Fjárlagafrumvarp 2027 „
1 2 ›
„Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í dag ályktun um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Ályktunin var lögð fram af formanni sambandsins, Almari Guðmundssyni. Innlent 25.9.2026 13:50
Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Hlutfallsleg aukning útgjalda er mest í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu ef marka má fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Þetta segir hagfræðingur Viðskiptaráðs. Niðurskurður til vegamála hafi komið á óvart enda rími það illa við umræðu um mikla innviðauppbyggingu. Innlent 21.9.2026 13:02
Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Sigríður Andersen, þingkona Miðflokksins, segir ríkisstjórnina verða dæmda af verkum sínum. Hún hafi verið með „Evrópusambandsblæti“ en þjóðin hafi talað. Hún ætti að einbeita sér að efnahagsmálunum næstu kjörtímabilin. Sigríður og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, tókust á í Sprengisandi um þingveturinn fram undan. Innlent 20.9.2026 18:00
Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Það er fjölbreytt dagskrá að vanda í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Páll Magnússon stýrir þættinum í dag og tekur á móti Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra til að ræða breytingar í útlendingamálum, tillögu um breytta skiptingu þingmanna milli kjördæma, fækkun sýslumanna og lögreglustjóra – og fleira. Innlent 20.9.2026 09:52
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ „Það er augljóst að ef farið verður í þessar breytingar þá munu breytingarnar ganga út á það að Ríkisútvarpið, sem er eini fjölmiðillinn sem er vel haldinn af fjármunum, verði jafnsett en skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á.“ Innlent 18.9.2026 08:30
Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Ný fjárframlög vöktu upp blendnar tilfinningar hjá Runólfi Pálssyni, forstjóri Landspítalans. Óumdeilt sé að fjárframlög spítalans hafi ekki haldið í við þjónustuaukningu. Innlent 17.9.2026 23:50
Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið „Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, sem lagt var fram í liðinni viku. Framganga ríkisstjórnarinnar, ekki síst í ljósi krefjandi aðstæðna sem forsendubrestur kjarasamninga hefur skapað, er með öllu óskiljanleg og kallar á viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.“ Innlent 17.9.2026 13:26
Heimilin halda að sér höndum og kortaveltan skreppur saman milli ára Heimilin virðist vera farin að halda að sér höndum í neyslu en kortavelta Íslendinga, miðað við fast gengi og verðlag, dróst talsvert saman í liðnum mánuði. Verðbóguvæntingar á skuldabréfamarkaði lækkuðu eilítið í fyrstu viðskiptum í morgun. Innherjamolar 17.9.2026 10:45
Kílómetragjald á umönnun Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er boðuð 15,9% hækkun kílómetragjalds. Fyrir fjölskyldur fatlaðra barna bætist hún við kostnað sem erfitt er að draga úr. Akstur til lækna, í þjálfun, skóla og önnur úrræði ræðst af þörfum barnsins og því hvar þjónustan fæst. Skoðun 16.9.2026 09:32
Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð Stjórn Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) lýsir yfir sárum vonbrigðum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Í ályktun minnir stjórnin ríkisstjórnina á gefin loforð um að allir landsmenn eigi að hafa fastan heimilislækni. Innlent 15.9.2026 11:46
Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Aðhaldskrafa ríkisstjórnarinnar getur hraðað þróun gagnavinnslu, sjálfvirkni og ábyrgrar notkunar gervigreindar. Skoðun 15.9.2026 10:03
Telja að hallinn geti orðið yfir fjörutíu milljarðar þrátt fyrir fyrirheit um afgang Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 2027 verði umtalsvert lakari en lagt er upp með í nýju fjárlagafrumvarpi, að mati greinenda Acro, sem telja líklegustu sviðsmyndina vera halli upp á 43 milljarða. Forsendur frumvarpsins eru sagðar of bjartsýnar, „svo ekki sé fastar að orði kveðið“, miðað við hægari efnahagsumsvif og án frekari aðgerða sé erfitt að sjá hvernig markmið um fimm milljarða afgang geti gengið eftir. Innherji 14.9.2026 16:38
Sendir röng skilaboð og hreyfir við verðbólguvæntingum á brothættum stað Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“ Innherji 14.9.2026 14:44
Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Fjármála- og efnahagsráðherra var ómyrkur í máli þegar fjárlagafrumvarp hans var rætt á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í morgun. Hann sakaði fyrri ríkisstjórnir um að hafa eytt um efni fram allt frá árinu 2019 og komið ríkissjóði í 800 milljarða króna mínus. „Hvað er að þessu liði?“ spurði hann meðal annars. Viðskipti innlent 14.9.2026 13:47
Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Stjórn VR kallar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kalda kveðju til launafólks. Ekki aðeins hafi stjórnvöld virt að vettugi skuldbindingar um að halda gjaldskrárhækkunum í hófi, heldur hyggist ríkisstjórnin nú hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá furðar stjórnin sig á því hvers vegna tímabundnar aðgerðir vegna hækkandi olíuverðs voru ekki framlengdar. Innlent 10.9.2026 22:59
„Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Hærri fjárhæðir eru ætlaðar til vegakerfisins og vetrarþjónustu í samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar en í tillögu fyrri ríkisstjórnar. Núverandi ríkisstjórn stefnir jafnframt að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027 og undirbúa fleiri jarðgöng. Innlent 10.9.2026 19:37
Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur líklegt að Þórður Snær Júlíusson hafi misskilið upplýsingar þegar hann sagði í mars að bankaskattur ætti að skila sex milljörðum króna. Ráðherrann segist hins vegar ekki geta skýrt hvers vegna sama fjárhæð varð síðar niðurstaðan í fjárlagafrumvarpinu. Viðskipti innlent 10.9.2026 16:47
Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Ráðamenn Vegagerðarinnar og Betri samgangna lesa stórfelldan niðurskurð til framkvæmda í vegagerð út úr nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, niðurskurð upp á samtals 4,4 milljarða króna. Hjá Vegagerðinni er boðaður 2,4 milljarða króna niðurskurður. Hjá Betri samgöngum, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er boðaður tveggja milljarða króna niðurskurður, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum þeirra. Innlent 10.9.2026 15:05
Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Taka þarf á agaleysi í útgjöldum ríkisstofnana segir fjármálaráðherra sem boðar verulega aukið eftirlit. Þingstörf hófust á ný í morgun þegar ráðherra mælti fyrir hallalausum fjárlögum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu gjaldahækkanir og óttast að sveitarfélög muni fylgja fordæmi ríkisins. Innlent 10.9.2026 13:52
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Fjórar af hverjum fimm íbúðum seldust undir auglýstu verði í júlí. Leyfum fyrir ný íbúðarhús hefur fækkað um helming frá árunum 2021 til 2023, atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgað um 27 prósent og vanskil greinarinnar aukist hratt. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir boðaða skattahækkun geta leitt til þess að enn minna verði byggt. Viðskipti innlent 10.9.2026 13:43
200 milljarðar – og við getum gert betur Ferðaþjónustan skilar stolt 200 milljarða skattframlagi íslenskrar ferðaþjónustu til ríkis og sveitarfélaga um allt land. Skoðun 10.9.2026 11:00
Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Þráhyggjustef ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokk fólksins um hallalaus fjárlög raungerðist í byrjun vikunnar. Þá héldu ríkisstjórnarflokkarnir fádæma kynningu á fjárlagafrumvarpi sem lagt verður á haustþingi. Skoðun 10.9.2026 10:45
Hver borgar skattinn að lokum? Hallalaus fjárlög eru mikilvægt markmið. Skattkerfið þarf hins vegar að gera meira en að afla tekna. Það þarf einnig að vera fyrirsjáanlegt, sanngjarnt og samkeppnishæft. Breytingar á því þurfa að taka mið af raunverulegum áhrifum á fyrirtæki og heimili. Óskýrt er hvers vegna ekki eru farnar almennari leiðir til að hækka skatta ef það er markmiðið. Umræðan 10.9.2026 09:41
Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Fjárlög fyrir árið 2027 voru kynnt á mánudagsmorgunn, við gleðileik ráðherra en litla alþýðuhylli. Áform um gríðarlegar skattahækkanir sem munu snerta alla anga ferðaþjónustu ollu þar gríðarlegum vonbrigðum, enda hefur atvinnugreinin viljað vinna með stjórnvöldum að öðrum og jákvæðari leiðum til að auka skatttekjur samfélagsins af ferðaþjónustu til framtíðar. Skoðun 9.9.2026 15:02
„Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, kannast ekki við að hafa átt í virku samtali við stjórnvöld um forsendubrest kjarasamninga. Hann gefur lítið fyrir fjárlagafrumvarp næsta árs sem sé „sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“. Innlent 9.9.2026 10:11
Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Frumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um fjárlög fyrir árið 2027 liggur nú fyrir. Það hefur vart farið framhjá neinum. Ríkisstjórnin hreykir sig af því við hvert tækifæri sem gefst að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður á næsta ári. Skoðun 9.9.2026 09:30
Stokkið á (barna)vagninn Það var viðbúið að vinsælt þema í skrifum þessa dagana yrði gagnrýni á fjárlög ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Það er enda óhætt að segja að stórtæk skatta- og gjaldahækkunaráform hafi ekki vakið mikla lukku hjá skattpíndum almenningi og fyrirtækjum í landinu. Ég læt mitt ekki eftir liggja í þessari óánægjubylgju. Skoðun 9.9.2026 07:30
Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Gunnar Helgason rithöfundur biður Loga Einarsson menningarmálaráðherra afsökunar eftir að hafa farið ófögrum orðum um hann. Ástæðan var niðurskurður Bókasafnssjóðsins um tugi milljóna. Innlent 9.9.2026 06:48
„Það kostar peninga að afla peninga“ Mennta- og barnamálaráðherra segir áherslumál Flokks fólksins og kostnaður þeirra fara vel saman með áætlunum ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjármagn. Fátækt kosti ríkið meiri peninga en ef ekkert er að gert. Forsætisráðherra segir að sérstaklega hafi verið staðið vörð um almenning þegar litið var til fjármögnunar fjárlagafrumvarpsins fyrir næsta ár. Innlent 8.9.2026 20:01
Loksins úr mínus í plús Eftir átta ára samfelldan hallarekstur og 866 milljarða króna uppsafnaðan halla verður ríkissjóður rekinn með afgangi á næsta ári. Þetta eru mikilvæg tímamót. Halli ríkissjóðs jókst mikið í heimsfaraldrinum en hvarf ekki þegar faraldurinn var genginn yfir. Tímabundin útgjöld urðu varanleg og kostnaðurinn hélt áfram að vaxa hraðar en tekjurnar. Sú staða var ósjálfbær og leiddi til þenslu. Skoðun 8.9.2026 19:03