Lögreglumál
149 150 151 152 153 154 155 156 157 … 274 ›
Hafa áður komið við sögu lögreglu Þeir sem lögregla hefur rætt við í tengslum við rannsókn á andláti manns í Kópavogi um helgina hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, að sögn yfirlögregluþjóns. Einn er í gæsluvarðhaldi vegna málsins en fleiri hafa ekki verið handteknir. Innlent 6.4.2021 12:34
Ungar stúlkur í sjálfheldu á Helgafelli Lögregla var kölluð til í gærkvöldi þegar tvær ungar stúlkur lentu í sjálfheldu á Helgafelli í Mosfellsbæ. Stúlkurnar voru aðstoðaðar niður og ekið heim til sín en samkvæmt dagbók lögreglu amaði ekkert að þeim annað en kuldi. Innlent 6.4.2021 06:15
Ákveða á morgun hvort gossvæðið verði opið Viðbragðsaðilar sem staðið hafa vaktina við gosstöðvarnar í Geldingadölum síðustu daga munu koma saman á stöðufundi á morgun. Þá verður ákveðið hvort svæðið verður opnað aftur, en því var lokað í gær eftir að nýjar sprungur opnuðust suðaustur af upphaflega gosstaðnum. Innlent 5.4.2021 17:51
Handtekinn eftir að hafa brotið gegn nálgunarbanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem hafði brotið gegn nálgunarbanni í Hlíðahverfi í Reykjavík. Viðkomandi hafði einnig átt í hótunum og var hann vistaður í fangaklefa. Innlent 5.4.2021 07:37
Minnist bróður síns sem féll frá um helgina: „Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu þínu“ Maðurinn sem lést af áverkum sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt í Kórahverfi í Kópavogi á föstudaginn langa hét Daníel Eiríksson. Daníel var fæddur árið 1990 en einn maður situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarhagsmuna vegna andlátsins. Innlent 4.4.2021 20:57
Samskiptagögn úr síma hins látna leiddu til handtöku mannanna Símasamskipti sem lögregla fann í síma mannsins sem lést í Kórahverfi í Kópavogi um helgina leiddu til þess að þrír Rúmenar voru handteknir vegna málsins. Tveimur þeirra hefur nú verið sleppt en sá þriðji sætir gæsluvarðhaldi. Meðal þess sem lögregla rannsakar nú er hvort einhver vitni hafi orðið að atvikinu. Innlent 4.4.2021 19:58
Sakborningur segist niðurbrotinn og að um sé að ræða slys Maðurinn sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina á andláti manns sem lést í Kópavogi um helgina segir að um slys hafi verið að ræða. Að sögn verjanda mannsins er hann niðurbrotinn vegna málsins að því er Rúv greinir frá. Innlent 4.4.2021 17:06
Einn úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás við Vindakór í Kópavogi á föstudag, sem leiddi til andláts íslensks karlmanns um þrítugt. Innlent 4.4.2021 14:48
Grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn Lögregla hyggst gera kröfu um gæsluvarðhald yfir erlendum karlmanni sem grunaður er um árás við Vindakór í Kópavogi á föstudag. Íslenskur karlmaður fæddur árið 1990 lést af völdum áverka sinna í gær, en grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn. Innlent 4.4.2021 12:20
Krefjast gæsluvarðhalds yfir einum vegna andlátsins Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gert kröfu um gæsluvarðhald yfir einum manni vegna andláts manns sem lést eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í Kórahverfinu í Kópavogi. Maðurinn sem krafist er gæsluvarðhalds yfir er erlendur ríkisborgari, en málið er rannsakað sem manndráp. Innlent 4.4.2021 09:45
Fjögur handtekin eftir rúnt á stolinni bifreið Lögreglan handtók í gær fjóra einstaklinga sem reyndust á stolinni bifreið í miðbæ Reykjavíkur. Öll voru í annarlegu ástandi samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglu og ökumaður undir áhrifum fíkniefna, ásamt því að hafa verið sviptur ökuréttindum. Innlent 4.4.2021 08:25
Andlát karlmanns sem lést í dag rannsakað sem manndráp Íslenskur karlmaður um þrítugt lést í dag af völdum áverka sem hann hlaut í líkamsárás fyrir utan heimili sitt í gær. Málið er rannsakað sem manndráp. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Innlent 3.4.2021 19:36
Sleginn í höfuðið af grímuklæddum árásarmanni Maður hafði samband við lögreglu snemma í gærkvöldi og sagðist hafa orðið fyrir árás af höndum grímuklædds manns í hverfi 105. Sagði hann árásarmanninn hafa slegið sig í höfuðið með áhaldi og þá reyndist hann einnig með áverka á hendi. Innlent 3.4.2021 07:06
Vísuðu ferðamönnum sem áttu að vera í sóttkví frá gossvæðinu Lögregla vísaði í gær fjórum ferðamönnum frá gönguleiðinni að Geldingadölum þegar í ljós kom að þeir áttu að vera í sóttkví. Innlent 2.4.2021 13:28
Eldur kom upp í kjallaraíbúð Tilkynnt var um eld í kjallaraíbúð í miðborg Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglu. Engin slys urðu á fólki og var slökkvistarfi lokið upp úr klukkan tíu. Innlent 2.4.2021 08:38
Mættu fyrir opnun til að sjá gosið í góða veðrinu Þó nokkur fjöldi manns, þó ekki jafn mikill og í gærmorgun, var mættur í biðröð til að komast að gosinu í Geldingadölum þegar lögregla opnaði fyrir umferð um gönguleiðina klukkan sex í morgun. Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, segir veðrið gott og daginn lofa góðu. Innlent 2.4.2021 08:25
Átta ár frá hvarfi Friðriks: „Búin að upplifa martröð sem er ekki hægt að lýsa“ Nú eru liðin átta ár síðan Friðrik Kristjánsson hvarf sporlaust í Paragvæ og hefur ekkert spurst til hans síðan. Vilborg Einarsdóttir, stjúpmóðir Friðriks, birti í gær færslu á Facebook þar sem hún biðlaði til fólks sem vissi eitthvað um hvarf Friðriks að stíga fram og segja frá. Innlent 1.4.2021 21:41
Líkfundur í fjörunni á Vopnafirði Mannabein fundust í fjöru við Vopnafjörð í dag. Þetta staðfestir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, í samtali við fréttastofu. Innlent 1.4.2021 14:20
Fólk mætt klukkutíma fyrir opnun til að skoða gosið í ró og næði Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir dæmi þess að fólk mæti klukkutíma fyrir opnun Suðurstrandarvegar til þess að geta gengið í Geldingadali og séð eldgosið án þess að þar sé múgur og margmenni. Innlent 1.4.2021 08:51
Stolinn bíll fannst fjórum tímum síðar Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot og þjófnað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í nótt. Í dagbók lögreglu kemur fram að veski, bíllyklum og fleiri munum hafi verið stolið. Bíl húsráðanda hafði verið stolið, en hann fannst um fjórum tímum síðar, mannlaus í Breiðholti. Innlent 1.4.2021 07:35
Réðst á öryggisvörð sem benti á grímuskyldu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning skömmu fyrir klukkan sex í gærkvöldi um líkamsárás í Vínbúðinni í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 31.3.2021 06:56
Áttu að vera í sóttkví en fóru að skoða Reynisfjöru Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði í dag erlendan ferðamann fyrir hraðakstur á Suðurlandsvegi vestan við Vík í Mýrdal. Við nánari skoðun kom í ljós að viðkomandi átti að vera í sóttkví. Innlent 30.3.2021 22:03
Fylgja því eftir að fólk skili sér í farsóttarhús og kanna hvaðan fólk er að koma Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá flugstöðvardeild Lögreglunnar á Suðurnesjum segir undirbúning starfsemi á Keflavíkurflugvelli fyrir gildistöku nýrrar reglugerðar um farsóttarhús 1. apríl ganga ágætlega. Innlent 30.3.2021 17:48
Höfnuðu beiðninni því endanlegur dómur í máli meints morðingja lá ekki fyrir Albanskur karlmaður á fertugsaldri var ekki framseldur til Albaníu árið 2017 vegna þess að endanlegur dómur lá ekki fyrir í sakamáli hans í heimalandinu. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 30.3.2021 11:51
Velti bílnum þegar hann reyndi að komast undan lögreglu Um klukkan hálftvö í nótt ætluðu lögreglumenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að stöðva bíl í Árbænum í Reykjavík. Innlent 30.3.2021 06:52
Undirbúa páskaumferð að Geldingadölum: „Það mæðir mikið á björgunarsveitarfólkinu okkar“ „Við sjáum það alveg fyrir að við getum ekki haldið slíkri gæslu úti eins og búin er að vera,“ segir Hjálmar Hallgrímsson, lögreglumaður hjá Lögreglunni á Suðurnesjum. Mikið hefur mætt á lögreglu- og björgunarsveitarfólki sem sinnt hefur gæslu við gossvæðið í Geldingadölum frá því gos hófst þar 19. mars. Innlent 29.3.2021 19:18
Meintur morðingi eftirlýstur í Albaníu en íslensk stjórnvöld höfnuðu framsali Albanskur karlmaður sem lögregla segir að hafi játað að hafa banað samlanda sínum í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn er eftirlýstur í heimalandi sínu fyrir vopnað rán og hefur verið um árabil. Fréttablaðið greindi fyrst frá. Innlent 29.3.2021 14:29
Réðst á starfsmann veitingahúss Laust eftir klukkan hálfníu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 29.3.2021 06:34
„Við munum lenda í vandræðum á eftir“ Fjöldi fólks hefur ákveðið að nýta daginn í að ganga að gosstöðvunum í Geldingadölum, enda veðrið fínt á svæðinu þrátt fyrir snjó og smá frost. Hjálmar Hallgrímsson, vettvangsstjóri og lögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir ný bílastæði nærri gönguleiðinni hafa nýst vel í morgun. Innlent 28.3.2021 13:33
Tólf hávaðaútköll en flestir veitingastaðir með sóttvarnir á hreinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu heimsótti 42 veitingastaði í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og voru þeir flestir með „allt á hreinu“ varðandi fjöldatakmarkanir og sóttvarnareglur. Um það bil þrjátíu staðir í öðrum hverfum voru einnig heimsóttir og var sama uppi á teningnum þar, þó árétta þurfti á nokkrum stöðum reglur um opnunartíma og skráningu gesta. Innlent 28.3.2021 07:39