin, fyrirliða og markverði danska handboltalandsliðsins, finnst mikið til Viktors Gísla Hallgrímssonar koma og segir hann frábæran markvörð.

„Ætla ekki í framboð gegn Guðna“
Yfirlýsingar landsliðsmarkvarðarins Björgvins Páls Gústavssonar um að hann vilji verða forseti Íslands hafa eðli málsins samkvæmt vakið mikla athygli.

„Þetta lið er mun betra en Suður-Kórea“
„Riðillinn leggst bara vel í mig. Það er gott að vera kominn hingað og það fer vel um okkur á hótelinu og núna erum við að fara halda okkar fyrsta video fund,“ segir Guðmundur Guðmundsson eftir æfingu landsliðsins í Scandinavium höllinni í Gautaborg í gær.

Jafnaði Bjarka en fúll yfir verðlaunum og henti þeim frá sér
Danski handboltasnillingurinn Mathias Gidsel skoraði átta mörk úr tólf tilraunum og var kjörinn maður leiksins þegar Danmörk vann Túnis á HM karla í handbolta í gær. Hann var hins vegar hálffúll yfir þeirri viðurkenningu.

Ólafur haltraði af æfingu
Ólafur Andrés Guðmundsson verður væntanlega ekki með Íslandi gegn Grænhöfðaeyjum en hann varð fyrir meiðslum í leiknum gegn Suður-Kóreu.

Fyrsta æfingin í Scandinavium | Myndir
Strákarnir okkar komu til Gautaborgar um miðjan dag og drifu sig á æfingu til þess að hrista af sér slenið eftir ferðalagið frá Kristianstad.

Sjáðu meyra landsliðsstráka hlusta á magnaða útgáfu af „Ég er kominn heim“
Það er ekki að ástæðulausu að leikmenn og þjálfari íslenska landsliðsins í handbolta tala um þann ótrúlega stuðning sem íslenska landsliðið hefur fengið hingað til á heimsmeistaramótinu í handbolta.

„Alveg eðlilegt að hann komi með smá svægi inn í þetta mót“
Nýjasta Handkastið gerði upp riðlakeppnina hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta og valdi meðal annars þrjá bestu leikmenn Íslands í riðlakeppninni og þá þrjá leikmenn sem hafa valdið mestu vonbrigðum.

HM í dag: Eftir að sakna fríkadellunnar
Síðasti þátturinn af HM í dag frá Kristianstad var tekinn upp í smá svekkelsiskasti yfir því að Ungverjar töpuðu með sjö marka mun gegn Portúgal.

Strákarnir okkar þurfa að fella frændur sína eða treysta á mikla heppni
Á Ísland enn möguleika á að vinna til verðlauna á HM? Getur liðið komist í undanúrslit án þess að vinna Svía? Hvað þarf að gerast og hvað má alls ekki gerast? Það er kominn tími til að rýna í stöðuna fyrir leiki Íslands í milliriðli.

Björgvin Pál dreymir um að verða forseti Íslands
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson segir í viðtali við stærstu handboltavefsíðu Svíþjóðar að hann hafi hugsað alvarlega um að bjóða sig fram til forseta í framtíðinni.

Myndasyrpa: Gleði og tilþrif þegar strákarnir kvöddu Kristianstad
Íslenska karlalandsliðið í handbolta lék við hvurn sinn fingur í kveðjuleik sínum í Kristianstad á HM í gær fyrir framan frábæra stuðningsmenn. Ljósmyndarinn Vilhelm Gunnarsson fangaði atburðinn af sinni alkunnu snilld.

„Búinn að bíða eftir þessu til að sýna hvað ég get“
„Ég er ekki alveg viss hversu margir þeir [vörðu boltarnir] voru en þetta var bara gaman,“ sagði Viktor Gísli Hallgrímsson, maður leiksins í 13 marka sigri Íslands á Suður-Kóreu í lokaleik riðlakeppninnar á HM í handbolta.