Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

„Engar varan­legar undan­þágur í boði lengur“

Fróðlegt viðtal var í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær þar sem rætt var við Heather Grabbe, sérfræðingi hjá Brugel-hugveitunni í Brussel, sem sagði meðal annars aðspurð hvað umsóknarríki gætu samið um við Evrópusambandið að hægt væri að semja um aðlögunartíma, sem einnig hafa verið kallur tímabundnar undanþágur eða tímabundin aðlögun, en varanlegar undanþágur (opt-outs) væru hins vegar ekki lengur á boðstólum.

Skoðun
Fréttamynd

Úti­loka að þjóðar­at­kvæða­greiðslan fái hraða af­greiðslu

Formaður Miðflokksins útilokar að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Þeir segja utanríkismálanefnd hafa verið hundsaða með öllu og segja ekkert að marka fyrri orð forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin feli að­gerða­leysi á bak við at­kvæða­greiðsluna

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið vera til marks um uppgjöf á þeim verkefnum sem hún tók að sér eftir síðustu kosningar. Valkyrjurnar svokölluðu ætli að leita sér pólitísks skjóls í deilum um Evrópusambandið næstu mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildar­við­ræður

Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðar­at­kvæða­greiðslan fer fram 29. ágúst

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Kynnir hve­nær þjóðar­at­kvæða­greiðsla um við­ræður við ESB fer fram

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utan­ríkis­ráðherra kynnir þingsá­lyktunar­tillögu um þjóðar­at­kvæða­greiðslu um aðildar­viðræður að Evrópu­sam­bandinu (ESB) á fundi ríkis­stjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaða­manna­fundur þar sem efnis­at­riði til­lögunnar verða kynnt og dag­setning at­kvæða­greiðslunnar.

Innlent
Fréttamynd

Leggur loka­hönd á þings­á­lyktun um þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur nú lokahönd á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Hún segir stríðið í Íran geta haft veruleg áhrif á Íslendinga og að borgaraþjónustan aðstoði nú fjölda Íslendinga erlendis vegna stríðsins. 

Innlent
Fréttamynd

Þjóðin hræðist ekki leigupennana

Íslenskir einangrunarsinnar skjálfa á beinunum nú þegar eygir í að þjóðin fái að ákveða hvort við höldum áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Leigupennarnir eru komnir á fullt og vinna hörðum höndum að því að hræða líftóruna úr almenningi.

Skoðun
Fréttamynd

Díhýdrómónóxíð

Díhýdrómónóxíð er kemískt efni, mikið notað í iðnaði og sérstaklega stóriðju, sem getur drepið manneskju við jafnvel litla innöndun. Hundruðir þúsunda deyja úr ofskammti af þessu efni á ári hverju en það er varla nokkurn tíma talað um það.

Skoðun
Fréttamynd

Er veggurinn nóg fyrir þig?

Í bókinni “Ríkið” lýsir Platon mynd sem hefur nú lifað í rúm tvö þúsund ár. Menn sitja hlekkjaðir inni í helli og horfa á vegg. Þeir hafa verið þar síðan þeir fæddust.

Skoðun
Fréttamynd

Sam­bandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning

Fyrrverandi utanríkisráðherra segir samband Íslands við Evrópu ekki þurfa að vera já eða nei spurningu og hægt sé að auka samstarfið án þess að ganga í Evrópusambandið. Hann óttast að umræðan festist í hjólförum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður.

Innlent
Fréttamynd

Varnar­barátta Úkraínu og Rúss­lands­skatturinn

Fjögur ár eru nú liðin frá því að allsherjarinnrás Rússlands inn í Úkraínu hófst. Stríð sem Rússar áformuðu að myndi standa yfir í þrjá sólarhringa en vanmátu algerlega hetjudáð og baráttuþrek úkraínsku þjóðarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

„Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd spyr hvað ríkisstjórnin hafi að fela þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB og spyr hvort nafnlausir heimildarmenn í Brussel muni einir fá að vita hvenær hún fari fram. Þingflokksformaður Viðreisnar segir enga leyndarhyggju í gangi, þjóðaratkvæðagreiðslan verði tekin fyrir á þingi á næstunni.

Innlent
Fréttamynd

Hættum þessu hálfkáki

Ég hef verið stjórnandi í íslensku atvinnulífi í rúma þrjá áratugi og lengst af þessum tíma hefur verið þráttað um Evrópusambandið - með einstaka hléum inn á milli.

Skoðun
Fréttamynd

Ekkert um að semja?

Ég vil byrja á því að taka fram að ég tel það ekki vera forsendu þess að Ísland gangi inn í Evrópusambandið að landið verði varanlega undanþegið þeim lögum sem þar gilda, að hluta eða heild.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar al­þjóða­við­skipti eru vopnvædd

Í grein sem birtist í Morgunblaðinu á dögunum spyr Sigurður Kári Kristjánsson hver gangi í tollabandalag í varnarskyni. Þar beinir hann spjótum sínum að Evrópusinnum, sem sumir hverjir hafa gert varnarmál að umtalsefni í ljósi gjörbreyttra aðstæðna í alþjóðamálum. Sigurður Kári hendir gaman að og heldur fram að það þurfi „býsna fjörugt ímyndunarafl til að láta sér koma til hugar að aðild þjóðar að tollabandalagi tryggi varnar- og öryggishagsmuni hennar.”

Skoðun
Fréttamynd

Á­kvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir

Þegar stórar ákvarðanir eru teknar um framtíð Íslands vel ég að horfa ekki aðeins á tölur, slagorð eða skammtímapólitík. Ég horfi á börnin mín. Ég á þrjú börn, þrjú stjúpbörn og tvö barnabörn – alls átta ung líf sem munu erfa þær ákvarðanir sem við tökum í dag. Fyrir þeirra hönd vil ég vanda mig.

Skoðun
Fréttamynd

Um­deild mál á dag­skrá og þeim fjölgar

Þingstörf hefjast á ný á morgun og forseti Alþingis býst við því að málum á þingmálaskrá verði fjölgað. Þingflokkur Framsóknar hefur sent erindi á formenn allra flokka þar sem kallað er eftir þverpólitískri samstöðu í málefnum barna og ungmenna.

Innlent
Fréttamynd

Funda um Evrópumálin „fjarri kast­ljósi fjöl­miðla“

Samfylkingarfélagið í Reykjavík boðar til fundar með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra um Evrópumálin í vikunni. Tekið er fram í tilkynningu félagsins að spjallið á fundinum sé „haft á lágu nótunum, fjarri kastljósi fjölmiðla.“ Formaður félagsins segir um óformlegan fund að ræða og tilviljun að fundinn beri upp á sama tíma og aukinn kraftur hafi færst í umræðu um Evrópumál.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hluti hlynntur aðildarviðræðum: „Margt breyst á stuttum tíma“

Meirihluti landsmanna er hlynntur upptöku viðræðna við Evrópusambandið samkvæmt könnun Maskínu. Könnunin var gerð í desember og prófessor í stjórnmálafræði telur líklegt að afstaða fólks sé að taka hröðum breytingum samhliða vendingum á alþjóðavísu. Geri megi ráð fyrir algjörri uppstokkun í umræðu um kosti og galla aðildar.

Innlent
Fréttamynd

Varnar­samningur við ESB settur á oddinn og þjóðar­at­kvæða­greiðsla brátt fyrir þingið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að áfram verði unnið að tvíhliða varnarsamningi við Evrópusambandið en segir samstarf Íslands og Bandaríkjanna í varnarmálum enn gott þrátt fyrir vendingar í alþjóðamálum og hótanir um innlimun Grænlands. Yfirlýsingar um annað eru að mati ráðherra glannalegar en hún vill ræða málið á vettvangi NATO. Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB verði lagt fram á þessu þingi.

Innlent
Fréttamynd

Styrkja báðar hliðar í Evrópuumræðunni um tíu milljónir

Til að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu og tryggja greiðan aðgang almennings að upplýsingum í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB, hyggjast stjórnvöld veita Evrópuhreyfingunni og Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fjárstyrk sem nemur tíu milljónum króna fyrir hvort félag.

Innlent