Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Í ljósi afsagnar stjórnarformannsins David Sullivan hjá West Ham United stendur félagið á krossgötum. Sullivan hefur stýrt félaginu í 16 ár, lengst af ásamt David Gold, sem keypti félagið með honum árið 2010. Tékkneskur milljarðamæringur gæti nú tekið við stjórnartaumunum. Enski boltinn 6.6.2026 22:32
Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar David Sullivan hefur ákveðið að segja af sér stjórnarformennsku hjá enska knattspyrnufélaginu West Ham. Sullivan segir falskar ásakanir um hans einkalíf eiga eftir að opinberast á næstu dögum. Enski boltinn 6.6.2026 13:41
Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund Stjórnarmenn West Ham United eru ekki sammála um það hvort Nuno Espirito Santo sér maðurinn til þess að stýra liðinu í ensku B-deildinni á næsta tímabili. West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni um nýliðna helgi. Enski boltinn 26.5.2026 11:21
De Zerbi ósáttur við dómarana: „Kannski fundu þeir fyrir pressu út af Arsenal leiknum“ Roberto De Zerbi, þjálfari Tottenham, segir dómarateymið hafa verið „órólegt“ í 1-1 jafntefli liðsins gegn Leeds. Risastór dómur féll ekki undir lokin og kostaði Tottenham líklega sigurinn. Enski boltinn 12. maí 2026 10:02
„Aðeins þeim sem vilja ekki að Arsenal verði meistari fannst þetta ekki vera brot“ Jamie Carragher segir engan vafa á því að brotið hafi verið á David Raya, markverði Arsenal, í markinu sem var dæmt af West Ham United í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Enski boltinn 12. maí 2026 08:00
Messan um stóra dóminn: „Þetta er bara rétt“ Markið sem var dæmt af West Ham United í leiknum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni var að sjálfsögðu til umræðu í Sunnudagsmessunni. Að mati sérfræðinga hennar komst dómari leiksins að réttri niðurstöðu. Enski boltinn 12. maí 2026 07:02
West Ham kvartar til dómaranefndar Forráðamenn West Ham munu hafa samband við dómaranefnd ensku deildanna í ljósi jöfnunarmarks liðsins sem dæmt var af undir lok 1-0 taps fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið gæti haft mikið að segja um bæði titilbaráttuna sem og vonir West Ham um að halda sæti liðsins í deildinni. Enski boltinn 11. maí 2026 10:15
Allt brjálað í lokin en titillinn blasir við Skyttunum Arsenal er tveimur sigrum frá því að verða Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár, eftir óhemju dramatískan 1-0 sigur gegn West Ham í Lundúnaslag í dag. Enski boltinn 10. maí 2026 17:30
Tap West Ham gefur Tottenham von Brentford vann langþráðan sigur eftir dræmt gengi, 3-0 á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Brentford komst í Evrópusæti en West Ham gæti farið í fallsæti á morgun vegna úrslitanna. Enski boltinn 2. maí 2026 15:58
Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Dramatíkin var allsráðandi í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Baráttan bæði á toppi og botni deildarinnar virðist ætla að teygja sig allt til loka tímabilsins. Hér neðar í fréttinni má sjá öll mörk gærdagsins, allt það helsta. Enski boltinn 26. apríl 2026 09:00
Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Þrátt fyrir að vinna loks sinn fyrsta deildarleik á árinu 2026 í dag er Tottenham enn í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Sigurmark Callums Wilson fyrir West Ham United gegn Everton skyggði á gleði Tottenham-manna. Enski boltinn 25. apríl 2026 16:04
West Ham felldi Wolves West Ham United fékk stig í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Crystal Palace á Selhurst Park í kvöld. Úrslit leiksins þýða að Wolves er fallið eftir átta ár í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 20. apríl 2026 21:07
Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti West Ham vann glæstan 4-0 sigur gegn Wolves í gærkvöldi. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Enski boltinn 11. apríl 2026 09:30
Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri West Ham kom sér upp úr fallsæti með 4-0 sigri gegn Wolves í 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Með þessum úrslitum fer Tottenham Hotspur niður í 18. sæti deildarinnar. Enski boltinn 10. apríl 2026 20:58
Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Fótboltakonan Dagný Brynjarsdóttir biðlar til íslenskra knattspyrnulýsenda að vanda til verka sjö ára sonar hennar vegna. Enski boltinn 8. apríl 2026 10:32
Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Tæplega fjörutíu ára bið Leeds United eftir að komast í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta er lokið. Leeds vann West Ham í vítaspyrnukeppni eftir ótrúlegan leik. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2 en Hamrarnir jöfnuðu með tveimur mörkum í uppbótartíma. Enski boltinn 5. apríl 2026 18:39
Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Breska frjálsíþróttakonan Keely Hodgkinson er ein stærsta íþróttastjarna Breta en hún stóðst ekki mátið að skjóta á enska úrvalsdeildarfélagið West Ham þegar fréttist af því að fótboltafélagið stæði í vegi fyrir að HM í frjálsum yrði haldið í London. Enski boltinn 28. mars 2026 23:16
Sjáðu Brobbey brjóta hjörtu, Watkins svara fyrir sig og Spurs steinliggja Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær og mörkin úr þeim má sjá hér fyrir neðan. Enski boltinn 23. mars 2026 08:33
Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Gærdagurinn var sögulegur fyrir Max Dowman og Arsenal. Þessi sextán ára strákur varð yngsti markaskorari sögunnar í ensku úrvalsdeildinni er hann skoraði seinna mark Arsenal í sigri gegn Everton. Toppliðin áttu bæði leik í gær og þá var Anthony Gordon hetja Newcastle gegn Chelsea. Enski boltinn 15. mars 2026 09:33
Gamla Skyttan veitti City þungt högg West Ham er í harðri fallbaráttu og Manchester City í harði baráttu við Arsenal um Englandsmeistaratitilinn. Enski boltinn 14. mars 2026 21:55
West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni West Ham er komið áfram í átta liða úrslit enska bikarsins í fótbolta eftir sigur gegn Brentford í leik liðanna sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni í kvöld. West Ham mætir Leeds United í átta liða úrslitunum. Enski boltinn 9. mars 2026 22:25
City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Manchester City og Liverpool eigast við í stórleik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar í fótbolta. Dregið var í kvöld. Enski boltinn 9. mars 2026 20:19
Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Arsenal er komið með sjö stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir hagstæð úrslit í leikjum gærkvöldsins en nú má horfa á mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Enski boltinn 5. mars 2026 08:17
Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Nuno Espirito Santo, knattspyrnustjóri West Ham, hefur bannað leikmanni sínum Adama Traore að lyfta lóðum á æfingasvæðinu. Enski boltinn 3. mars 2026 10:00