Helstu fréttir

Fjölbreytt mannlíf á Landsmóti hestamanna
Í meðfylgjandi myndasafni má greinilega sjá þá góðu stemningu sem ríkti á meðal fjölda gesta sem nutu þess að fylgjast með flestum af fallegustu gæðingum landsins á Landsmóti hestamanna sem lauk í gær.

Fyrirtækjasöfnunin byrjar vel
Fjársöfnun meðal íslenskra fyrirtækja vegna eldgossins í Grímsvötnum fer vel af stað. Þegar hafa safnast 20 til 35 milljónir króna í sjóð sem settur var á fót til að veita bændum og starfsemi á gossvæðinu fjárhagslegan stuðning.

Goslokum lýst yfir og hættuástandi aflétt
Vísindamenn Veðurstofu og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands lýstu því yfir í dag að eldgosinu í Grímsvötnum væri lokið og hafa almannavarnir nú aflétt hættustigi.

Eldstöðin sofnuð og tiltektin langt komin
Eldstöðin í Grímsvötnum hefur ekkert bært á sér í rúma tvo sólarhringa og bendir nú flest til þess að gosinu hafi lokið á laugardagsmorgun. Í Skaftárhreppi er hreinsunarstarf langt komið en þó eru enn nokkrir dagar í að sundlaugin á Kirkjubæjarklaustri verði opnuð.

Bílar tíu slökkviliða við hreinsunarstörf
Yfir hundrað manna lið slökkviliðs- og björgunarsveitamanna víðs vegar að tóku þátt í hreinsunarstarfi á Kirkjubæjarklaustri og nærsveitum í gær. Hreinsa þarf hundruð húsa allt frá Álftaveri austur að Lómagnúpi. Gosvirkni í Grímsvötnum dvínar stöðugt en áfram er fólki ráðið frá því að fara nærri eldstöðinni.

Mjög gott tól fyrir vísindamenn
Færanlega ratsjáin, sem flutt var í Skaftárhrepp til að mæla öskustrókinn úr Grímsvötnum, hefur gefið vísindamönnum og flugheiminum mun nákvæmari upplýsingum en áður fengust. Nú er ákveðið að ratsjáin vakti eldstöðina áfram að minnsta kosti fram í næstu viku.

Mannlíf að komast í fyrra horf
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Hvolsvelli og Eskifirði ákveðið að færa viðbúnað almannavarna vegna eldgossins í Grímsvötnum af neyðarstigi niður á hættustig. Mjög hefur dregið úr virkni í eldstöðinni þótt ekki sé hægt að útiloka að gosið taki sig upp aftur. Hreinsunarstörf hafa gengið vel í dag.

Túnin verr farin en menn bjuggust við
"Það má segja að það sé krítískt ástand á túnunum. Þetta er þétt og mikil aska og ástandið verra en við vonuðum,“ segir Grétar Már Þorkelsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, sem fór í gær á milli bæja í Hlíða- og Fljótshverfi austan Kirkjubæjarklausturs og kannaði stöðuna í kjölfar gossins í Grímsvötnum. Grétar segir að fylgjast þurfi með áhrifum úrkomu og veðrunar á túnin næstu vikur og meta svo í kjölfarið hvort tilefni sé til að snúa túnunum við og plægja. "En við fyrstu sýn er útlitið svartara en við bjuggumst við varðandi heyskap.“

Vatnsból talin menguð
Heilbrigðisfulltrúi hefur í dag tekið við vatnssýnum til rannsóknar frá íbúum á öskusvæðunum suðaustanlands en talið er að vatnsból hafi mengast á nokkrum bæjum. Menn vonast þó til að veiðiár héraðsins spillist ekki vegna öskunnar.

Enn hætta á öflugum öskustrókum úr gígnum
Ekkert hefur sést til gosmakkar úr Grímsvötnum frá því í fyrrinótt. Eftir hádegi í dag sást þó til gufubólstra úr gígnum sem náðu í um 2000 metra hæð og segir í nýrri stöðuskýrslu frá Almannavörnum að ekki sé hægt að útiloka að öflugir öskustrókar geti komið fyrirvaralaust úr gígnum og er því enn varað við því að fólk ferðist að gígnum.

Skaftafell opnað klukkan fimm
Skaftafelli, suðurhluti Vatnajökulsþjóðgarðs, verður svæðið formlega opnað á ný klukkan fimm í dag. Vaskir vinnumenn hafa unnið sleitulaust að því síðustu daga að hreinsa svæðið eftir öskufall.

Slökkviliðsmenn frá Isavia fóru austur til hreinsunarstarfa
Harðsnúið lið slökkviliðsmanna frá Isavia fór í morgun til að aðstoða við hreinsunarstarf vegna öskufalls úr eldgosinu í Grímsvötnum.

Katrín tekur til hendinni á Klaustri
Starfsmenn Iðnaðarráðuneytisins láta hendur standa fram úr ermum í dag með Katrínu Júlíusdóttur ráðherra í broddi fylkingar. Um tuttugu manna hópur úr ráðuneytinu og tveimur undirstofnunum, Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofu fór austur á gossvæðið til þess að hjálpa til við hreinsunarstörfin sem eru að vonum ærin.

Sótsvartir jakar á Jökulsárlóni
Þessar fallegu myndir af Jökulsárlóni tók Elva Björg Elvarsdóttir, fjórtán ára gömul stelpa í dag. Hún er stödd hjá ættingum sínum á Hestgerði við Höfn í Hornafirði og fór að lóninu í dag til að virða fyrir sér jakana, sem eru orðnir svartir af ösku eins og sést á myndunum. Þetta er flott, en ekki samt út af góðum ástæðum,“ segir Elva. Hún er búsett í Hveragerði, en kemst ekki heim vegna þess að leiðin austur hefur verið lokuð vegna gossins. Hún vonast þó til að komast heim á morgun.

Gosóróinn lítið breyst síðastliðinn sólarhring
Gosórói í Grímsvötnum hefur lítið breyst síðasta sólarhringinn segir jarðeðlisfræðingur. Búast má þó áfram við umtalsverðu öskufalli næstu daga. Almannavarnir beina því til fólks að kynda vel heimili sín til að halda öskunni úti.

Atvinnulausir og námsmenn fá vinnu á gossvæðunum
Sveitarfélögum verður boðið að ráða atvinnuleitendur og námsmenn til þess að sinna ýmsum störfum til aðstoðar fólki á áhrifasvæði eldgossins í Grímsvötnum. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnti tillögu þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Ekki hundi út sigandi
"Það er ekki hundi út sigandi,“ segir Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps, í samtali við fréttastofu. Kristján Már Unnarsson ræddi við hana í heimabyggð, skammt frá gosinu, nú í kvöld.

Allir flugvellir opnir
Allir flugvellir á Íslandi hafa verið opnaðir. Þeir opnuðu rétt eftir klukkan sex í dag. Vélar eru á leið til Heathrow flugvallar í Lundúnum. Í kvöld er svo gert ráð fyrir að ein vél fari til Washington og að tvær vélar fari til Kaupmannahafnar. Allt millilandaflug hefur legið niðri frá því í gær vegna eldgossins.

Birtir til á Kirkjubæjarklaustri
Ástandið á Kirkjubæjarklaustri er mun skárra nú en fyrr í dag þegar menn sáu ekki handa sinna skil fyrir öskukófi. Fyrir um það bil klukkustund snérist vindáttin á svæðinu og hvessti töluvert. Þá birti fljótlega til og er öskufall ekki eins mikið og það var fyrr í dag.

Engar bilanir hjá Mílu - viðbúnaður enn á hættustigi
Engar bilanir eða truflanir hafa orðið í fjarskiptakerfi Mílu á gossvæðinu í Grímsvötnum. Þetta á einnig við um örbylgjusambönd, en öskufall virðist ekki hafa áhrif á þau. Áfram verður fylgst með styrk þeirra. Í tilkynningu frá Mílu segir að lokið hefur verið við að þétta loftinntök og hurðaop í tækjahúsum á svæðinu. Verið er að yfirfara síur í tækjahúsum og verður það gert daglega. Mat neyðarstjórnar er að viðbúnaður Mílu sé enn á „Hættustigi" miðað við framvindu eldgoss Í Grímsvötnum. Neyðarstjórn fylgist með þróun mála og fundar eins oft þörf krefur

Líklegt að flug á Bretlandseyjum fari úr skorðum á morgun
Bresk flugmálayfirvöld búast við því að askan úr Grímsvötnum komi til með að raska flugumferð á Bretlandseyjum á morgun. Nýjustu spár bresku veðurstofunnar gera ráð fyrir að öskuskýið nái til Skotlands og Írlands snemma í fyrramálið. Evrópskir ferðalangar og flugfélög bíða nú í ofvæni eftir því hvaða áhrif gosið muni hafa á ferðaplön milljóna manna á næstu dögum. Mönnum er enn í fersku minni áhrifin sem gosið í Eyjafjallajökli hafði á flugumferð í Evrópu þegar um 10 milljónir manna voru strandaglópar um víða veröld í marga daga.

Tekist á við öskufallið
Svartamyrkur hefur verið í morgun vegna öskufalls á svæðinu milli Mýrdalssands og Skeiðar-ár-sands og er allt athafnalíf þar meira og minna lamað af þeim sökum. Kristján Már Unnarsson fréttamaður Stöðvar 2 er á Kirkjubæjarklaustri og hann ræddi við Eygló Kristjánsdóttur sveitarstjóra Skaftárhrepps og Adolf Árnason, lögregluvarðstjóra á Kirkjubæjarklaustri.

Veginum lokað frá Höfn og til Djúpavogs
Óveður er og ekkert ferðafæri á milli Hafnar og Djúpavogs. Að sögn lögreglunnar á Höfn hafa ökumenn verið missa framrúður úr bílum sínum í veðurhamnum og einn ökumaður missti allar rúður úr bíl sínum við Hvalnesskriður. Mikið sandfok er á þessu svæði og því er fólki ráðið frá því að vera þarna á ferðinni eins og er.

Ráðherrar ætla á gossvæðið
Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands ætla að fara á gossvæðið og kynna sér aðstæður um leið og samgönguleiðir opnast. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Kerin full af ösku - fleiri hundruð kíló af bleikju drapst
Um tvö til þrjúhundruð kíló af bleikjum hafa drepist í fiskeldi nálægt gosstöðvunum. Starfsmenn sjá vart í kerin fyrir ösku, svo heildartjónið kemur ekki í ljós fyrr en rofa tekur til.

Vestmannaeyjar: Fólki ráðlagt að halda sig inni
Þar sem spáð er áframhaldandi Norð- og norðaustanlægum áttum næstu tvo daga eru líkur á áframhaldandi öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Grímsvötnum samkvæmt tilkynningu frá Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja.

Krafturinn í eldgosinu svipaður og í gær
Hæð gosmakkarins úr eldgosinu í Grímsvötnum hefur rokkað frá 8 til 10 kílómetrum í morgun en í gær var hann 10 til 15 kílómetra hár. Á laugardagskvöld þegar gosið byrjaði náði gosmökkurinn 20 kílómetra upp í loftið.

Skyggnið ekkert - aðstæður eru hrikalegar
Skyggnið við og á Kirkjubæjarklaustri er nánast ekkert. Samkvæmt upplýsingum frá fréttamönnum fréttastofunnar sést varla út fyrir vélarhlíf bílsins.

Enginn skóli á Kirkjubæjarklaustri alla vikuna
„Ég er ekki mjög bjartsýnn á framhaldið, það er bara kolniðamyrkur hérna og ég sé varla ljósastaurana hérna fyrir utan skólann,“ segir Kjartan Kjartansson, skólastjóri í Kirkjubæjarskóla sem er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk á Kirkjubæjarklaustri.

Öskufall í Grímsey
Íbúar Grímseyjar á Norðurlandi hafa orðið varir við öskufall í bænum. Þar er jörðin hvít eftir kalt veður undanfarna daga en að sögn heimamanns, sem fréttastofa ræddi við, liggur grá slikja yfir snjónum sem er augljóslega afleiðingar öskufalls.