Landsbankinn
3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Bankarnir geti lækkað vexti miðað við hagnaðinn Formaður Neytendasamtakanna segir ljóst að stóru viðskiptabankarnir geti lækkað vexti sína miðað við hve mikið þeir hafa hagnast á fyrri hluta ársins. Bankarnir eigi ekki að vera undanskildir þegar kallað er eftir aðhaldi. Neytendur 29.7.2023 12:10
Landsbankinn varar við áformum um ríkislausn í greiðslumiðlun Landsbankinn hvetur stjórnvöld til að endurskoða frá grunni áform Seðlabanka Íslands um að koma á fót innlendri smágreiðslulausn. Bankinn varar við því að uppbyggingin verði „ómarkviss, tilviljunarkennd og óþarflega dýr“, og bendir jafnframt á að mörgum mikilvægum spurningum sé enn ósvarað. Innherji 28.7.2023 15:01
Hátt í tuttugu milljónir hafa tapast í kortasvikamálum í júlí Í júlí hafa 85 svikamál komið inn á borð Landsbankans og þar af 28 mál tengd flutningsfyrirtækjum. Mikil aukning hefur verið á slíkum svikamálum í sumar. Viðskipti innlent 27.7.2023 15:39
Þórður nýr innri endurskoðandi Landsbankans Þórður Örlygsson hefur verið ráðinn innri endurskoðandi Landsbankans en hann hefur gegnt stöðu regluvarðar hjá bankanum. Þórður tekur við af Kristínu Baldursdóttur sem hefur verið innri endurskoðandi Landsbankans frá árinu 2009. Viðskipti innlent 25.7.2023 13:48
Hagnast um 14,5 milljarða og greiða 16,5 fyrir nýjar höfuðstöðvar Landsbankinn hagnaðist um 14,5 milljarða króna á fyrri helmingi ársins 2023, þar af 6,7 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Hreinar vaxtatekjur jukust um 28,6% milli ára og hreinar þjónustutekjur um 6,1%. Kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva hefur farið fram úr áætlun og er nú áætlaður 16,5 milljarðar Viðskipti innlent 20.7.2023 13:18
Landsbankinn varar við svikaskilaboðum Landsbankinn varar við smáskilaboðum sem viðskiptavinir bankans kunna að hafa fengið en skilaboðin eru ekki á vegum bankans. Innlent 7.7.2023 16:58
Framtakssjóðurinn TFII á leið til Landsbréfa eftir mikinn taprekstur Eigendur framtakssjóðsins TFII, sem eru að uppistöðu lífeyrissjóðir, hafa gengið til samninga við Landsbréf um rekstur sjóðsins, að sögn stjórnarformanns TFII. Sjóðurinn var áður undir hatti Íslenskra verðbréfa en því samstarfi var slitið eftir að hluthafar TFII höfðu gert ýmsar alvarlegar athugasemdir við rekstur hans hjá ÍV. Innherji 30.6.2023 07:16
Landsbankinn hefur fundið ný heimkynni á Akureyri Landsbankinn á Akureyri mun flytja sig yfir í Hofsbót 2-4 á Akureyri fyrir árslok 2024, samkvæmt langtímaleigusamningi sem gerður hefur verið við eigendur húsanna. Viðskipti innlent 28.6.2023 14:14
Enn þarf að bíða eftir að vaxtahækkanir hemji útlánavöxt bankanna Áfram er mikill þróttur í útlánum banka þrátt fyrir brattar stýrivaxtahækkanir að undanförnu. Hagfræðingur bendir á að tíminn frá því að ákveðið sé að fara af stað í fjárfestingarverkefni og þar til banki láni til þeirra geti verið nokkuð langur. Þess vegna þurfi að bíða aðeins lengur til að sjá hver áhrifin verði af nýlegum vaxtahækkunum. Innherji 23.6.2023 14:01
Allir stóru bankarnir búnir að hækka lánavextina Íslandsbanki hækkaði vexti sína síðastliðinn föstudag og hafa þá allir stóru viðskiptabankarnir hækkað vexti sína eftir stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 12.6.2023 09:42
Góður gangur í hagkerfinu þrátt fyrir mikla verðbólgu Mjög mikill hagvöxtur var hér á fyrsta ársfjórðungi þessa árs eða sjö prósent ofan á mikinn hagvöxt undanfarin ár. Hagfræðingur Landsbankans segir góðan gang í hagkerfinu og staðan að mörgu leyti góð að frátalinni verðbólgu. Viðskipti innlent 31.5.2023 21:01
Landsbankinn fyrstur til eftir stýrivaxtahækkun Landsbankinn hefur breytt vöxtum sínum fyrstur bankanna í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Viðskipti innlent 31.5.2023 17:02
Spá því að vextir hækki um heila prósentu Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um eitt prósentustig í næstu viku. Ef spá Landsbankans gengur eftir verða stýrivextir hærri en þeir hafa verið í rúm þrettán ár. Viðskipti innlent 17.5.2023 15:10
Efling færir margra milljarða verðbréfaeign sína alfarið til Landsbankans Stéttarfélagið Efling var með samtals nálægt tíu milljarða króna í verðbréfasjóðum og innlánum hjá Landsbankanum um síðustu áramót eftir að hafa ákveðið að losa um allar eignir sínar í öðrum fjármálafyrirtækjum og færa þær alfarið yfir til ríkisbankans. Verðbréfaeign Eflingar lækkaði um 284 milljónir að markaðsvirði á liðnu ári, sem má að stærstum hluta rekja til boðaðra aðgerða fjármálaráðherra um að ÍL-sjóður yrði settur í slitameðferð náist ekki samningar við kröfuhafa um uppgreiðslu skulda hans. Innherji 8.5.2023 07:00
Landsbankinn hagnaðist um 7,8 milljarða króna á fyrstu mánuðum ársins Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 nam 7,8 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 3,2 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2022. Viðskipti innlent 4.5.2023 13:37
Kristrún vill að minnsta kosti Landsbankann eftir sem áður í eigu ríkisins Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fákeppnismarkað eins og Ísland þurfi að regluvæða: „Ástæðan fyrir því að ég og fleiri höfum talað fyrir því og fleiri að við höldum að minnsta kosti Landsbankanum í opinberri eigu er að við séum þá með einn banka sem er með opinbert viðmið um eðlilega arðsemi, eðlileg kostnaðarhlutföll.“ Innlent 3.5.2023 10:46
Kröfu Björgólfs um vanhæfi Jóns Arnars hafnað Jón Arnar Baldurs er ekki vanhæfur til þess að sitja sem sérfróður meðdómsmaður í hópmálsókn hluthafa Landsbankans gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni. Björgólfur krafðist þess að hann myndi víkja vegna tengsla við endurskoðunarfyrirtæki. Viðskipti innlent 28.4.2023 13:39
Landsbankinn skerðir afgreiðslutíma á Kópaskeri og Raufarhöfn í sumar Landsbankinn hefur ákveðið að skerða afgreiðslutímann í útibúum bankans á Kópaskeri og Raufarhöfn í sumar. Viðskipti innlent 27.4.2023 14:55
Landsbankinn tapaði Borgunarmálinu í héraðsdómi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað félögin BPS, Eignarhaldsfélagið Borgun, Teya Iceland, sem áður hét SaltPay, og Hauk Oddsson, fyrrverandi forstjóra Borgunar, af kröfum Landsbankans í Borgunarmálinu svokallaða. Að mati héraðsdóms var vanræksla Landsbankans á því að gæta hagsmuna sinna höfuðorsök þess að bankinn varð af milljarða söluhagnaði við söluna á eignarhlut í kortafyrirtækinu. Innherji 27.4.2023 12:03
Bankarnir „reiða sig“ helst til of mikið á evrópska skuldabréfafjárfesta Þegar kemur að fjármögnun á erlendum mörkuðum þá hafa íslensku bankarnir að undanförnu gert sér grein fyrir því að þeir eru að treysta of mikið á evrópska fjárfesta, að sögn bankastjóra Arion, sem telur að bankarnir hafi góða sögu að segja og mikilvægt sé reyna ná til breiðari hóps erlendra skuldabréfafjárfesta. Væntingar eru sömuleiðis um að lífeyrissjóðirnir fari að sýna meiri áhuga á að kaupa skuldabréf á bankanna. Innherji 24.4.2023 10:45
Stýrivextir lækki ekki fyrr en um mitt næsta ár Hagfræðideild Landsbankans spáir 3,2 prósenta hagvexti á Íslandi í ár. Gert er ráð fyrir því að vextir haldi áfram að hækka og mun það eiga stóran þátt í því að það hægir á hagkerfinu. Spáir bankinn því að stýrivextir fari ekki að lækka fyrr en um mitt næsta ár. Viðskipti innlent 24.4.2023 09:36
Krefst þess að Jón Arnar víki vegna tengsla við PwC Reimar Pétursson, lögmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, krefst þess að Jón Arnar Baldurs taki ekki sæti sem sérfróður meðdómsmaður í hópmálsókn gegn Björgólfi. Þinghald um meint vanhæfi Jóns Arnars fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Viðskipti innlent 19.4.2023 12:18
Spá því að verðbólgan lækki um 0,3 prósentustig Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan lækki úr 9,8 prósentum í 9,5 prósent í aprílmánuði. Spáin næstu mánuði gerir ráð fyrir því að verðbólga lækki og fari niður fyrir átta prósent í júlí. Neytendur 19.4.2023 10:37
Telur sérfróðan meðdómanda vanhæfan Reimar Pétursson, verjandi Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur lagt fram kröfu um meint vanhæfi sérhæfs meðdómanda í málsókn þriggja málsóknarfélaga hluthafa Landsbankans. Krafan snýst um vanhæfi Jóns Arnars Baldurs, endurskoðanda og sérfræðings í reikningsskilum. Viðskipti innlent 17.4.2023 14:00
Hvetur hluthafa að tryggja að bankinn geti boðið „samkeppnishæf“ starfskjör Bankastjóri Landsbankans brýnir hluthafa, þar sem íslenska ríkið er fyrirferðarmest með 98 prósenta hlut, og bankaráð að „sjá til þess“ að bankinn sé samkeppnishæfur þegar kemur að kjörum starfsfólks. Forsvarsmenn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) gagnrýndu hvernig staðið var að kjaraviðræðum við bankastarfsmenn fyrr í vetur á nýlega afstöðnum aðalfundum Íslandsbanka og Landsbankans og varaformaður samtakanna sagði mikilvægt að koma á fót kaupaukakerfi hjá Íslandsbanka. Innherji 15.4.2023 15:25
Landsbankinn fluttur úr fjórtán húsum undir eitt þak í Reykjastræti Starfsmenn Landsbankans eru að flytja í nýtt hús bankans við Reykjastræti en frágangi á lóð og innréttingum verður að fullu lokið í sumar og haust. Bankinn nýtir sjálfur um 60 prósent hússins en ríkið hefur fest kaup hinum hlutanum sem meðal annars mun hýsa utanríkisráðuneytið. Innlent 14.4.2023 19:30
Bankar hækka vexti hver á fætur öðrum Landsbankinn hefur breytt vöxtum vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Sem dæmi hafa breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækkað um eitt prósent og standa nú í níu prósentum. Arion banki gerði slíkt hið sama í vikunni. Viðskipti innlent 1.4.2023 11:00
Hefði ekki drepið þá hjá Fréttinni að spyrja hvort um grín væri að ræða Ólafur Kristjánsson gengst við því að vera maðurinn sem grínaðist með það að Edda Falak ynni ekki í Landsbankanum. Ólafur upplýsti um þetta í Bítinu í morgun og veltir fyrir sér hvers vegna vefsíðan Fréttin.is hafði ekki samband við hann til að athuga hvort um grín væri að ræða. Innlent 28.3.2023 10:20
Landsbankinn vekur athygli á fölsuðu myndefni í dreifingu Landsbankinn segir miður að einhver sjái sér hag í að vega að Eddu Falak með ósmekklegum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum vegna falsaðs myndskeiðs og myndar sem eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. Innlent 27.3.2023 16:34
Landsbankinn greiðir 8.500 milljónir í arð Landsbankinn hefur samþykkt að greiða hluthöfum 8.504 milljónir í arð. Heildararðgreiðslur bankans síðustu tíu ár nema 175,1 milljarði króna. Viðskipti innlent 23.3.2023 20:11