Skoðun: Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Við erum á plast­bát í ólgu­sjó

Í gær hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti í 8%, meðal annars með vísan til verðbólguáhrifa stríðsins í Mið-Austurlöndum. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa - enda vonbrigðin mikil og áhrifin grafalvarleg fyrir heimili sem skulda og fyrirtæki sem reiða sig á krónuna og krónulán í sínum rekstri.

Skoðun
Fréttamynd

ESB, af­sal eða út­víkkun á full­veldi?

Umræðan um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu hefur heltekið þjóðina, og varla að maður geti talist maður meðal manna án þess að skrifa um hana grein. Í stað þess að fjalla um efnismál ESB vil ég hér varpa fram dýpri spurningu sem ég tel að muni ráða úrslita atkvæði þjóðarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Kaup­máttur þjóðanna í Meistara­deild Evrópu

Menn hafa rætt svolítið um hversu vel Íslendingum hefur gengið í lífsgæðakapphlaupinu undanfarið, meðal annars í tengslum við ESB umræðuna. Í hita átaka hafa staðreyndir þó stundum frarið afvega og skáldskapur tekið við.

Skoðun
Fréttamynd

Ekkert plan, engin sleggja

Fyrir síðustu þingkosningar sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að lækkun vaxta og verðbólgu væri pólitísk ákvörðun. Hún sagðist vera með plan og sleggju sem hún lofaði að nota til þess að negla þetta niður.

Skoðun
Fréttamynd

Af­hverju ég ætla að segja JÁ

Ég vil stöðugra efnahagssvæði með upptöku evru. Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með þeim heljarstökkum sem íslenskt efnahagslíf hefur þurft að taka til þess að halda úti eigin gjaldmiðli.

Skoðun
Fréttamynd

Um peninga­legt full­veldi og fram­sal þess

Ljóst er að með inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru verður viðbótar framsal okkar svo umfangsmikið að telja verði að Ísland hafi þar með afsalað sér peningalegu fullveldi sínu. Það verður dýru verði keypt og um það verður ekki samið.

Umræðan
Fréttamynd

Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér?

„Viltu hafa rétt fyrir þér eða komast að hinu rétta?“ Þessari spurningu getur verið óþægilegt að svara en hún er gagnleg þegar við tökum mikilvægar ákvarðanir.

Skoðun
Fréttamynd

Já, fyrir vísindi, ný­sköpun og menningu

Þegar rætt er um Evrópusambandið verður umræðan oft víðfeðm og almenn. En í þeim málaflokkum sem ég ber ábyrgð á er Evrópusamstarfið mjög áþreifanlegt. Fólk sem starfar við rannsóknir, nýsköpun, háskóla og í menningu reiðir sig í vaxandi mæli á framlög sem koma úr samstarfsáætlunum ESB.

Skoðun
Fréttamynd

Viltu minni verð­bólgu og lægri vexti?

Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í mánuðinum. Þvert á móti hefur hún haldið áfram í sumar að kynda undir verðbólgunni. Meðal annars með hækkun komugjalda á heilsugæzlustöðvar um 100%. Vanhæfni ein og sér getur ekki útskýrt framgöngu hennar.

Skoðun
Fréttamynd

Sirkussleggja for­sætis­ráð­herra sló í bjölluna

„Svona ætlum við að negla niður þessa vexti“ var loforð Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar til Alþingis. Hálfu öðru ári síðar náði forsætisráðherra að láta bjölluna glymja enn og aftur í eyrum landsmanna. Í morgun hækkaði peningastefnunefnd Seðlabankans meginvexti í 8 prósent, þriðju hækkun ársins.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar Ólafur Ragnar Gríms­son vísar veginn

Ólafur Ragnar Grímsson hefur stigið fram og hvatt Íslendinga til að segja nei þegar þjóðin verður spurð: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Hann hefur jafnframt haldið því fram að engin formleg trygging sé fyrir því að hugsanlegur aðildarsamningur yrði síðar lagður fyrir þjóðina.

Skoðun
Fréttamynd

Greining SFS. Hver er óttinn?

Undanfarna daga hafa Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) látið frá sér fara nýjar greiningar þar sem því er haldið fram að ef Ísland færi í aðildarviðræður við Evrópusambandið og gengi síðar í sambandið, þá myndu takmarkanir á erlendri fjárfestingu falla úr gildi.

Skoðun
Fréttamynd

Sama fram­tíðar­sýn í Reykja­vík og Brussel

Það er athyglisvert hversu líkar áherslur er nú að finna í efnahags- og atvinnustefnu Íslands og Evrópusambandsins. Beggja vegna er talað um aukna framleiðni, öflugri nýsköpun, fjárfestingu í þekkingu og innviðum, einfaldara regluverk, hæfni til framtíðar og betri markaðsaðgang fyrirtækja.A

Skoðun
Fréttamynd

Evrópu­sam­bandið og heil­brigðis­mál - saman værum við sterkari

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið (ESB) hefur lítið verið rætt um heilbrigðismál. Það skýrist án efa af því að reglur um heilbrigðisþjónustu innan ESB eru að meginstefnu til ekki samræmdar milli aðildarríkja. Því ákveður hvert ríki fyrir sig hvernig heilbrigðisþjónustan er skipulögð, veitt og fjármögnuð.

Skoðun
Fréttamynd

Hálf­gert vand­ræða­barn

„Frábært að eiga krónuna en ferlegt að skulda hana“, sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti, í mögnuðu viðtalið í Silfrinu. Þetta er kjarni málsins enda krónan „hálfgert vandræðabarn“ svo vitnað sé aftur til orða Guðna.

Skoðun
Fréttamynd

Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin

Það er merkilegt hvað sumir eru sannfærðir um að íslenska krónan sé ómissandi þjóðargersemi. Að sveigjanleiki hennar, sem færir byrðar af efnahagsáföllum af útflutningsgreinum og yfir á launafólk, sé okkar helsti kostur sem þjóðar. Allt tal um upptöku evru jaðri við landráð.

Skoðun
Fréttamynd

Kosturinn sem er ekki á kjör­seðlinum

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kom vel fyrir í viðtali á dögunum í breska stjórnmálahlaðvarpinu The Rest Is Politics. Hún var yfirveguð og mælsk, talaði um opna fundi í bakaríum landsins, lærdóminn af Brexit og að hlusta á fólk fremur en prédika yfir því. Þáttastjórnendurnir tóku henni vel, og ekki að ósekju. Ef já-hliðin vinnur 29. ágúst þá vinnur hún með þessari röddu.

Skoðun
Fréttamynd

„Þið þurfið stærri bát“

Eftir að hafa séð hákarlinn í návígi í fyrsta sinn í Ókindinni (e. Jaws, 1975) sagði lögreglustjórinn Brody „þið þurfið stærri bát.” Þó að þjóðaratkvæðið um ESB viðræður snúist ekki um endanlega afstöðu til aðildar, þá snýst hún um hvort við viljum leggja mat á hvort ekki væri ráðlegt að vera í stærri bát.

Skoðun
Fréttamynd

Verð gæti stórlækkað á Ís­landi

Ísland er dýrara en nokkurt ríki Evrópusambandsins. Það eitt kemur engum á óvart sem verslar hér á landi. Það sem færri vita er þetta: verðlagið er líka fjórðungi til þriðjungi hærra en há laun okkar geta skýrt. Í þessu bili felst gríðarlegt tækifæri til að bæta lífskjör Íslendinga.

Skoðun
Fréttamynd

At­vinnu­við­tal hjá ESB?

Samtökin Já til að sjá hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir hugmyndaríkan áróður fyrir já-i í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst hagræðingu. Hafa þau m.a. lýst aðildarferlinu við atvinnuviðtal, fasteignakaup og að máta föt í fataverslun. Allt sé þetta sjálfsagt að gera, auðvitað fer maður í atvinnuviðtal áður en hann ræður sig til starfa, auðvitað skoðar maður fasteign áður en kaupsamningur er undirritaður og varhugavert að kaupa sér fatnað án þess að máta hann. En þessar samlíkingar eru hins vegar í raun ekki til þess fallnar að mæla með já-i í ágúst heldur einmitt nei-inu, þó að það hafa líklega ekki verið það sem Já til að sjá samtökin höfðu ætlað sér.

Skoðun
Fréttamynd

Að kaupa at­kvæði þjóðar

Það hefur vakið athygli mína hversu mikið af auglýsingum þrýstihópurinn Áfram Ísland hefur birt á síðustu vikum. Fyrir hverja auglýsingu frá Já til að sjá virðist maður sjá tíu frá Áfram Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­tíðin, björt eða svört?

Við höfum hér á Íslandi náð með undraverðum hætti að byggja okkur upp á innan við 100 árum úr mikilli fátækt yfir í mikla velmegun. Þetta er staðreynd sem allar mælingar styðja við þrátt fyrir bölsýnistal einhverra aðila hérna innanlands sem sjá öllu hér til foráttu.

Skoðun
Fréttamynd

Ert þú þessi hálf­viti?

,,Hann er helvítis fokking hálfviti fyrst hann er ekki sammála mér. Eða er ég kannski fávitinn?”Mér finnst áhugavert hversu oft við förum beint í manninn þegar við erum ósammála. Ekki í málefnið. Ekki að reyna að skilja hvers vegna viðkomandi komst að annarri niðurstöðu en við. Við erum, því miður, oft á tíðum vanhæf að vera ósammála hvort öðru. Það er sérstaklega áberandi í athugasemdum á samfélagsmiðlum þessa dagana.

Skoðun