Dorrit Moussaieff

Fréttamynd

Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segir í viðtali við Mörtu Maríu að líf sitt sé á hvolfi eftir skilnað hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Upphafið að endalokum hjónabandsins rekur hún til 7. október 2023 þegar Hamas gerðu árás á Ísrael. Þá hafi orðið ljóst að hún og Ólafur gætu ekki veitt hvoru öðru þann stuðning sem hinn þurfti á að halda. Hún syrgi lífið sem þau áttu saman.

Lífið
Fréttamynd

Dorrit þvoði hárið í ís­lenskri náttúru

Fyrrum forsetafrúin og athafnakonan Dorrit Moussaieff er orðin mikil samfélagsmiðlastjarna. Í nýjustu færslu sinni skellti Dorrit hún út í göngu umkringd íslenskri haustlitadýrð og ákvað að nýta tækifærið og þvo hárið í læk.

Lífið
Fréttamynd

Sól sló í gegn á tísku­viku í London

Fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir hefur vakið athygli undanfarin ár og er meðal annars í miklu uppáhaldi hjá fyrrum forsetafrúnni Dorrit Moussaieff. Sól, sem heitir réttu nafni Sólveig Dóra, hefur sýnt línur sínar víða um heim og var með vel sótta sýningu á tískuvikunni í London í fyrradag.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Dorrit missti að­gang á for­rit

Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands, segist hafa orðið fyrir því óláni að vera hökkuð. Á síma hennar bíða nú skilaboð um að síminn sé læstur.

Lífið
Fréttamynd

Telur að bar­átta Ólafs muni koma í bakið á honum

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, vill að Íslendingar gangi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið að nýju. Hún náði þó ekki að greiða atkvæði og gagnrýnir að ekki hafi verið tekin upp rafræn kosning á Íslandi. Hún telur að barátta Ólafs Ragnars Grímssonar fyrir nei-hliðina muni koma í bakið á honum. Sjálf hafi hún með samningatækni knúið fram hagstæðari húsnæðislán hjá íslenskum banka.

Innlent
Fréttamynd

The EU Referendum

For the first twelve years of my life, I lived in Jerusalem. I spent my days in the souk or with my father in the shop where I learned to negotiate. I learned very early that everything to do with commerce or finance is negotiable. You begin by asking for 100% of what you want.

Skoðun
Fréttamynd

Ekkert út á Dorriti að setja en frá­sögn eig­enda ekki á rökum reist

Ísraelskir ferðamenn sem eru sagðir hafa ógnað starfsmanni kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweets og valdið þar tjóni segja frásögn palenstínskra eigenda staðarins ekki eiga við rök að styðjast. Þeir hafi til að mynda alls ekki farið inn á staðinn með það í huga að áreita eða ógna fólki. Dorrit Moussaieff var ein þeirra sem tjáðu sig um málið en mennirnir fjórir segja ekki við hana að sakast, hún hafi einfaldlega trúað því sem eigendurnir sögðu.

Innlent
Fréttamynd

Þegar Davíð hafði af­skipti af hjóna­bandi Ólafs og Dorritar

Fregnir bárust í vikunni af skilnaði Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorritar Moussaieff og rifjaðist þá upp þegar Davíð heitinn Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, gerði athugasemdir við hjónavígslu þeirra í bréfi sumarið 2003. Davíð taldi ágalla á hjónabandinu því gögn vantaði um skilnað Dorritar við fyrrverandi eiginmann hennar. Lögmaður Ólafs taldi Davíð vilja gera hjónin að athlægi og sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson sagði Davíð vega að heiðri Dorritar. Lektor í stjórnsýslurétti taldi Davíð ekki endilega hafa farið út fyrir verksvið sitt.

Lífið
Fréttamynd

Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“

Ein stærsta frétt sumarsins birtist á Vísi í morgun þegar greint var frá því að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff væru að skilja. Hvorugt þeirra hefur tjáð sig formlega um fregnirnar en Dorrit brást hins vegar við tíðindunum með dularfullri athugasemd á samfélagsmiðlum.

Lífið
Fréttamynd

Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff standa í skilnaðarferli sem er ekki að fullu gengið í gegn samkvæmt heimildum Vísis. Hjónin hafa verið gift í 23 ár. Dorrit segir þau Ólaf Ragnar vera góða vini.

Lífið