Umhverfismál „
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 95 ›
„Flókið“ að íbúar þurfi nú að aðgreina plast í fjóra flokka Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru nú beðnir um að aðgreina plast í fjóra flokka og skila á endurvinnslustöðvar Sorpu sem netverjar hafa sumir býsnast yfir og segja flokkun orðna allt of flókna. Þróunarstjóri Sorpu segir að félagið hafi verið eftirbátur í endurvinnslu og að töluverðar breytingar séu í farvatninu. Innlent 19.3.2023 07:00
Nýjar stefnur kynntar og ný stjórn kjörin í dag Landsfundur Vinstri grænna fer nú fram á Akureyri í skugga úrsagna á fjórða tug félagsmanna og voru líflegar umræður í gærkvöldi. Bæjarfulltrúi á Akureyri segir landsfundargesti virða ólíkar skoðanir en enn sé fólk í flokknum sem sé ósátt. Ný orkustefna og stefna um málefni fatlaðra voru kynntar í hádeginu og ný stjórn verður kjörin síðar í dag. Innlent 18.3.2023 13:34
Dragi úr notkun einkabíla og vinni heima vegna loftmengunar Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur borgarbúa til þess að draga úr notkun einkabíls og skorar á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu vegna svifryksmengunar í dag. Styrkur svifryks var hár í morgun og líklegt er að hann hækki aftur í síðdegisumferðinni. Innlent 16.3.2023 11:53
Engar undanþágur! Stjórnir Ungra umhverfissinna og Landverndar telja að breyttar reglur um losunargjöld á flug séu nauðsynlegt skref til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi og telja að íslensk stjórnvöld eigi ekki að óska eftir undanþágum frá reglunum. Skoðun 14.3.2023 13:01
Loka nýfundnum helli við Jarðböðin í Mývatnssveit Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka nýfundnum helli við Jarðböðin í Mývatnssveit í tvær vikur í ljósi fágætra og viðkvæmra jarðhitaútfellinga sem þar hafa fundist. Innlent 14.3.2023 11:16
Styttist óðum í að ný og endurbætt verslun Góða hirðisins opni Æstir aðdáendur Góða hirðisins geta fagnað því að ný verslun opnar innan skamms í gömlu Kassagerðinni. Undirbúningur er í fullum gangi en þegar eru um hundrað tonn af vörum í búðinni og bætist stöðugt við. Vöruúrval verður aukið og sérstakt rými frátekið til að hjálpa fólki að endurnýta og laga. Verkefnastjóri segir þetta tímamót í sögu Góða hirðisins og endurnotkun á Íslandi. Lífið 13.3.2023 22:00
Biden sagður munu leggja blessun sína yfir umfangsmikla olíuborun New York Times hefur eftir embættismönnum innan stjórnkerfis Bandaríkjanna að stjórnvöld muni í dag samþykkja umfangsmiklar olíuboranir í Alaska, sem munu mögulega gefa af sér 600 milljón tunnur af hráolíu á 30 ára tímabili. Erlent 13.3.2023 10:23
BBC neitar ásökunum um ritskoðun Ákvörðun breska ríkisútvarpsins BBC, um að sýna ekki lokaþátt úr Wild Isles, nýrri þáttaröð Davids Attenborough hefur vakið hörð viðbrögð. Umræddur þáttur fjallar um náttúruspjöll á Bretlandseyjum og orsakir þeirra en samkvæmt heimildum The Guardian var hætt við að sýna þáttinn þar sem forsvarsmenn BBC óttuðust gagnrýnisraddir frá Íhaldsflokknum og hægri sinnuðum fjölmiðlum. Erlent 11.3.2023 14:31
Allt frá kúkableyjum til sjónvarpa hent á opin svæði í náttúrunni Sjónvörpum, kúkableyjum og öllu þar á milli er iðulega hent á opið svæði í hraunið við Straumsvík í Hafnarfirði. Formaður bæjarráðs segir ástandið óþolandi. Kenningar séu um að umhverfissóðar reyni að komast hjá því að greiða gjöld til Sorpu. Innlent 10.3.2023 21:01
BBC sýnir ekki Attenborough af ótta við hægrimenn Breska ríkisútvarpið BBC er sagt hafa ákveðið að sýna ekki þátt úr nýrri náttúrulífsþáttaröð Davids Attenborough af ótta við viðbrögð Íhaldsflokksins og hægrisinnaðra fjölmiðla. Þátturinn fjallar um náttúruspjöll á Bretlandseyjum. Erlent 10.3.2023 15:39
Fjórum sinnum fleiri neikvæðir en jákvæðir gagnvart sjókvíeldi Um 61 prósent landsmanna eru neikvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir hagsmunasamtök um verndun laxastofnsins. Aðeins fjórtán prósent svarenda eða fjórum sinnum færri segjast vera jákvæðir gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Innlent 8.3.2023 14:08
Magnað að sjá bara vatnsgufu úr hreyflinum en enga mengun Stórri farþegaflugvél, sömu gerðar og Icelandair notar í innanlandsfluginu, hefur í fyrsta sinn í sögunni verið flogið á vetni. Fulltrúi Icelandair var viðstaddur þetta tímamótaflug vestanhafs en þetta er meðal þeirra lausna sem félagið skoðar til orkuskipta í fluginu á Íslandi. Innlent 7.3.2023 22:20
Segja bleyjulaust uppeldi raunhæft strax frá fæðingu Svokallað bleyjulaust uppeldi nýtur vaxandi vinsælda hér á landi en þá er ungabörnum boðið að nota kopp í stað bleyju - í sumum tilfellum strax frá fæðingu. Mæður segja ótal kosti fólgna í aðferðafræðinni Innlent 6.3.2023 09:01
Sögulegu samkomulagi náð Eftir að hafa verið í viðræðum í tæplega tuttugu ár hafa aðildarríki Sameinuðu þjóðanna loksins komist að samkomulagi um að vernda vistkerfi í úthöfum jarðarinnar. Samningar náðust í New York í nótt. Erlent 5.3.2023 07:42
Íbúar Austur-Palestínu óttast langvarandi mengun Nærri því mánuður er liðinn frá því lest sem bar mikið magn eiturefna fór út af sporinu nærri bænum Austur-Palestínu í Ohio í Bandaríkjunum eru íbúar enn reiðir og óttaslegnir. Margir segjast enn finna fyrir áhrifum frá efnunum sem sluppu út í andrúmsloftið. Erlent 3.3.2023 14:30
Engri losun vegna kola sópað undir teppið Losun gróðurhúsalofttegunda vegna kolanotkunar stóriðju á Íslandi er talin fram í losunarbókhaldi hennar þrátt fyrir að Orkustofnun telji kolin ekki lengur hluta af frumorkunotkun á landinu. Sviðsstjóri hjá Orkustofnun segir að engin losun sé dulin með breytingunni. Innlent 3.3.2023 07:00
Bréfið fæst ekki heldur afhent frá Evrópu Svarbréf Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra frá því í júní í fyrra, fæst ekki afhent frá framkvæmdastjórninni, þar sem svo er metið að ekki sé um opinber gögn að ræða. Innlent 2.3.2023 11:51
Segir veginn um Teigsskóg verða hluta af landslaginu Vegagerð um Teigsskóg stendur núna sem hæst og er aðeins hálft ár í að hinn umdeildi vegur verði opnaður fyrir umferð. Bóndi í sveitinni, sem jafnframt er gröfumaður hjá verktakanum, segir að þetta verði mjög falleg leið og spáir því að vegurinn verði orðinn hluti af landslaginu eftir nokkur ár. Innlent 28.2.2023 21:41
Segir óábyrgt að leysa orkuskiptin með því að flytja framleiðslu annað Ekki verður sérstaklega virkjað vegna nýrrar stóriðju, að mati forstjóra Landsvirkjunar, sem segir orku nýrra virkjana fremur fara til fjölbreytts hóps smærri fyrirtækja sem og til orkuskipta. Viðskipti innlent 25.2.2023 22:20
Skoða að byggja göngubrú yfir Hvítárgljúfur við Gullfoss Landeigendur jarðar austan megin við Gullfoss skoða nú ásamt öðrum að byggja göngubrú yfir Hvítárgljúfur við Gullfoss. Með brúnni væri hægt að koma í veg fyrir að ráðast þurfi í dýrar framkvæmdir við að byggja upp aðstöðu austan megin en ferðamönnum sem kjósa að fara þeim megin fer fjölgandi með hverju ári. Innlent 25.2.2023 10:01
Hundrað þúsund lítrar af dísilolíu í gegnum fráveitukerfi Hafnarfjarðar Um það bil 110 þúsund lítrar af dísilolíu fóru í gegnum fráveitukerfi Hafnarfjarðar og út í sjó eftir bilun við bensínstöð Costco í Garðabæ í desember. Bæjarfulltrúi segir að um sé að ræða gríðarlega alvarlegt mengunarslys. Innlent 24.2.2023 07:21
Nýjar upplýsingar varpa ljósi á orsök lestarslyssins Hjólalega lestar sem fór út af sporinu í Ohio í Bandaríkjunum fyrr í mánuðinum er talin hafa ofhitnað. Starfsmenn um borð fengu viðvörun um mögulega ofhitnun og reyndu að hægja á lestinni sem að lokum fór út af sporinu. Erlent 23.2.2023 18:15
Von der Leyen svaraði erindi Katrínar en svörin fást ekki afhent Katrínu Jakobsdóttur barst svarbréf frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi forsætisráðherra frá því í júní í fyrra er varðaði kostnað við losun frá millilandaflugi. Innlent 23.2.2023 09:30
Skila öllu vatni sem þarf í kolefnisförgun aftur í jörðina Vatni sem dælt verður upp úr ferskvatnsstraumi neðanjarðar við Straumsvík fyrir kolefnisförgunarstöð Carbfix verður öllu skilað aftur ofan í jörðina og hefur ekki áhrif á vatnsból. Opinberar stofnanir segja að rannsaka verði vel umhverfisáhrif gríðarlegrar vatnsnotkunar stöðvarinnar. Viðskipti innlent 22.2.2023 11:02
Mikilvægt að fleiri leggi stund á umhverfisfræði „Enn er margt óljóst um áhrif hlýnunar jarðar. Áhrifanna gætir hraðar en áður var talið á stöðum sem liggja hátt og við verðum að skilja betur hvernig þeir munu halda áfram að breytast og hvernig við þurfum að bregðast við og aðlagast breytingum. Það er því afar mikilvægt að fleiri leggi stund á umhverfisfræði,“ segir Alejandro Salazar Villegas brautarstjóri Umhverfisbreytingar á Norðurslóðum (EnCHiL), tveggja ára meistaranámsbrautar við Landbúnaðarháskóla Íslands. Samstarf 22.2.2023 08:50
Hvers vegna er fjölbreytni náttúrunnar svona verðmæt? Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða lífs á jörðinni og verndun hennar er eitt veigamesta verkefni nútímans. Til að efla samstöðu, vitund og skilning á líffræðilegri fjölbreytni meðal almennings og stjórnvalda hérlendis hefur samstarfsvettvangur sem gengur undir nafninu BIODICE (biodiversity in Iceland/ líffræðileg fjölbreytni á Íslandi, biodice.is) verið stofnaður. Skoðun 21.2.2023 07:32
Skaðabætur vegna veikinda sem mengun í Járnblendinu orsakaði Jónas Árnason hlaut nýverið bætur vegna veikinda, óafturkræfra lungnaskemmda, sem talið er að megi rekja beint til mengunar og óbærilegra vinnuaðstæðna í Járnblendinu á Grundartanga. Innlent 18.2.2023 07:01
Húskarlar fara hamförum Þekkt aðferð manna með veikan málstað er að ráðast á þann sem er ósammála þeim í stað þess að rökræða við hann. Stundum er notað íþróttamál og þá er þetta kallað að fara í manninn en ekki boltann, viðkomandi er sem sagt svo slakur á vellinum að hann ræður ekkert við boltann og reynir því í vanmætti sínum að meiða mótherjann í staðinn. Slík hegðun þykir ekki stórmannleg. Skoðun 17.2.2023 10:00
Upplýsandi rimma lobbíista um sjókvíaeldið Jón Kaldal talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins og Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish um fiskeldi tókust harkalega á um hið umdeilda sjókvíaeldi á Sprengisandi á Bylgjunni. Innlent 17.2.2023 07:01
Óttuðust að mæta á fund með íbúum eftir eiturefnaslys Forsvarsmenn lestarfyrirtækis sem átti lest sem fór af sporunum í Ohio fyrr í þessum mánuði mættu ekki á opinn fund sem haldinn var um málið í gær. Vísuðu þeir til öryggisástæðna fyrir því að þeir mættu ekki á fundinn. Mikið magn eiturefna sluppu út í andrúmsloftið þegar lestin fór af sporinu. Erlent 16.2.2023 10:31